Ægir - 01.11.1994, Page 14
SJÁVARSÍÐAN
VIÐ NÁNARI ATHUGUN
ANNÁLL
Bylting í rækjuiðnaði
Nýjar flokkunarvélar í rækjuvinnslu eru í þann veginn að valda byltingu í
rækjuiðna&i. Þessi tækni byggir á því aö með myndbandstökuvélum er horft á
skelfletta rækju á færibandi og illa pilluð rækja, ópilluð rækja eða aðskotahlutir
flokkabir frá með því að blása þeim af bandinu. Gölluð rækja fer þannig í
endurflokkun. Þessi tækni hefur þegar rutt sér til rúms í rækjuiðnabi í Græn-
landi og í Noregi. Vél af þessu tagi er þegar komin í notkun hjá Strýtu hf. á
Akureyri og aðrar eru væntanlegar tii Ingimundar hf. og Þormóðs ramma hf. á
Siglufirði og Básafells á ísafiröi. Margar fleiri verksmiðjur munu hafa sýnt
málinu áhuga nú þegar.
Þessi tækninýjung leysir mannshöndina og augaö af hólmi og fækkar talsvert
þeim starfsmönnum sem þarf við rækjuvinnslu. 35 starfsmönnum tveggja fyrir-
tækja á Siglufirbi og rúmlega 10 hjá Strýtu á Akureyri hefur þegar verið sagt
upp. Talið er ab alls muni starfsmönnum í rækjuiðnaði á íslandi fækka um 130-
160 eftir því margar verksmiðjur kjósa ab nýta sér þennan nýja búnab. Þegar
horft er á þessa fækkun er rétt að hafa í huga að frá 1987 til 1993 hefur
rækjuafli á grunnslóö aukist úr 3.913 tonnum alls í 7.680 og á djúpslób hefur
aflinn aukist úr 34.723 tonnum í 46.201 tonn. Af sjálfu leiðir að starfsfólki í
rækjuiðnaðinum hefur fjölgaö verulega á þessum tíma.
Tæknibyltingin gæti skipt sköpum fyrir rækjuiðnaðinn
Á síbustu árum hefur rækjuverð verið mjög lágt, fallib um 40% á fimm árum
og erfiðleikar í rækjuiðnaði í samræmi við það. Pétur Bjarnason framkvæmda-
stjóri Samtaka rækju- og hörpudiskframleibenda sagði í samtali vib Ægi ab um-
rædd tæknibylting leiddi til hagkvæmni sem skipt gæti sköpum um afkomu
verksmibjanna vegna síaukinnar og
harðnandi samkeppni frá eldisrækju á
heimsmarkaði.
Tvær gerðir af flokkunarbúnaði eru í
boði. Önnur byggir á myndbands-
tækni eingöngu og er þab sá sem þegar
hefur verið pantaður í þrjár verksmibj-
ur. Einnig er til búnabur sem skoðar
rækju á færibandi meb leysigeislum og
getur greint bæði litbrigði og harða
eba mjúka áferð. Fyrrnefndi búnaður-
inn kostar 10-15 milljónir meðan sá
síðarnefndi kostar 25-30 milljónir.
Flokkunarbúnaðurinn getur afkastaö
900-1700 kílóum á klukkustund eftir
stærð.
23 rækjuverksmibjur eru starfandi á
íslandi, þar af 19 sem eitthvað kvebur
aö, og samkvæmt heimildum Ægis eru
að minnsta kosti 14 þeirra nógu stórar til þess að grundvöllur sé fyrir kaupum á
flokkunarbúnaði. í hverri verksmibju gæti fækkað um 10-12 störf.
Fyrir utan Siglufjörð og Akureyri á þetta við verksmiðjurnar á Eskifirði, Húsa-
vík, Dalvík, Skagaströnd, Súðavík, ísafiröi og Stykkishólmi. O
Pétur Bjarnason framkvæmdastjóri.
VH Sjávarútvegsráðuneytið
■9 heimilar sjö skipum að veiða
síld í flottroll á yfirstandandi ver-
tíb. Stærsta skipið sem hefur leyfi
til slíkra veiða er nýja Guðbjörgin
frá ísafirði, nær 2.000 brúttórúm-
lestir.
V|| Ýmis samtök sjómanna
b9 leggja til að vetrarveiðar í
Smugunni verbi bannaöar. Áiit sitt
byggja þau m.a. á úttekt Einar
Sveinbjörnssonar veburfræðings á
ísingarhættu á þessum slóðum sem
er talin veruleg.
M Sigurvon ÍS frá Suðureyri
■Aii auglýst til sölu með 320
þorskígilda tonna kvóta. Margir
verða til þess að bera víurnar í
skipið meðan sveitarstjórn rær ab
því öllum árum að halda því áfram
í plássinu.
Pfl Mjög treglega horfir með
Hfl sölu á saltsíld en aðeins hefur
verið samið um sölu á 50 þúsund
tunnum. Rúmlega 90 þúsund
tunnur voru seldar í fyrra. Gunnar
Jóakimsson framkvæmdastjóri
Síldarútvegsnefndar segir söluna
fara betur af stað en í fyrra.
OT 53. Fiskiþing haldið á Hótel
Ih Sögu. LÍÚ neitar að senda
fulltrúa og segir þingið ekki góöan
vettvang fyrir útgerðina þar sem
hagsmunir hennar séu fyrir borð
bornir.
M Jónas Haraldsson
lafl lögfræðingur LÍÚ segir á
Fiskiþingi að smábátaeigendur geti
fengib hlut í væntanlegri
kvótaaukningu vegna úthafsveiða
ef þeir treysti sér til þess að sækja
kvóta sinn sjálfir á eigin skipum í
Smuguna.
MJI Einar K. Guðfinnsson
Iðifl alþingismabur frá
Bolungarvík kjörinn formaður
Fiskifélags íslands á 53. Fiskiþingi.
PPC Samkvæmt togaraskýrslu LÍÚ
Iflifl jókst aflaverðmæti
togaraflotans um 258 milljónir
fyrstu átta mánuði ársins
14 ÆGIR NÓVEMBER 1994