Ægir - 01.07.1997, Qupperneq 18
manninn úti á sjó og svo fjölskyldulífið
eins og það er þegar hann er í landi,"
segir Guðfinna í viðtali við Ægi.
Flókin samskipti bæði undirmanna
og yfirmanna eru einn af grundvallar-
þáttum í störfum sjómanna enda
vinnustaðurinn bundinn við skipið.
Áhöfnin verður að deila súru og sætu
meðan á túrnum stendur og ekki er
neitt að fara ef eitthvað kemur uppá.
„Síðan koma sjómenn heim til fjöl-
skyldnanna og þá á helst allt að vera í
jafnvægi og ganga vel fyrir sig. Þá mæt-
ast oft þessir raunveruleikar sem eru
ólíkir, t.d. að ákveðnar reglur hafa verið
í fjölskyldunni þegar sjómaðurinn er
úti en þegar hann kemur heim þá
verða kannski að gilda allt aðrar reglur.
Þegar um er að ræða barnafjölskyldur
er álag stundum mikið og reynir á sam-
stöðu og samvinnu makans."
Guðfinna segir sjómannastéttina
ekki eiga sér hliðstæðu í þjóðfélaginu
hvað þessar aðstæður varði. Hún kem-
ur fljótlega að fjarskiptaþættinum sem
margir nefni á námskeiðunum sem afar
mikilvægum hlekk í tengslum sjó-
manna og fjölskyldnanna í landi.
„Já, fólk nefnir oft að það geti verið
vandamál ef skip eru ekki í símasam-
bandi og ekki hægt að ná í sjómennina
ef eitthvað kemur uppá heima fyrir eða
„Sjómennirnir sakna
þess oft að geta ekki
verið meira með börnun-
um til að fylgjast með
þeina uppvexti."
ef taka þarf mikilvægar fjölskyldu-
ákvarðanir," segir Guðfinna.
Markmiðið að styrkja
fjölskyldulífið
„Mér finnst sjómenn taka þessum
námskeiðum mjög vel og andrúmsloft-
ið á þeim hefur verið mjög gott og
mikil jákvæðni. Það virðist sem fólki
finnist þetta kærkomið tækifæri til að
setjast niður og horfa á lífið í kringum
sjómennskuna á annan hátt en áöur.
Við erum að tala um raunveruleika sjó-
mannanna milliliðalaust við þá, bæði
kosti og galla starfsins, aðstæðurnar um
borð og vinnusálfræðina. Sjómenn em
tilbúnir að ræða þessi mál og það hefur
komið okkur dálítið á óvart hve opnir
þeir eru og einlægir um sín mál," segir
Guðfinna. Hún segir að með námskeið-
unum sé einnig reynt að hjálpa til við
að styrkja fjölskyldulífið.
„Við höfum m.a. gert þetta með því
að láta fólk horfa í eigin barm og meta
eigin samskiptastíl. Meö þessu fær fólk
innsæi í hvernig það er líkt og ólíkt og
betri innsýn í hvors annars þarfir. Sjó-
mannskonurnar eru í því hlutverki að
sjá um öll mál í landi og uppeldið á
börnunum og þær eru oft mjög sjálf-
stæðar og duglegar og hafa þjálfaö sig í
því að standa einar. Sjómennirnir
sakna þess oft að geta ekki verið meira
með börnunum til að fylgjast með
þeirra uppvexti. Þegar bömin eru lítil
tala sjómennirnir um að þeir sjái mikl-
ar breytingar í þroska milli túra og
finnst erfitt að vera ekki meiri þátttak-
endur. Þessi langi aðskilnaður sem oft
er hjá togarasjómönnum og eiginkon-
um þeirra reynist mörgum erfiður."
FRAMTAK, Hafnarfirði
Kraltmihil
og lipur viðgerðarþjónusta
nú einnig dísilstillingar
FRAMTAK - alhliða viðgerðarþjónusta:
_________» VÉLAVIÐGERÐIR
_________» RENNISMÍÐI
_________• PLÖTUSMÍÐI
BOGI • DÍSILSTILLINGAR
Viðurkennd MAK
Þjónusta. 5
FRAMTAK
VÉLA- OG SKIPAÞJÓNUSTA
Drangahrauni Ib Hafnarfirði
Sími 565 2556 • Fax 565 2956
GÓÐ ÞJOHUSTA
VEGUR ÞUNGT
1 8 ÆGIR