Ægir - 01.07.1997, Qupperneq 30
Eigendur Rauðsíðu á Þingeyri reikna með að 80-90 störf verði
hjá fyrirtækinu þegar reksturinn verður kominn í fullan gang:
„Lítum ekki á okkur sem
bjargvætti á Þingeyri“
-segir Ketill Helgason, eigandi Bolfisks í Bolungarvík
„Viö teljum að með því að tengja
saman þessi tvö fyrirtæki, Bolfisk í
Bolungarvík og Rauðsíðu á Þingeyri,
þá nýtum við vel þá reynslu sem við
höfum skapað okkur hér í Bolungar-
vík með vinnslu á Rússafiski og þá
aðstöðu sem til staðar er á Þing-
eyri," segir Ketill Helgason, fram-
kvæmdastjóri fiskvinnslufyrirtækis-
ins Bolfisks í Bolungarvík, en á dög-
unum stofnaði hann, ásamt sölufyr-
irtækinu Norfisk í Reykjavík og
Guömundi Franklín Jónssyni í
Bandaríkjunum, fyrirtækið Rauð-
síðu um kaup á eignum Fáfnis á
Þingeyri. í framhaldinu hófst fisk-
vinnsla á nýjan leik á Þingeyri eftir
nærri eins árs stöbvun. Ketill segir
eigendur Rauðsíðu ekki koma eins
og bjargvætta að þessu verkefni
heldur hafi þeir staðfasta ætlan um
ab byggja upp sterkt fyrirtæki sem
nýti góðan húsakost og þekkingu
sem til staðar er hjá vönu fisk-
vinnslufólki á Þingeyri. Kjölfestan
sé síban sú þekking á kaupum og
vinnslu fisks frá Rússlandi sem Bol-
fiskur búi yfir og markaðsþekking
og reynsla hjá Norfisk. Samanlagt
segir Ketill ab Bolfiskur og Raubsíba
muni verða stærsti kaupandi og
verkandi Rússafisks á Islandi.
Með 40-50 starfsmenn
í Bolungarvík
Bolfiskur er þriggja ára gamalt fyrir-
tæki og þar starfa 40-50 manns, fyrst
og fremst við vinnslu á hráefni úr
Barentshafi. í samtali við Ægi segir
Ketill að framboðið á Rússafiskinum sé
mismunandi mikið eftir því hvernig
veiðar gangi í Barentshafi. Verðið á
hráefninu ræðst mjög af frambobi og
eftirspurn en fyrir kaupendurna skiptir
miklu að geta keypt mikiö magn í
einu en til þess þarf stórar frysti-
geymslur. Þar kemur ab einu af grund-
vallaratriðunum í kaupunum á Fáfnis-
húsunum á Þingeyri en þar eru stórar
frystigeymslur sem gera innkaup á
miklu magni auðveldari og mun það
nýtast bæði Rauðsíðu og Bolfiski í Bol-
ungarvík.
„Yfirleitt er mesta eftirspurnin eftir
þorski yfir háveturinn og jafnframt
erfibustu gæftirnar hjá Rússunum. Síb-
an þegar fer að sumra þá á verðið alla
jafna að lækka og gerir það stundum
en lækkanirnar hafa heldur ekki alltaf
gengið eftir," segir Ketill.
Rússafiskur hefur í talsverðum mæli
verið að koma inn í íslenska fisk-
vinnslu á undanförnum árum, bæði
sem uppbót á meðan lægð hefur verið
í veiðum hér heima en einnig hafa
byggst upp fyrirtæki í kringum þessa
vinnslu, eins og fyrirtæki Ketils Helga-
sonar og fjölskyldu hans er gott dæmi
um. Ketill segir ab íslendingar taki að-
eins hluta af þeim fiski sem í boði er í
Rússlandi en samkeppnin um hráefnið
er við Dani, Norðmenn, Portúgali og
Kanadamenn. Benda má á að í sjávar-
útvegsþrengingum Kanadamanna
hafa þeir bjargað sínum mörkuðum
með vinnslu á Rússafiski.
Margir um hráefnið frá Rússum
Ketill segir að sífellt verði erfiðara að
fá ýsu úr Barentshafi þannig að fyrst
og fremst er um að ræða þorsk. „Rúss-
amir hafa sjálfir verið ab koma sterkari
inn í baráttuna um hráefnið og það er
kannski skýringin á minna framboði á
ýsu. Þetta hráefni fer ekki mikið í
vinnslu hjá þeim heldur em Rússarnir
að verða meiri fiskneytendur en áður.
Þab má heldur ekki gleyma því að
þrátt fyrir erfibleika hjá mörgu fólki í
Rússlandi þá er líka til þar sterkefnuð
stétt fólks sem getur keypt fisk, jafnvel
þótt hann sé dýr," segir Ketill og bætir
við að þrátt fyrir samkeppnina um fisk
úr Barentshafi þá sé ekki ástæba til að
óttast að ekki fáist hráefni. „Nei, við
teljum þá hættu ekki fyrir hendi. Okk-
ar viðskiptavinir í Rússlandi telja aö
okkur sé óhætt að reikna með þessu
hráefni næstu árin."
Þorskurinn er keyptur heilfrystur,
hausaður en með klumbubeini sem
heldur opnum möguleika á vinnslu í
hefðbundna frystingu en einnig í sölt-
un.
Áætlanir um uppbyggingu Rauð-
síbu gera ráð fyrir að í gegnum vinnsl-
una fari 3500-4000 tonn af hausuðum
þorski á næsta ári, þ.e. 4000-4500
tonn af þorski með haus. Sé miðaö við
aðstæöur á íslandi kostaði um 400
milljónir að leigja kvóta fyrir þetta
magn og tæpa 3 milljarða að kaupa
varanlegan kvóta en þá ætti eftir að
reikna allan kostnað við skipakaup,-
veiðar og vexti af fjármagni.
30 ÆGIR