Ægir - 01.11.1994, Blaðsíða 30
íldarsveifla á Hornafirði
Páll Ásgeir Ásgeirsson.
Ágúst Sigurbsson yfirverkstjóri hjá
Borgey á Hornafirði haföi í býsna
mörg horn að líta þegar Ægir leit við
hjá honum í Iok september. Síldar-
vertíðin var hafin á Hornafirði fyrir
nokkru og sýnt að vakað yrði við
síldarvinnslu fram eftir nóttu.
„Ef allt gengur að óskum munum
vib taka við 20 þúsund tonnum af síld
til vinnslu á þessari síldarvertíb. Það er
tvöfalt meira en í fyrra. Við höfum
aukið okkar afkastagetu mikið frá í
fyrra, t.d. með breyttri löndunar-
tækni," segir Ágúst.
Síldinni er dælt úr skipunum með
sérstakri dælu sem skilar henni algjör-
lega óskemmdri beint inn í vélasam-
stæbu sem flokkar hana í fjóra stærðar-
flokka. Sumt er fryst í heilu lagi og selt
til Bretlands þar sem það endar sem
„kippers" á morgunverðarboröum
Englendinga. Annað er ísað í kör og
flutt í söltunarhúsið. Þar er sumt saltað
í heilu lagi, annað saltað hausskoriö og
slógdregið og enn annaö flakab, rob-
flett og skorið í bita. Bitarnir eru síðan
lagbir í edikslög og seldir til Svíþjóðar
Tvö skip sem selt hafa afla sinn til
Borgeyjar á Höfn í Hornafiröi.
Sunnuberg á ieið út og Hábergið
bíður löndunar.
Ágúst Sigurðsson yfirverkstjóri hjá
Borgey á Höfn segist munu sofa
lítið á síldarvertíðinni.
og Danmerkur í frekari vinnslu og
enda sem kryddsíld í dósum og gaffal-
bitar hjá matvælafyrirtækinu Glyngöre
sem meðal annars selur afurðir sínar til
íslands. Saltsíldin er seld til Rússlands,
Finnlands og Svíþjóbar. Verkun á síld
getur tekið allt frá nokkrum dögum
upp í sex mánuði eftir atvikum.
Vilja vinna 20 þúsund
tonn og sofa lítið
Ef áætlanir Borgeyjarmanna um ab
vinna 20 þúsund tonn af síld til
manneldis ganga eftir skiptist það
þannig að 9 þúsund tonn verða söltuð
en 11 þúsund tonn fryst. En hvernig
eru söluhorfurnar?
„Þær eru heldur betri en í fyrra því
það fer meira á Rússlandsmarkað. Sala
á frystri síld virðist vera í góðu jafn-
vægi nema hvað Japansmarkáður virb-
ist vera í lægð."
Ágúst segir að Borgey bæti við rösk-
lega 50-60 starfsmönnum meðan síld-
arvertíðin stendur yfir en alls eru árs-
verk hjá Borgey 225. Hluti þess er að-
komufólk en meðan síldin er unnin
kemur mikið af heimamönnum á
Hornafirði til síldarvinnu eftir að
30 ÆGIR NÓVEMBER 1994