Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1994, Blaðsíða 34

Ægir - 01.11.1994, Blaðsíða 34
aö því að Póstur og sími setti upp búnað til að taka við merkjum frá DSC-kerfi. DSC er skammstöfun fyrir Digital SelfCall. Þennan búnað verður tæknilega hægt að nota til að staðsetja skip með sendingu frá landi. Þetta kerfi byggir á stöðluöu tæki sem er tengt GPS-staðsetningarbúnaði. Þannig er raunar um þrjár leiðir að velja til þess að koma upp sjálfvirkri tilkynningaskyldu. Ein er íslensk útgáfa sem þegar hefur verið reynd um borð í Akraborginni, annað er Inmarsat Standard C kerfið sem 100 íslensk skip nota nú þegar og þriðja er umrætt DSC-kerfi. Enn liggur engin ná- kvæm áætlun fyrir um það hver þessara kosta verður fyrir valinu hjá Pósti og síma. Kann utanaö 2897 kallmerki Eysteinn Guðlaugsson vaktmaður á tilkynningaskyld- unni situr við tölvuskerm nýrrar og öflugrar tölvu. Tölva svarar á augabragði flóknustu spurningum um fjölda skipa í tilteknum reit, veit hverjir hafa tilkynnt sig og hverjir ekki og Eysteinn svarar auk þess fyrirspurnum úr landi um ferðir skipa. Hann segir að tíðni slíkra símtala aukist og minnki í takt við veðurspána sérstaklega í fyrstu slæmu brælunni hvert haust. Eysteinn viðurkennir að hann þekki kallmerki nær allra skipa í íslenska flotanum sem eru 2.897 talsins. Eysteinn Guðlaugsson (t.v.) og Árni Sigurbjörnsson starfsmenn tilkynningaskyldunnar: „Okkar markmið að auglýsingar eftir skipum heyrist aldrei í útvarpinu." Árni Sigurbjörnsson starfsmaður tilkynningaskyldunnar útskýrir að með aukinni tölvuvæðingu hafi fækkab mjög auglýsingum í útvarpinu eftir skipum sem sinna ekki skyld- unni. Tölvan létti vinnuna svo meiri tími gefist til að „smala" trössunum og farsímavæðingin gerir auöveldara að ná sambandi vib þá. „Okkar markmið er að svona auglýsingar heyrist aldrei," segir hann. Fölsk útköll mikið vandamál Eitt stærsta vandamál sem blasir við björgunarmiðstöðv- um um allan heim er tengt neyðarsendum og fjöldi falskra tilkynninga frá þeim. Slysavarnafélag íslands kannaði fjölda slíkra tilfella á þremur mismunandi neyðartíðnum, 121,5 Mhz, 243 Mhz og 406 Mhz. Sendar á 121,5 og 243 eru um borð í flestum gúmmíbjörgunarbátum í íslenskum skipum og öllum flugvélum. Sendar á 406 Mhz eru um borð í skip- unum sjálfum og oftast meb búnaði sem sleppir þeim laus- um sökkvi skipiö. Fjöldi falskra tilkynninga rýrir notagildi sjálfvirkra neyðarsenda verulega því tíminn sem fer í að kanna áreiðanleika sendingar getur skipt sköpum þegar um líf eða dauða er ab tefla. Niðurstöður könnunar Slysavarnafélagsins voru eftirfar- andi: Fjöldi Þar af falskar Neyðartíðni tilkynninga tilkynningar 121,5 Mhz 198 196 243,0 Mhz 64 63 406,0 Mhz 31 27 í samskonar könnun í Bandaríkjunum kom í ljós ab af 50.000 sendingum á 121.5 Mhz reyndust 49.740 falskar en af 1.370 sendingum á 406 Mhz reyndust 1.242 falskar. Á Bretlandseyjum er talið að árið 1993 hafi kostnaður vegna leitaraðgerða vegna falskra neyðarsendinga verið meiri en 300 milljónir íslenskra króna. Mörg hérlend dæmi mætti rekja um kostnaöarsamar leitaraðgerðir vegna þessa. Engar viðhlítandi skýringar hafa fengist á fjölda falskra sendinga en sérfræðingar segja flestar þeirra stafa af rafseg- ulbylgjum í loftinu. Slysavarnaskóli sjómanna Mannslíf verða ekki metin til fjár segir Hilmar Snorrason Slysavarnaskóli sjómanna hefur bækistöðvar sínar um borð í Sæbjörgu, gömlu varðskipi sem var smíðað 1951 í Danmörku. Skólinn hefur starfað frá 1986 og má segja að starfsárið skiptist í tvennt. Lungann úr sumrinu fer Sæbjörg um landið og námskeið eru haldin á hinum ýmsu stöðum víðsvegar um landið. Seinnihluta sumars og frameftir hausti liggur Sæbjörg á Akureyri og sinnir Eyjafjarðarsvæðinu. Á vetrum liggur Sæbjörg vib festar í Reykjavík og þá er eink- um sinnt námskeiðahaldi fyrir nema í Stýrimannaskólan- um, Vélskólanum og Fiskvinnsluskólanum, bæði í skólun- um í Reykjavík og hinum ýmsu deildum þeirra úti á landi. Meira en 9.000 sjómenn hafa sótt námskeið á vegum Slysa- 34 ÆGIR NÓVEMBER 1994

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.