Ægir

Årgang

Ægir - 01.06.2000, Side 23

Ægir - 01.06.2000, Side 23
enginn heldur hvenær kemur niðursveifla í umhverfisskilyrði hér við land þannig að þessi áhætta magnast. Sjávarhiti hefur farið hækkandi síðustu ár og hækki hita- stig þurfa fiskistofnar, sem og stækkandi hvalastofnar, meiri fæðu.“ Kristinn bendir á að í ráðgjöf sinni í upphafi sumars hafi Hafrannsóknastofn- un bent á þrjá valkosti, það er 200 þús- und tonna þorksveiði, 250 þúsund tonna veiði og 300 þúsund tonna veiði. I þeirri síðastnefndu sé gert ráð íyrir að þorsk- stofninn stækki lítið á næstu árum. „Mér finnst sú tillaga skynsamleg og áhættuminnst. Þorskurinn er nánast bú- inn að éta upp rækjustofninn, loðnustofn- inn minnkar aðeins og kolmunnastofninn og norsk íslenski sfldarstofninn fara minnkandi að því er fram kemur í frétt- um. Það virðast því ekki líkur á að það verði fæða til að stækka þorskstofninn. Sú hugmynd að stækka þorskstofninn í dag er því miður dæmi um hvernig ráðgjafar lenda í blindgötu með þessi akademísku fræði sem aðalatriði. Hvað á stærri þorsk- stofn að borða? Það er líklegt að þorskseiðum og smáþorski verði fórnað sem fæðu ef á að reyna að þvinga fram stækkun í stofninum nú.“ Akademfsk fræði eru ekki „Stóri-sannleikur" Ef valin yrði 300 þúsund tonna veiði myndi það að mati Kristins Péturssonar byggjast á faglegu mati þar sem flestir áhættuþættir væru í lágmarki samanlagt. „Þetta er ekki flókið mál. Aðalatriðið er að láta ekki hræða sig til hlýðni við hin akademísku fræði eins og þau séu einhver „Stóri sannleikur". Við erum búin að tapa af hundruðum þúsunda tonna afla sem við fáum aldrei aftur og rækjuhöfuðstóll- inn hefur verið nánast étinn upp. Ef við ræðum svo viðskiptahalla og byggðamál í þessu samhengi þá er 300 þúsund tonna leiðin engin spurning. Hún er 97 þúsund tonnum hærri en 203 þúsund tonna leið- in og 97 þúsund tonn af þorski eru út- flutningsverðmæti upp á 20 milljarða sem myndu rétta af viðskiptahallann. Við búum úti á landi til að veiða og vinna þorsk. Það er okkar líf. Eg mót- mæli því fyrirfram að ég sé að verja ein- hverja skammtímahagsmuni með þessum sjónarmiðum. Eg er að berjast fyrir lang- tímahagsmunum með heildaryfirsýn." Verður að tengja fræðin við raunveruleikann Kristinn segir að árin 1972 til 1976 hafi Islendingar veitt um 350 til 370 þúsund tonn á ári og þá hafi veiðiálag á stofninn verið 43% að meðaltali. „Þá virtist eins og stofninn gæfi sjálfum sér spark í aftur- Kristinn Pétursson, fiskverkandi. ,Viö erum búin að tapa af hundruðum þúsunda tonna afLa." endann því stofninn stækkaði um helm- ing frá 1975 til 1980. Að vísu kom Grænlandsganga árið 1980 en stofninn hafði stækkað um tæp 400 þúsund tonn áður en sú ganga kom þannig að það þýð- ir ekkert að fela sig á bak við Grænlands- göngu til að gera lítið úr þessari stað- reynd, eins og Jakob Jakobsson þá for- stjóri Hafrannsóknastofnunar marg- reyndi. Árin 1980 til 1983 féll vaxtar- hraði í þorskstofninum hins vegar um um 35% hérlendis og loðnustofninn fór í nýtt lágmark vegna niðursveiflu. Vís- indamenn sögðu þá að um væri að kenna ofveiði. Það er bara della því stofninn minnkaði um sömu 35% og vaxtarhrað- inn féll og það er varla flókið mál. Ráð- gjafar sögðu aldrei frá þessu árið 