Tímarit lögfræðinga - 01.12.2004, Page 97
Á þessu starfsári hófst átak í að innheimta eldri skuldir félagsmanna sem af
einhverjum orsökum voru ekki greiddar. Haldið verður áfram þeirri vinnu og
gert svipað átak hjá tímaritinu.
Þá gerir stjóm félagsins tillögu um að skipuð verði nefnd til að yfirfara og
endurskoða lög félagsins sem að stofni til eru frá árinu 1958.
Kristján Gunnar Valdimarsson formaður.
SKÝRSLA STJÓRNAR LÖGFRÆÐINGAFÉLAGS ÍSLANDS 2003-2004
1. Almenn stjórnarstörf
Á fyrsta fundi nýkjörinnar stjómar skipti hún þannig með sér verkum: Helgi
1. Jónsson gjaldkeri, Steinunn Guðbjartsdóttir, framkvæmdastjóri Tímarits
lögfræðinga, Áslaug Björgvinsdóttir ritari. Kristján Andri Stefánsson og Ingi-
mundur Einarsson voru meðstjómendur. Á aðalfundinum var Kristján Gunnar
Valdimarsson kosinn formaður og Benedikt Bogason varaformaður.
Á starfsárinu hafa verið haldnir 5 stjómarfundir, auk þess sem stjórnarmenn
hafa milli funda sinnt ýmsum málefnum félagsins.
Félagsmenn LÍ eru nú 992 að tölu. Þar af eru 397 áskrifendur að Tímariti
lögfræðinga en í heildina era 575 áskrifendur. Ætla má að fjöldi lögfræðinga í
landinu sé um 1400-1500 þannig að 60%-70% eru í félaginu.
f september sl. var nýútskrifuðum lögfræðingum boðin aðild að félaginu í
móttöku sem það hélt, eins og venja er til. Óvenju fáir mættu að þessu sinni en
nýútskrifaðir lögfræðingar hafa engu að síður verið að skila sér til félagsins.
2. Skrifstofa, framkvæmdastjórn og einstök verkefni
Á fyrsta fundi nýkjörinnar stjómar skipaði hún nefnd til að endurskoða lög
félagsins. í henni voru Áslaug Björgvinsdóttir, Amljótur Bjömsson og Dögg
Pálsdóttir. Nefndin hittist og gerði drög að nýjum lögum en vegna anna tókst
stjórninni ekki að ganga frá tillögunum og bera upp fyrir þennan fund. Fyrir-
hugað er að halda þessu starfi áfram á næsta starfsári.
3. Fræðafundir og málþing
Fræðafundir hafa að jafnaði verið reglulega yfir vetrartímann, auk þess sem
árlegt málþing félagsins var haldið þann 24. september sl. Fræðafundir voru að
þessu sinn fjórir auk málþings og jólahádegisverðar, og vora ýmist haldnir sem
morgunverðar-, hádegis-, eða kvöldfundir. Um 160 manns sátu fræðafundina en
auk þess sátu um 100 manns jólahádegisverð og 170 manns málþingið.
4. Yfirlit vfir fundi
Að loknum aðalfundi 2003 var fræðafundur undir yfirskriftinni: „Völd og
ábyrgð á sviði starfsmannamála. Hugleiðingar um aðstoð ráðgjafarfyrirtækja í
málum sem tengjast stofnun, breytingu eða slitum á vinnusambandi starfs-
555