Ægir - 01.11.1994, Page 24
smáriðinn möskva. Legg-gluggar hafa
reynst vel til þess aö skilja smáan fisk
frá kolaaflanum. Þingiö telur í ljósi
þeirra upplýsinga sem þaö aflaði sér að
full þörf sé á að stjórnvöld fari yfir
þessi mál með tilliti til þess að stofn-
arnir séu nýttir á skynsamlegan hátt
og framfarir í veiðarfæratækni verði
notaðar til þess að minnka skaðsemi
veiðarfærisins.
Þróunardeild Fiskveiðasjóðs
íslands
53. Fiskiþing beinir þeim eindregnu
tilmælum til stjórnar Fiskveiðasjóðs ís-
lands að hún leggi þróunardeild Fisk-
veiðasjóðs til fé sem veitt verði til að
styrkja rannsóknir, þróunarverkefni og
markaðsmál á öllum sviðum sjávarút-
vegsins.
Greinargerð
Þingið telur að íslenskur sjávarút-
vegur þurfi á verulega aukinni áherslu
á rannsóknir og þróunarstarf að halda.
í lögum um Fiskveiðasjóð íslands er
gert ráð fyrir að honum sé heimilt ab
leggja fjármuni til þróunarverkefna.
Þessa heimild hefur sjóðurinn ekki
nýtt sér hin síðustu ár. Þingið telur
brýnt ab Fiskveiðasjóbur íslands sinni
þessu hlutverki sínu sem honum er
með fyrrgreindum lögum falið.
Auknar rannsóknir á grásleppu
53. Fiskiþing leggur til að Hafrann-
sóknastofnun verði gert kleift að auka
rannsóknir á grásleppustofninum, m.a.
með merkingum og athugunum á
hvort önnur veiðarfæri, svo sem
rækjutroll, fisktroll, dragnót og haust-
veibar á loönu, hafi áhrif á minnkandi
grásleppuveiði. Einnig væri æskilegt ab
kanna hvort aukin hafbeit á laxi hafi
áhrif á grásleppustofninn.
Greinargerð
Þingið telur að auknar rannsóknir á
grásleppustofninum og áhrifum veiöa
annarra tegunda á hann séu af hinu
góða og í samræmi við eðlilegar áhersl-
ur í hafrannsóknum.
Um tæknideild Fiskifélags íslands
53. Fiskiþing vill enn á ný vekja at-
hygli á mikilvægi rannsóknaþáttar í
starfsemi tæknideildar Fiskifélags ís-
lands. Tæknideildin stundar almennar
rannsóknir á sviði skipatækni sem ekki
er sinnt af öðrum. Þingið bendir á ab
almennar rannsóknir á svibi skipa-
tækni eru eitt af verkefnum hvers
þjóðfélags sem byggir afkomu sína á
fiskveiðum. Frumvarp til fjárlaga 1995
gerir ekki ráð fyrir framlagi til almenns
reksturs Fiskifélags íslands og þar með
til tæknideildar félagsins. Meb því er
fyrirsjáanlegt að rannsóknaþætti
tæknideildar er stefnt í verulega hættu.
Greinargerð
52. Fiskiþing vakti athygli á mikil-
vægi tæknideildar í þessu samhengi.
Var þá talaö fyrir daufum eyrum rába-
manna. Nú er þess enn á ný freistað að
vekja athygli á þessum mikilvæga
þætti.
Sjóvinnukennsla
53. Fiskiþing skorar á stjórnvöld að
efla sjóvinnukennslu í skólum lands-
ins.
Um atvinnuréttindalög
53. Fiskiþing skorar á samgöngu-
ráðuneytið ab þab beiti sér fyrir því að
nefndir þær sem skipaðar voru til að
endurskoða atvinnuréttindalög vél-
stjóra og skipstjórnarmanna ljúki störf-
um. Jafnframt að nýtt frumvarp um
breytingu á gildandi atvinnuréttinda-
lögum verbi lagt fram strax á yfir-
standandi þingi.
Greinargerð
Brýn þörf er á að flýta þeirri endur-
skoðun sem tillagan fjallar um.
Björgunarþyrla/öryggismál.
53. Fiskiþing fagnar ákvörðun um
kaup á björgunarþyrlu. Þingið vill þó í
því sambandi benda á nauðsyn þess að
Landhelgisgæslunni verði tryggt rekstr-
arfé til þess að standa undir rekstrar-
kostnaði þyrlunar sem og öðrum svið-
um síns mikilvæga reksturs. Þá vill
þingið enn fremur hvetja til þess ab
hugsanleg staðsetning þyrlunar verði
skoðub með tilliti til allra eðlilegra
sjónarmiða, þ.m.t. öryggissjónarmiða.
Greinargerð
Þingið telur mikilvægt að Landhelg-
isgæslunni verbi tryggðar rekstrartekj-
ur til þess að sinna mikilvægu gæslu-
og björgunarstarfi. Ástæða er til þess
að benda á þetta þegar upplýst er að
fjárlagafrumvarp gerir ekki ráö fyrir
auknu rekstrarfé vegna reksturs nýrrar
þyrlu sem bætist senn við tækjakost
Landhelgisgæslunnar. Þá vill þingiö að
þegar hugsanleg staðsetning nýju þyrl-
unnar verði metin verbi öbru fremur
tekið tillit til öryggissjónarmiða.
Um öryggismál við
úthafsveiðar
53. Fiskiþing fagnar því framtaki
stjórnvalda að annast nauðsynlega ör-
yggis- og sjúkraþjónustu á fjarlægum
miðum íslenska flotans og skorar á þau
tryggja úthafsveiðiflotanum áfram til-
svarandi þjónustu.
Greinargerð
Þingið telur þab eðlilegt ab stór floti
íslenskra skipa og fjöldi sjómanna við
skyldustörf á fjarlægum miðum njóti
nauðsynlegrar öryggis- og sjúkraþjón-
ustu, enda hafi komið í ljós ab hennar
er full þörf.
Veðurathuganir
53. Fiskiþing beinir því til stjórn-
valda að fjárveitingar til Veðurstofu
miðist við ab unnt sé að halda áfram
starfsemi núverandi veðurathugunar-
stöðva og fjölga sjálfvirkum veður-
athugunarstöðvum í samræmi við um-
sögn hagsmunaaðila á hverju svæði
fyrir sig.
Greinargerð
Mannaðar veðurathugunarstöðvar
hafa gegnt og gegna enn mikilvægu
hlutverki varðandi sjósókn og öryggi
sjófarenda. Nefndin telur mikilvægt að
þessi þjónusta sé ekki skert jafnframt
því ab sjálfvirkum veðurathugunar-
stöðvum verði fjölgað og þær staðsett-
ar í samráði við hagsmunaaðila á
hverjum stað.
Öryggistæki
53. Fiskiþing beinir þeim tilmælum
til manna sem róa einir að nota örygg-
islínu í ádrepara og brýnt verði fyrir
mönnum að þeir séu ekki einir á línu-
og netaveiðum án þessa búnaðar.
24 ÆGIR NÓVEMBER 1994