Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.2000, Blaðsíða 36

Ægir - 01.06.2000, Blaðsíða 36
UMHVER FISMÁL Hráefnin munu aldrei ganga til þurrðar! Dr. Björn Lomborg, lektor við Há- skólann í Árósum, skrifar. Olían er að ganga til þurrðar. Enn á ný. Fyrir stuttu upplýsti Auðlindastofnun heimsins (World Resources Institute) á sjónvarpsstöð- inni CNN að á næstu 10 til 15 árum myndi skella á ný olíukreppa. (sjá. http://cnn.com/ EARTH/9605/ll/oil.supply/index.html). Vegna þess að eftirspurn eftir olíu eykst og nú- verandi oiíulindir munu tæmast mun ódýr olía verða uppurin innan tíðar. Veislunni er lokið. Framundan eru verðhækkanir, efnahagskreppa og biðraðir á bensínstöðvum. Við höfum heyrt þessa sögu áður. Við munum heyra hana á ný. En sagan er ósönn. Hvað varð um olíukreppuna? Hefur þú nokkru sinni velt fyrir þér hvað varð um olíukreppuna? Það var hrópað um allar jarðir að ekki væri til næg olía og nú mundu olxulindir ganga til þurrð- ar. En hefur þú áhyggjur núna? Staðreyndin er sú að olíukrepp- an var afleiðing þess að OPEC rík- in gátu tímabundið notfært sér aðstöðu si'na, sem nánast var ein- okunaraðstaða, til þess að hækka olíuverð. En það var ekki raun- verulegur skortur á olíu. Olían var til og nóg af henni. (Meira að segja Ehrlich er nú sammála því: Ehrlich og Ehrlich 1991:46-7.) En við höfum ætíð haft áhyggj- ur af hráefnaþurrð. Áður fyrr höfðu menn áhyggjur af að kopar og tin væru nær uppurin. í bók- inni Endimörk vaxtar frá 1972 var það rökstutt að flest hráefni mundu ganga til þurrðar. Gullið mundi klárast 1981, silfur og kvikasilfur 1985 og zink 1990 (Meadows et.al. 1972:56). Þetta hefur enn ekki gengið eftir. Veðmálið Þó hagfræðingar hafi lengi vitað að hræðslan við hráefnaþurrð byggi á röngum forsendum, heltók umrædd þurrð nánast huga gáfumanna á áttunda og níunda áratugnum. Enn í dag virðist rök- fræði bókarinnar Endimörk vaxtar liggja að baki umræðunni um auðlinda- og hráefnanýtingu. Julian Simon, hagfræðingur við Maryland háskólann í Bandaríkj- unum var orðinn ákaflega þreytt- ur á umræðunni um yfirvofandi auðlindaþurrð. Árið 1980 bauð hann hverjum sem vildi að veðja við sig 10.000 bandaríkjadölum. Veðmálið var um að verð einhvers tiltekins hráefnis eða hrávöru, myndi yrði fallið að ári liðnu, eða síðar. (Simon 1996:35:6) Umhverfistalsmennirnir Paul Ehrlich, John Harte og John Hoidren, allir frá Stanford háskól- anum f Bandaríkjunum tóku þessari áskorun áður en „...aðrir ágjarnir yrðu fyrri til“. Eða með þeirra eigin orðum: „auðfengið fé er ákaflega freistandi". Umhverfisfólkið kaus að veðja um að verð króms, kopars, nikk- els, tins og þungmálma myndi ekki falla. Tíu árum síðar átti að athuga hvort raunvirði málmanna hefði stigið eða fallið. Þann 29. desember 1990 hafði verð þessara háefna fallið, ekki aðeins saman- lagt, heldur hafði hvert hráefni um sig einnig fallið í verði. Verð króms hafði fallið um 5%, tinverð hafði fallið um heil 74% (World Ressource Institute 1997:170). Heimsendaspámennirnir höfðu tapað veðmálinu. Reyndar gátu þeir ekki unnið. Ehrlich og félagar hefðu tapað veðmáli um hvaða hrávöru sem er, hráolíu, matvörur, sykur, kaffi, bómul, við, málma eða fósföt. All- ar þessar vörur höfðu lækkað í verði. Tvær hugmyndir Ætla mætti að við lærðum eitt- hvað af reynslunni. Árið 1992 kom út bókin Handan endi- markanna, framhald Endimarka vaxtar. Enn og aftur vorum við upplýst um yfirvofandi hráefna- þurrð (Meadows er al. 1992:74 et Mynd 1 Olíuverð (miðað vió fast verðlag 1967 US$) og heimsframteiðslan. Heimild Simon et.aL. 1994, EIA AnnuaL energy Review 1996, tafLa 3.2 (hægt er að náLgast hana á http://wwweia.doe.gov/bea/dn/0897nip2.pdf). 36

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.