Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1994, Blaðsíða 23

Ægir - 01.11.1994, Blaðsíða 23
að koma með gallalausan fisk að landi og að fiskverkendur tileinki sér þann hugsunarhátt að taka ekki við fiski sem ekki stenst fyllstu gæðakröfur. 53. Fiski- þingi er ljóst að það tekur nokkurn tima að tileinka sér nýjan hugsunar- hátt en þeim mun brýnna er að hefjast þegar handa. Nú þegar er hægt að bæta úr tvennu. Annars vegar að alltaf verði hægt að rekja uppruna og feril veidds fisks og hins vegar að alltaf liggi fyrir hvaða dag fiskur er veiddur. Þorskkvóti loðnuskipa 53. Fiskiþing samþykkir að ígildi þess þorskkvóta sem loðnuskip fengu þegar bann var á loðnuveiðum verði skilað aftur til botnfiskveiðibáta. Loðnuflotinn fékk á sínum tíma verulega fyrirgreiðslu þegar erfiðleikar steðjuðu að, meðal annars fékk hann sérstakar aflaheimildir á kostnað ann- arra útgerða sem nú eiga í erfiðleikum. Nú þegar heimildir til loðnuveiða eru í hámarki er því eðlilegt að farið sé fram á að loðnuflotinn skili einhverju til baka. Þó komi ekki til loðnuskipa við- bótarúthlutun í rækju, ef bætt verður við rækjukvótann. Raforkuverð til fiskvinnslu 53. Fiskiþing mótmælir þeim gífur- lega verðmun sem er á raforkuverði til fiskvinnslu og annarrar stóriðju hér á landi. Það er með öllu óþolandi að fiskvinnslu skuli gert að greiða að meðaltali allt frá fjórfalt til sjöfalt hærra verð fyrir kílówattstundina en ÍSAL, Járnblendinu og Áburðarverk- smiðjunni. 53. Fiskiþing tekur heils- hugar undir ályktanir Samtaka fisk- vinnslustöðva í þessum efnum og skorar á Landsvirkjun og dreifiveitur að lækka nú þegar raforkuverð til fisk- vinnslunnar. Rannsóknir og þróun. 53. Fiskiþing beinir því til stjórn- valda að skattalögum verði breytt þannig að heimilaður verði sérstakur skattafsláttur til fyrirtækja vegna rann- sókna- og þróunarstarfa. Framkvæmdin verði með því móti að færa mætti kostnað vegna rann- sókna- og þróunarstarfsemi tvöfaldan í skattuppgjöri, enda hefðu þau verkefni sem unnið hefur verið að fengið viður- kenningu sem skattayfirvöld teldu gilda. Tilgangurinn með slíkri breytingu væri að hvetja fyrirtæki til rannsókna og þróunarstarfs, en íslendingar verja alltof litlu fé til þessara hluta miöaö við aðrar þjóðir. Atvinnuleysisbætur 53. Fiskiþing fer þess á leit við hæstv. félagsmálaráðherra að sjálfstætt starfandi útgerðarmenn hafi rétt til at- vinnuleysisbóta ef um tímabundna stöðvun starfsemi er að ræða sem stafar af skerðingu á aflaheimildum. Um úrgang frá skipum og bátum 53. Fiskiþing beinir því til sjávarút- vegsráðuneytisins að ráðuneytið taki til athugunar hvort ekki sé skynsam- legt að breyta lögum nr. 54/1992 og lögum nr. 109/1993 sem skylda fiski- skip að koma meö fiskúrgang að landi, óháð því hvort því fylgi einhver hag- kvæmni eða ekki. í ljósi nýrra rann- sókna á þessu sviði vill þingið að kannað verði hvort saxa megi úrgang- inn og koma honum í sjóinn aftur þannig að hann nýtist nytjafiskum okkar sem fóður. Ef það telst skynsam- legt verði þessum lögum breytt. Greinargerð Deilur hafa staðið um lög sem skylda fiskiskip til þess að koma með allan fiskúrgang að landi óháð þeirri hagkvæmni sem því fylgir og óháð því hvort einhver vill við honum taka þeg- ar í land er komið. Nýjar rannsóknir benda til þess að hugsanlega sé hægt að koma því svo við að þessi úrgangur nýtist sem fóður fyrir okkar nytja- stofna. Þingið telur að rétt sé að kanna það og breyta lögunum í samræmi við niðurstöður þeirrar könnunar ef ástæða þykir til. Um stuðning við eldi sjávardýra 53. Fiskiþing lýsir yfir stuðningi við eldi þorsks og annarra sjávardýra í fjörðum við ísland og hvetur til áfram- haldandi rannsókna á verkefninu. Greinargerð Fiskiþing hefur oft samþykkt tillög- ur sem hvetja til aukinnar áherslu á rannsóknir á fiskeldi og vill enn á ný ítreka slíka stefnumörkun. Afnotagjöld sjónvarps 53. Fiskiþing skorar á forráðamenn sjónvarps að leggja áherslu á bætt skil- yrði sjónvarpsútsendinga á miðum við landið og telur að bætt sjónvarpsskil- yrði séu forsenda þess að eðlilegt sé að greiða afnotagjöld. Greinargerð Sjónvarpseigendur eru skyldaðir til þess að greiða afnotagjöld til Ríkisút- varpsins óháð þeim sjónvarpsskilyrð- um sem þeir búa við. Lítil áhersla virð- ist vera lögð á að tryggja sæmileg sjón- varpsskilyrði á helstu fiskimiðum landsins. Þingið er sammála um að ef ekki verði bætt úr sé óeölilegt að fara fram á greiðslu afnotagjalda af sjón- varpi í fiskiskipum. Stærð möskva í botnvörpu 53. Fiskiþing lýsir furðu sinni á þeim hringlandáhætti sem viðgengst um stærð möskva í botnvörpu sem hefur leitt til mikils kostnaðar hjá útgerð. Greinargerð Upplýst er að verulegur hringlanda- háttur hefur viðgengist varðandi ákvarðanir um möskvastærð í botn- vörpu. Þess er vænst að sá hringlanda- háttur sé nú að baki, en þingið telur fulla ástæðu til þess að vekja athygli á þeim vinnubrögðum sem viðhöfð hafa verið. Möskvastærð neta 53. Fiskiþing telur að full þörf sé á að meta á ný leyfilegar möskvastærðir við dragnótarveiðar. Þingið telur að rétt sé að skylda notkun legg-glugga, sem talið er að minnki skaðsemi þessa veiðarfæris á ungfisk verulega, og að þau svæði þar sem leyfilegt er að nota smáa möskva séu valin af varfærni og tíminn sömuleiðis. Greinargerð Dragnót er talin mikilvægt veiðar- færi til þess að nýta kolastofna og við nýtingu á langlúru og þykkvalúru þarf ÆGIR NÓVEMBER 1994 23

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.