Ægir - 01.07.1997, Blaðsíða 31
Nýta reynsluna af vinnslu og
sölu Rússafisks
Ketill segir að hjá Rauðsíðu verði unn-
ið í frystingu fyrir Bandaríkjamarkað
og þar verði farið beint í kjölfar þess
sem Bolfiskur í Bolungarvík hefur ver-
ið að gera.
„Rauðsíða nýtur mjög góðs af þeirri
markaðsstarfsemi sem Norfisk hefur
byggt upp í Bandaríkjunum og þeim
vinnsluaðferðum og tækni sem Bol-
fiskur hefur skapað sér í Bolungarvík.
Segja má að Bolfiskur komi að Rauð-
síðu með reynsluna í vinnslunni, Nor-
fisk með reynsluna af sölustarfseminni
á afurðunum og síðan Guðmundur
Franklín með fjármagnshliðina. Mitt
mat er því að Rauðsíða eigi að geta
gengið vel með þennan gmnn en það
er jafn ljóst við hefðum aldrei getað
farið út í þetta án þeirrar reynslu sem
við höfum að baki okkur. Og ég hefði
heldur ekki treyst mér í þennan rekst-
ur á Þingeyri ef við hefðum eingöngu
ætlað að byggja á hráefni frá íslensku
fiskmörkuðunum," segir Ketill.
Yfir 30 manns eru nú í vinnu hjá
Rauðsíðu og ljóst að mörgum til við-
bótar mun bjóðast vinna hjá fyrirtæk-
inu. „Miðaö við áætlanir um þetta
framleiðslumagn þá þurfum við helst
tvær fullmannaðar vinnslulínur í fyrir-
tækinu, þ.e. 80-90 manns í heildina,
þannig að við munum þurfa að bæta
töluvert mörgu fólki við. Það er eðli-
legt að nokkurn tíma taki að byggja
þetta upp á meðan fólk er að átta sig á
hlutunum en við lítum alls ekki á okk-
ur sem neina bjargvætti í atvinnulíf-
inu á Þingeyri heldur kom þessi
möguleiki upp vegna þess að Bolfiskur
þurfti á að halda meiri framleiðslugetu
og þá fannst okkur það mun kröftugri
kostur að stofna fyrirtæki á Þingeyri
en að stækka í Bolungarvík."
Meiri menntunarmöguleikar á
Vestfjörðum mjög æskilegir
Ketill lét þau orð falla í sjónvarpsvið-
tali þegar starfsemi Rauðsíðu hófst að
nú væri baráttan rétt að byrja. Hann
segir ljóst að fólk á Þingeyri hafi staðið
frammi fyrir mjög erfiðri stöðu þegar
burðarfyrirtæki á staðnum stöðvaðist.
„Það er skiljanlega mjög þreytandi
og erfitt fyrir fólk að vera atvinnulaust
í heilt ár. Fólk hefur heldur ekki að-
stöðu til að sækja vinnu annars staðar,
það er ekki hægt að flytja burt vegna
þess að hvorki er markaður fyrir sölu
Ketill Helgason fyrir framan hús Rauðsíðu á Þingeyri. Hann segir að fyrirtœkin Rauðsíða og Bolfiskur í Bolungarvík muni hafa styrk
hvert af öðru. Mynd: Halldór Sveinbjömsson
ÆGIR 31