Ægir - 01.11.1994, Page 19
skoöanaskipti verður að viðhalda málefna-
legri umræðu milli aðila.
Margar stofnanir þjóðfélagsins, svo sem
Álþingi, hafa í gegnum árin getað leitað eftir
upplýsingum í þekkingarbrunni Fiskifélags
íslands og ég tel nauðsynlegt að slíkt verði
áfram mögulegt í framtíðinni. Tæknideild FÍ
hefur á undanförnum árum unnið gott starf
og getur gert betur ef vel væri að henni
búið. Sú þjónusta við sjávarútveginn hefur
ekki verið seld á dýru verði, enda oft vand-
séð hvernig verðleggja á rannsókna- og
hönnunarvinnu. Það þykir eðlilegt að ríkið
styrki og sjái að miklu leyti til þess að hag-
nýtar rannsóknir og þróunarvinna séu til
stabar í þjóðfélaginu og ekki um þær ákvarð-
anir miklar deilur enda fyrirtæki oft ekki í
stakk búin til þess að kosta slíka starfsemi
sem síðar nýtist vítt og breitt í þjóðfélaginu.
Fiskifélag íslands hefur verið upplýsinga-
miðill fyrir marga og má þar til nefna skóla,
bæði sérskóla og almenna gmnnskóla.
Fræðsla kostar fé hvar sem hún er veitt og
þjónusta FÍ á þessu sviði er örugglega ekki
dým verði keypt.
Ab öllu þessu samanlögðu sýnist mér að
það væri afar slæmt verk og lítt öfundsvert
hlutskipti þeirra sem vilja rífa niður þann
vettvang í sjávarútvegi þar sem aðilar hittast
og skiptast á skobunum um málefni sjávarút-
vegs án þess að þar séu uppi á borðum þær
hörðu deilur sem kjaradeilum fylgja."
Gunnlaugur Stefánsson Alþýðuflokki
Verðmæt þekking sem ber að varðveita
„Fiskifélag íslands hefur gegnt mikilvægu
hlutverki í íslenskum sjávarútvegi um langt
skeið. Nú hefur starfsemi félagsins breyst á
síðustu ámm, einkum vegna tilkomu Fiski-
stofu. Félagið hefur ablagað sig þessum
breytingum með ýmsum hætti. Nú má segja
ab starfsemi þess sé afmarkaðri en áður.
í raun má skipta starfsemi Fiskifélagsins í
tvennt. Annars vegar er þab félagslegur vett-
vangur þar sem aöilar í sjávarútvegi geta
ræðst vib, með þátttöku áhugafólks. Hins
vegar er um ab ræða margháttaða þjónustu-
starfsemi við sjávarútveginn, stofnanir hans
og ríkisvaldið.
Sú breyting hefir orðið á undangengin ár
ab ríkisvaldib hefur dregið úr fjárframlögum
sínum til Fiskifélagsins. Eðlilegt má telja að
hið opinbera styrki ekki með fjárframlögum
framfara- og hagsmunafélög á borð vib Fiski-
félag íslands. Félagið hefur að vísu
nokkra sérstöðu þar sem það er ekki
hagsmunahópur í þröngum skiln-
ingi heldur miklu fremur vettvang-
ur sjávarútvegsins. Engu ab síður er
vandséð að félagsstarfsemi þessi sé
kostuð af opinberu fé.
Allt öðru máli gegnir um þjón-
ustu Fiskifélags íslands. Það er eðli-
legt að hún sé greidd af notendum
eins og önnur þjónusta. Þannig
greiðir ríkisvaldið til rannsókna-
stofnana. Rannsóknastarfsemina,
sem lýtur að grunnrannsóknum og
sem ekki verður fjármögnuð með
þjónustutekjum, er mikilvægt að
verja, ella getur farið svo að verð-
mæt þekking flytjist úr landi. Sama
er að segja um fræðslustarfið á veg-
um Fiskifélagsins.
Síðast en ekki síst fer fram á veg-
um Fiskifélagsins margs konar úr-
vinnsla talnalegra gagna. Þar er um
að ræða verktakastarfsemi sem
greitt er fyrir. Enginn vafi er á því
að þau vinnubrögð eru til hagsbóta
fyrir hið opinbera þar sem Fiskifé-
lagið byggir á mikilli reynslu og
nýtur trausts innan sjávarútvegsins.
Ég tel því eðlilegt ab þróa starf
Fiskifélagsins á þessum grundvelli,
það er ómetanlegur vettvangur sem
alls ekki má leggja niður og ég vona
að sjávarútvegurinn muni eiga þar
þann samhljóm sem er nauðsynleg-
ur." O
HAGGLUNDS
Afl sem tekur lítið pláss - Tengist beint á vindur eða
iðnaðarvélar - Snúningsátak allt að 150 000 Nm.
Hönnum og setjum upp vökvakerfi.
Viðgerða og varahlutaþjónusta.
Umboð:___________________________________________
Sig. Sveinbjörnsson hf. umboðs og heildverslun.
Skeiðarási - 210 Garðabæ - Sími 91 658850 - Fax 91 652860
ÆGIR NÓVEMBER 1994 19