Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.06.2000, Qupperneq 25

Ægir - 01.06.2000, Qupperneq 25
ERLENT Fiskitegundir Fyrir stirðnun og Geymsluhitastig Fyrir stirðnun* stirðnun** (°C) (klst) (klst) 0 2-8 20-65 Þorskur, veiddur i troll 10-12 1 20-30 30 0,5 1-2 Þorskur, hvíldur 0 14-15 75-96 Karfi, veiddur í troll 0 22 120 Lýsa, veidd i troll 0 1 20 Skarkoli, veiddur í troU 0 7-11 55 Ufsi, veiddur i troll 0 18 110 Ýsa, veidd i troll 0 2-4 37 *Tíminn frá dauða þar til stirónun hefst. **Tíminn frá dauða þar til stirðnun hverfur stofnanir í Reykjavík, Troms0 og Kaup- mannahöfn unnu. Verkefnið tók til eðlis- og efnafræðilegrar greiningar á dauða- stirðnun í fiski og auk þess var leitast við að þróa nýjar og hagkvæmar aðferðir til að mæla og meta stirðnunina. Ýmsar vinnsluaðferðir Niðurstöður rannsóknanna leiddu til þess að hægt var að setja regiur um vinnslu fisks um borð í skipum. Á frystitogurum er mjög mikilvægt að kæla fiskinn strax og hann er veiddur og halda hitastiginu við u.þ.b. 0°C. Þá má lengri tími líða frá veiði til vinnslu og frystingar en við hærra hitastig. Efþorsk- flökin eru fryst fyrir stirðnun og geymd við -24°C nær fiskurinn ekki að stirðna fyrr en eftir 8 vikur. Þegar svo er þarf mikla nákvæmni við að þíða fiskinn og hann þarf að þiðna hægt til að gæðin rýrni ekki. Hið sama gildir um fiskiskip þar sem fiskurinn er geymdur ísaður og óflakaður. Mikilvægast er að geyma fiskinn frá veiði til vinnslu við lágt hitastig, -1°C til 0°C. Að öðrum kosti verða flökin lausari í sér og ljótari og erfiðara að roðdraga þau. Bæði sjó- og eldisfisk skal því geyma í 2- 3 sólarhringa við 0°C áður en hann er flakaður. Þegar vísindamennirnir höfðu lokið rannsóknum sínum var haldin náms- stefna í febrúar 1998, styrkt af Norrænu ráðherranefndinni, til að kynna niður- stöðurnar fyrir þeim sem þær varðaði. Til námsstefnunnar mættu um 50 fulltrúar frá stærstu sjávarútvegsfyrirtækjum í Færeyjum og á Islandi, auk vísindamanna frá Danmörku, Færeyjum og Islandi. Niðurstöður rannsóknanna hafa breytt ýmsu í fiskiðnaðinum. Aukin áhersla er nú lögð á að geyma fiskinn við lágt hita- stig og á nokkrum frystitogurum hefur aðstaða til móttöku á fiski verið bætt. I fiskiðnaði hefur náðst betri yfirsýn yfir meðhöndlun fisksins og gæði afurða hafa aukist. Kaupendum hefur þannig verið tryggð betri vara og framleiðendum hærra verð. Nokkrir punktar um meðhöndlun fisks Áríðandi er að fiskurinn sé kældur strax eftir að hann er veiddur. Best er að geyma hann við 0°C. Síðan er það háð vinnsl- unni hvernig fiskurinn er meðhöndlaður um borð. Dæmin hér að neðan eiga fyrst og fremst við þorsk. Frysting flaka: Fiskinn skal flaka kald- an og flökin fryst strax við -24°C. Eftir 6- 8 vikur má þíða þau hægt til frekari vinnslu eða neyslu. Isun: Fiskinn skal geyma við 0°C. Eft- ir um það bil 5 sólarhringa er hann tilbú- inn til vinnslu. Söltun: Fiskurinn skal geymdur við 0°C þar til dauðastirðnun er horfin. Þá má salta hann. Mjög mikilvægt er að fiskurinn sé ekki saltaður á fyrir stirðnun eða á stirðnunarstigi. Sé það gert er mik- il hætta á að gæðin minnki umtalsvert. Þegar dauðastirðnun er að fullu horfin er fiskurinn bestur til vinnslu og neyslu. Sé fiskurinn meðhöndlaður rétt fást mestu gæði og mesta mögulega geymslu- þol hans. Hekla óskar Hafrannsóknastofnun og starfsmönnum hennar til hamingju með glæsilegt nýtt hafrannsóknaskip Fjórar Caterpillar 3512B aðalvélar frá HEKLU eru í skipinu 0 HEKLA HEKLA hf. • Laugavegi 170-174 • Sími 569 5500 • Netfang: hekla@hekla.is • Heimasíða: ww.hekla.is - íforystu á nýrri öld!

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.