Tímarit lögfræðinga - 01.12.2004, Blaðsíða 44
6. EVRÓPSK SAMSTAÐA?
6.1 Almennt
6.2 Allsherjarregla og almennt siðgæði: Leyfi til að víkja frá reglunum?
6.2.1 Almennt samkvæmt Evrópurétti
6.2.2 Samkvæmt Mannréttindasáttmála Evrópu
6.2.3 Samkvæmt alþjóðlegum einkamálarétti
6.3 Getur ESB-dómstóllinn gengið lengra?
7. ÁLYKTANIR
1. INNGANGUR*
Fyrir ekki svo löngu síðan var óhugsandi fyrir einstaklinga af mismunandi
kynþáttum að stofna til hjúskapar, lögum samkvæmt var gerður greinarmunur á
skilgetnum og óskilgetnum börnum og konur voru bundnar yfir bömum og búi.
Nú á dögum þykir það hins vegar sjálfsagt að konur hafi jöfn tækifæri og
karlmenn, og börn, óháð uppruna eða kringumstæðum við fæðingu, eru jöfn
fyrir lögum. Kynþáttur stendur ekki lengur í vegi fyrir hjúskap en það gerir
kynhneigð aftur á móti í flestum tilvikum.
Það verður þó að viðurkenna að réttarstaða samkynhneigðra para hefur
batnað verulega á undanförnum árum og áratugum. Rétturinn til að stofna til
hjúskapar er ekki lengur bundinn við „karl og konu“ í öllum ríkjum heims. Tvö
aðildarríkja Evrópusantbandsins,* 1 Holland og Belgía, hafa lögleitt hjúskap
samkynhneigðra2 og ríkisstjórn Spánar hyggst leggja fram frumvarp til laga
þess efnis innan skamms. Þróun hefur líka átt sér stað utan Evrópu, einkum í
Norður-Ameríku. Áfrýjunardómstóll Ontario í Kanada komst að þeirri niður-
stöðu í máli Halpern et. al. v Attorney General ofCanada et. al. að það stríddi
gegn stjórnarskránni að neita samkynhneigðum um sama rétt og gagnkyn-
hneigðir hafa til að ganga í hjúskap.3 Hæstiréttur Massachusetts í Bandaríkj-
unum komst að samsvarandi niðurstöðu í máli Goodridge & Others v Depart-
ment ofPuhlic Healtli and Another.4
* Ritgerð þessi er stytt og lagfærð útgáfa af ritgerð höfundar sem hann varði til meistaraprófs í
mannréttindalögfræði við Háskólann í Lundi í byrjun árs 2004. Lesendum til hægðarauka er að
finna ýntsa tengla í greininni sem allir voru virkir þegar hún fór í prentun.
1 Héðan í frá skammstafað ESB.
2 Hjúskapur hefur verið heimill samkynhneigðum í HoIIandi frá 1. aprfl 2001 samkvæmt lögum
settum 21. desember 2000 og í Belgíu frá 1. júní 2003 samkvæmt lögum settum 13. febrúar 2003.
3 Ríkisstjórn Kanada hefur síðan þá unnið að lagasetningu til að innleiða rétt samkynhneigðra para
til að stofna til hjúskapar. Frumvarpið Itefur verið borið undir Hæstarétt Kanada sem hefur komist
að þeirri niðurstöðu að lagafrumvarpið samræmist stjórnarskrá Kanada. Hæstiréttur tók þó skýrt
fram að þar sem borgaralegum hjúskap sleppti væri það væri undir prestum og forstöðumönnum
viðkomandi trúfélaga komið hvort þeir giftu samkynhneigð pör eða ekki.
4 Viðbrögð löggjafans í Massachusetts voru þau að leggja til bann við hjúskap samkynhneigðra í
stjómarskrá ríkisins en leyfa aftur á móti staðfesta samvist þeirra. Þessi stjórnarskrárbreyting tekur
þó ekki gildi fyrr en nýtt þing staðfestir hana og atkvæðagreiðsla hefur farið fram um hana í rfkinu.
I millitíðinni ganga samkynhneigð pör í hjúskap á grundvelli dómsins sem aftur leiðir til mjög
flókinna lagaskila.
502