Ægir - 01.11.1994, Síða 31
Þau eru snör handtökin við síldina hjá Borgey.
annarri vinnu lýkur því meðan
næg síld berst vill Ágúst aö síldar-
vélarnar gangi helst allan sólar-
hringinn. Hann viburkennir að
næstu vikurnar muni margir
starfsmenn Borgeyjar, hann sjálf-
ur þar með talinn, sofa ansi lítið.
„Menn eru gífurlega duglegir
því það er eins og síldin færi þeim
aukakraft. Það er gríðarlega gaman
að vinna í síldinni og Hornfirðing-
ar eru vanir þessu. Það er mikill
hraði í síldinni."
Meðan síldarvinnslan stendur
yfir er ekki önnur fiskvinnsla hjá
Borgey enda aflar fyrirtækið alls
síns hráefnis á markaði en rekur
ekki útgerð. Hvernig er verðlags-
málum háttað á síldinni?
„Það má segja ab það sé jafn-
vægi í saltsíldinni en verð á frystri
síld fer frekar lækkandi."
Aukin virðing fyrir hráefninu
Fyrir síld sem landað er til manneld-
is eru greiddar um 8 krónur fyrir kílóið
en verð á síld til bræbslu er 4-5 krónur.
„Ég finn mikinn vilja hjá skipstjór-
um til þess að landa til manneldis ein-
göngu og vanda fyrir vikið meðferð
hráefnisins. Með bættri meðferð opn-
ast nýir markabir en fram til þessa hef-
ur verðmunurinn á síld til bræðslu og
manneldis verib þab lítill að það hefur
ekki verið mikill hvati.
Það er hins vegar ljóst að í kjölfar
þess að markaðir okkar hrynja í austri
meb umskiptunum í Rússlandi þá
verðum vib aö byrja upp á nýtt og
framleiða á lágu verði meban vib vinn-
um okkur fótfestu á ný."
Á fullri ferð
Ágúst er yfirverkstjóri hjá Borgey og
er ábyrgur fyrir framlegðarútreikning-
um, mannaráðningum og er yfirmaður
9 verkstjóra sem aftur stýra ýmsum
deildum vinnslunnar. Hann er Hafn-
firðingur og vann hjá Bæjarútgerðinni
þar og Kaupfélagi Fáskrúðsfirðinga áður
en hann hóf störf hjá Borgey 1993.
í söltunarhúsinu er allt á ferð og
flugi. Saltið er vigtað og skammtað í
vélasamstæðuna sem vöðlar saman
réttum skammti af síld og salti og
steypir í tunnur. Annars staðar snúast
flökunarvélar og færiböndin bruna
silfri hafsins í ýmsum myndum í ólíkar
umbúðir. Vélarnar afkasta 2000-4000
tunnur af síld á sólarhring eftir því
hvort saltab er í heilu eða ekki. Ágúst
leiðir blaðamann Ægis um salarkynni,
bjargar honum frá því að verða undir
lyftara, hvetur sína menn, brosir til
síldarstúlkna, leiðbeinir og bannar. Á
skrifborði söltunarverkstjórans bíöur
fax frá Síldarútvegsnefnd sem snýst
um afgreiöslu á 500 tunnum í hendur
kaupenda erlendis. Síminn eltir Ágúst
hvert sem hann fer og hann svarar öll-
um sem sama jafnaöargeðinu hvort
sem það eru smástrákar að sækja um
vinnu, verkstjórar með brýn úrlausnar-
efni eða gamlir síldarjaxlar í heimsókn.
Byrjaði 10 ára í síldinni
Verkstjórinn i söltunarhúsinu heitir
Eiríkur Arnþórsson og er frá Fáskrúbs-
firði og hefur verið viðriðinn síldar-
söltun í 30 vertíðir að minnsta kosti.
„Ég var 10 ára þegar ég byrjabi að
snúast á planinu heima. Mér finnst
alltaf jafngaman að þessu. Ég finn ekk-
ert stress og ég kalla það ekki stress, ég
kalla það fjör."
Ágúst skrifar á miða minnisat-
riði um hámarkslengd á flökum
fyrir einhvern ákveðinn kaup-
anda. Liggur beint við að spyrja
hvort sé hagnaður af síldar-
vinnslu?
„Já," segir Ágúst. „En til þess
að þessi vinnsla borgi sig þarf
margt að ganga upp. Við erum
sveigjanlegir og getum fært fólk á
milli eftir þörfum. Vib einbeitum
okkur að þessu verkefni meðan
það stendur og gerum okkar besta
meb tækjum og fólki. Við erum
heppnir með báta í viðskiptum.
Hingað sækja góðir skipstjórar
eins og Hákon á Húnaröstinni og
Magnús á Sunnuberginu. Þeir
finna síld ef hún á annað borð
finnst og eru fljótir að því á stór-
um og vel búnum skipum. Þess
vegna getum við verið meb síld á
hverjum degi.
Auðvitað er þetta margfalt hagstæð-
ari vinnsla fyrir alla aðila en að bræða
síldina. Söltun skapar störf og umsvif
og ég hef séð útreikninga um að það sé
nífalt betra fyrir samfélagið að salta
síld en bræða, þó verðið sé lágt."
Norðurlandssíldinni þarf að vinna
sess á markaði - ef hún kemur
Nú er margt skrafaö um norsk-ís-
lenska síldarstofninn sem fer óðum
vaxandi og gengur orðið alla leið inn í
íslenska lögsögu. Sér Ágúst fyrir sér
síldarvinnslu stærri hluta ársins þegar
verður farið að veiða Norðurlandssíld-
ina á ný?
„Ég get alveg séð það. Við erum að
minnsta kosti tilbúnir og því lengur
sem vinnslan stendur verður hún hag-
kvæmari. Hitt er svo annað mál að
Norðurlandssíldin var og er talsvert
stærri en sú síld sem við veiðum nú og
seljum. Markaburinn er oröinn vanur
smásíld svo þegar og ef farið verður að
veiða Norðurlandssíld á ný þarf að
vinna henni sess á markaönum.
Ég er bjartsýnn á framtíð síldar-
vinnslu. Þetta er góður matur og holl-
ur sem alltaf verður markaður fyrir."
Að svo mæltu er Ágúst rokinn á vit
síldarinnar. □
ÆGIR NÓVEMBER 1994 31