Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.2000, Blaðsíða 44

Ægir - 01.06.2000, Blaðsíða 44
SKIPASTÓLLINN magnsstjórntöflum. Fellikjölsstokkurinn gengur í gegnum þetta rými. Næst kem- ur rafskrúfuvélarými, með skrúfumótor í miðju og stjórnklefa úti í bakborðssíðu, og verkstæði en dælur eru bakborðsmeg- in á tankatoppi. Dieselvélarnar eru í sér- stöku rými og þar aftan við eru skilvind- ur, ræsiloftsþjöppur og ýmis vélbúnaður í sérstöku rými. Aftast í skipinu eru dag- hylki og skutgeymar fyrir eldsneytisolíu. íbúðir og vistaverur I skipinu eru káetur og íbúðir fyrir 33 í áhöfn á aðalþilfari og á bakkaþilfari. Á aðalþilfari eru, eins og áður sagði, klefar fýrir 30 manns í eins og tveggja manna klefum, öllum með síma, hljómflutn- ingstækjum, salerni og sturtu. Ibúðir yf- irmanna eru á bakkaþilfari ásamt tveggja manna sjúkraklefa. I skipinu er sérlega glæsilega innrétt- aður fundarsalur fyrir allt að 10 manns. Eldhús og matsalur eru rúmgóð og 28 manns geta matast í einu í matsal. Setu- stofan er tvískipt með stórum U-laga sófa í sjónvarpsstofu og spilaborði og sófasetti í dagstofu. Aðstaða til rannsókna er í rúmgóðum rannsóknaklefum. Helstu rannsóknastof- ur eru á milliþilfari, togþilfari og á annar- ri hæð í bakkahúsi. Mikið er lagt upp úr skiptiaðstöðu fyr- ir hlífðarföt. Skiptiklefar fyrir áhöfn og rannsóknamenn eru alls fjórar. I skipinu er lyfta frá rannsóknastofum á milliþilfari upp á togþilfar. Vistaverur er hitaðar upp með miðstöðvarofnum og loftræst- ing er í hverju rými. Brúin Brú skipsins er gríðarstór, átthyrnd með góðu útsýni til allra átta. Fremst í miðju brúnni er U-laga stjórnborð fyrir stjórn- tök og siglinga- og fiskleitartæki. Fremst á stjórn- og bakborðsvængjum brúar eru stjórntæki fyrir stjórntök í höfn. I brúnni er að finna gamla góða stýrishjólið sem er úr harðvið eins og vera ber. Aftast í brúnni er stjórnpúlt fýrir togvindur ásamt sjónvarpsskjá í lofti. Bakborðsmeginn í brúnni eru fjarskipta- tæki og þar fýrir framan setustofa með L - laga sófa. Þrír skipsstjórastólar frá NorSap eru í brúnni. Ur brú má klifra upp í útsýnisturn á þaki brúar um lúgu Lloyd's óskar Hafrannsóknarstofnun og starfsmönnum hennar til hamingju með nýja rannsóknarskipið. Þetta glæsilega skip er flokkað hjá Lloyd's Register of shipping Lloyd's Register Mýrargata 2 101 Reykjavík Sími: 551 5420 Fax: 552 5595 Tölvupóstur: reykjavik@lr.org Veffang: www.lr.org 44

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.