1983 og gáfu þar með villandi upplýsingar. Sum- ir ráðgjafa tala nánast eins og páfagaukar beintengdir við akademiska tölvu. Þetta er ekki tölvuleikur, þetta er lífsins alvara. Það verður alltaf að tengja saman fræðin og raunveruleikann. Annars getur illa farið." Fiskifræðin ekki raunvísindi Það hefur vakið nokkrar athygli hve mik- il skekkjumörk eru í tillögum Hafró, eða um 20% til eða frá. Kristinn var spurður álits á þessum mörkum og hvað valdi þeim. „Það má segja að til séu nokkrar teg- undir af fiskifræði. Ráðgjafar Hafrann- sóknastofnunar miða aðallega við svokall- aða stærðfræðilega fiskifræði, sem er bara akademísk tilgáta. Þetta eru ekki raun- vísindi eins og oft er gefið til kynna. Þessi 20% frávik nú, útskýrð með þessum fræðum, er einnig tilgáta út í loftið en FISKVEIÐIRÁÐG JÖF ekki rökstutt svar. Hin líffræðilega hlið málsins er ekki ekki notuð til að reyna að útskýra frávikin." Kristinn telur að oft á tíðum mætti gæta meiri nákvæmni í vinnubrögðum Hafró og því til stuðnings nefnir hann bergmálsmælingar á Vestfjarðamiðum. „Eg vil benda á að gífurlegt magn var af þorski fyrir Vestfjörðum á árunum 1995-1998 og fór vaxtarhraði hans að falla fyrir fjórum árum. Hafró tók þátt í að bergmálsmæla þetta mikla magn en neitaði að viðurkenna það mikla magn þorsks sem kom fram við bergmálsmæl- inguna og lá við botninn. Það var því ekki reiknað með. í staðinn fyrir að fara í annan leiðangur, með hugsanlega betri mælitæki, tel ég að hafi verið ákveðið að reikna engan þorsk við botninn heldur einungis þorsk sem mældist laus frá botni. Þetta gat ekki skilað nákvæmri mælingu." Margar hliðar á fiskifræðinni Frávikið í ráðgjöf Hafró segir Kristinn að hluta vegna þess að ekki hafi verið veitt nóg - þegar full þörf hafi verið á. Hann segir þorskinn hafa étið rækjustofninn og eitthvað af sjálfum sér. Og verði hann ekki veiddur sé hættan sú að hann éti meira frá sjálfum sér. „Eg skrifaði grein um þetta fyrir tveimur árum sem hét „Rækjusalat í forrétt" og varaði þar við þessari þróun sem nú hefur orðið. Eg miða aðallega við reynslu. Skipstjóri þarf að horfa á dýptarmæli, radar, sjólag, hita- stig og margt fleira - ef hann ætlar að veiða. Það dugar ekki að horfa bara á dýptarmælinn. Það eru sex hliðar á ten- ingnum og ráðgjafa Hafró vantar að mínu mati meiri víðsýni. Það má segja að horfa verði á fjóra möguleika í fiskifræði. I fyrsta lagi þessi akademísku fræði sem Hafrannsókn- astofnun miðar við. í annan stað fiski- fræði þar sem fiskilíffræði, vaxtarhraði, þrif og ástand fisksins er aðalatriði. I þriðja lagi er fiskifræði fiskimannsins og í fjórða lagi er það fiskifræði reynslunnar sem ég miða gjarnan við. Eg hef borið saman hinar akademisku spár og reynslu og skoðað hvað gerðist við sambærilegar aðstæður áður. Núverandi sjávarútvegsráðherra hefur boðað að tekið verði líka mið af fiskifræði fiskimannsins. Eg er bind mjög miklar vonir við þetta innlegg ráðherrans. Hann er á réttri leið. Ef við tengjum saman fræðilega akademíu og raunveruleika þá munum við finna hvað hægt er að laga og komumst á betri leið. Við skulum samt vera meðvituð um að það verður aldrei neitt til sem telst fuilkomið," segir Krist- inn Pétursson.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.