Ægir - 01.07.1997, Qupperneq 43
BJARNIÚLAFSSON AK-70
Mynd: Snorri Snorrason
í apríl s.l. bœttist nýtt og glœsilegt nóta-
og togveiðiskip, Bjarni Ólafsson AK-70, í
flota Akurnesinga. Skipið var smíðað í
Noregi árið 1978 hjá skipasmíðastöð Ge-
org Eide's Sönner og varþað stœrsta fiski-
skip sem þá hafði verið smíðað í Noregi.
Skipið hét upphafega M/S Libas en var
selt til írlands og var þá gefið napiið
Voyager K. Smíðanúmer er 106 og hönn-
uður er Vik & Sandvik. Skipið er 1608
brúttórúmlestir og gengur auðveldlega
14,5 hnúta á klukkustund.
Bjarni Ólafsson kemur í stað eldra skips
með sama nafni sem hefur verið selt til
Þórshafnar. Það heitir nú Neptúnus ÞH-
361 (1504). Gamli Bjarni Ólafsson var
smíðaður í Karlstad í Svíþjóð og er hann
er 556 rúmlestir að stoerð.
Tæknideild Fiskifélags íslands
Hið nýja skip er þriðja skip Runólfs
Hallfreðssonar sem ber þetta nafn.
Skipstjóri er Gísli Runólfsson og yfir-
vélstjóri er Gunnar Már Ármannsson.
TFF þakkar útgerð og áhöfn fyrir veitt-
ar upplýsingar um skipið, að auki er
byggt á upplýsingum frá flokkunarfé-
lagi og öðrum gögnum sem Fiskifélag
íslands hefur aðgang að.
Eftir að skipið kom til landsins var
sett milliblökk á enda nótarennu. Að
öðru leyti var skipið tilbúið til veiða
með nót eða flottroll.
Almenn lýsing
Skipið er smíðað úr stáli samkvæmt
reglum og undir eftirliti Det Norske
Veritas í flokki 1A1, Fishing Vessel S,
IceC MV. Skipið er tog- og nótaveiði-
skip með tvö heil þilför milli stafna,
hefðbundið stefni, skutrennu upp á
efra þilfar og hvalbak á fremri hluta
efra þilfars.
Rými undir neðra þilfari: Undir
neðra þilfari er skipinu skipt með
fimm vatnsþéttum þverskipsþilum í
eftirtalin rými, talið frá stefni: stafn-
hylki fyrir ferskvatn, þrískipta fiskilest
með frystilest fremst og tveimur sjó-
kældum fiskilestum og þá skuthylki
fyrir ferskvatn.
Neðra þilfar: Fremst á neðra þilfari
er frystivélarúm, (með aðgangi frá efra
þilfari og stiga niður í ,,asdik"-rúm)
ásamt keðjukössum. Þar fyrir aftan er
vinnslusalur án tækja, eða lokað
vinnsluþilfar, sem nær yfir breidd
ægir 43