Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1994, Blaðsíða 46

Ægir - 01.11.1994, Blaðsíða 46
Framtíð Fiskifélagsins Fiskiþingi, því 53. í röð- inni, er nú nýlega lokiö. Helstu ályktanir þess birtast hér í blaðinu og verða því ekki tíundaðar sérstaklega í þessari grein. Fyrir Fiskiþing varð mikill fjölmiðladans þegar í ljós kom að stjórn LIU hafði ákveðið að senda ekki fulltrúa á þingið og í yfirlýsingum formanns stjórnar LÍÚ kom fram að hann, og þá talaði hann fyr- ir munn stjórnar sambands- ins, teldi Fiskifélagið og Fiskiþing ekki vera þann vettvang sem áður var og að þessi samkoma speglaði engan veginn vilja sjávarút- vegsins og gæfi ekki rétta mynd af þeim viðhorfum sem ríktu innan atvinnu- greinarinnar. Það skal tekið fram að öll önnur samtök í sjávarútvegi sendu sína full- trúa og að útgerðarmenn voru fjölmennir á Fiskiþingi sem fulltrúar fiskifélags- deiidanna víða að af land- inu. Á Fiskiþingi voru sam- þykktar breytingar á sam- þykktum Fiskifélagsins og eru þær miðaöar við að full- trúum fjölgi á Fiskiþingi þannig að sem flestar raddir heyrist og þessi vettvangur sýni sem bestan þverskurð af atvinnugreininni og þeim sem áhuga hafa á málefnum hennar. Þessi ofangreinda skoðun formanns og stjórnar LÍÚ virðist þó ekki eiga mikinn hljómgrunn innan sjávarút- vegsins og ekki heldur hjá fjölda útgeröarmanna innan LIÚ, bæði þeirra sem eiga minni útgerðir og þeirra sem stjórna stærri útgerðar- félögum. Þá hefur fjöldi að- ila haft samband við mig og í viðtölum fjölmiðla hafa komið fram eindregnar stuðningsyfirlýsingar við Fiskifélagið og Fiskiþing. Öndverðar skoðanir heyrast þó og taka undir með for- ystu LÍÚ, en þær raddir eru ekki margar og eins og virð- ist mér að þeir sem þannig tala séu einfaldlega ekki nægjanlega vel upplýstir um hvaða starfsemi fer fram hjá Fiskifélaginu og hvernig hún hefur breyst á undan- förnum árum. Starfsemi og staða Fiskifélagsins hefur breyst. Þannig er félagið ekki lengur hálfopinber stofnun eins og áður var og því er ekki hægt að segja að Fiskistofa geti komið í stað Fiskifélagsins því sú stofnun hefur ekkert að gera með fé- lagsleg málefni sjávarútvegs- ins, sem er stórt hlutverk Fiskifélagsins. Gegn þessum viðhorfum úr fortíðinni verður Fiskifélagið að bregð- ast og veita meiri upplýsing- ar um sína starfsemi og taka meiri þátt í almennri um- fjöllum um dagleg viðfangs- efni í sjávarútvegnum. Fiskifélag íslands er al- mennur félagsskapur allra innan sjávarútvegsins og þeirra sem hafa áhuga á málefnum sjávarútvegsins og þar geta allir komið sín- um skoðunum á framfæri. Fiskifélagið er frjáls félags- skapur og rekur sína starf- semi á tekjum sem það fær fyrir að vinna að söfnun upplýsinga í sjávarútvegi og hefur gert verktakasamning við Fiskistofu um það verk- efni. Stefnt er að því að á næsta ári verði sá samning- ur gerður við sjávarútvegs- ráðuneytið þar sem mun fleiri aðilar en Fiskistofa nota þessar upplýsingar. Þá hefur félagið tekjur af út- gáfustarfsemi og einnig af öðrum sérstökum verkum, t.d. mælingum og úttektum tæknideildar félagsins. Það er þvi misskilingur að Fiskifélagið sé rekið beint úr vasa skattborgarans. Það sinnir ákveðnum verkefnum sem um hefur verið samið og hér hafa áður verið talin upp. Af þeim fást tekjur sem halda félaginu gangandi. Fé- lagið er í raun einu samtök- in í sjávarútvegi á íslandi, önnur en sölusamtök, sem ekki hafa lögboðnar tekjur úr greiðslumiðlun sjávarút- vegsins, en í þeirri greiðslu- miðlun (arftaka gamla sjóðakerfisins og útflutn- ingsgjaldsins) skiptir ekki máli hvort viðkomandi er aðili að félagsskapnum eða ekki, tekið er lögboðið gjald (skattur) sem síðan rennur til viðkomandi samtaka. Fiskifélagið mun á næstu árum reyna að skapa lifandi umræðuvettvang í sjávarút- vegi þar sem allar raddir eiga að heyrast og jafnframt vinna ötullega að nýjungum í atvinnugreininni. Þá er mjög mikilvægt að mótuð sé til framtíðar stefna í sjáv- arútvegsmálum fyrir ísland þar sem tvinnað er saman veiðistjórnun og hagnýt- ingu þeirra auðæfa sem sjáv- arfang er. Bjami Kr. Grímsson 10 þúsund tonna togari strandar Tíu þúsund tonna rússneskur verksmiðjutogari, Pijonersk, strandaði rétt sunnan við Leirvík á Hjaltlandi í lok október. Vonskuveður, tæplega tíu vindstig, var þegar óhappið varð. Björgunarsveitir komu þegar á vettvang og hófust handa við aö bjarga 156 manna áhöfn togarans. Þyrla frá strandgæslunni bjargaði 34 meöan 91 fóru í björgunarbátana. Skipstjóri Pijonersk varð fyrst í stað um kyrrt um borð ásamt 30 úr áhöfninni og vildi freista þess að bjarga skipinu en mátti gefa þau áform upp á bátinn. Sérstakar ráðstafanir voru gerðar til þess að koma í veg fyrir olíumengun frá flakinu en þannig endaði síðasta veiðiferð Pijonersk. (Fiskaren okt. 1994) 46 ÆGIR NÓVEMBER 1

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.