Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.2000, Síða 49

Ægir - 01.06.2000, Síða 49
SKIPASTÓLLIN N Þróunarsjóður sjávarútvegsins fjármagnaði smíðina Heildarkostnaður við smíði nýja hafrannsóknarskipsins er ráðgerður á bilinu 1,6 -,7 milljarðar króna. Um 300 milljónir króna greiðast úr Byggingasjóði hafrannsókna- skips, sem fengust er Hafþór var seldur til ísafjarðar á sínum tíma. Að öðru leyti mun Þróunarsjóður sjávarút- vegsins greiða fyrir skipið. Þróunarsjóðurinn hefur lokið hlutverki sínu við úreldingu skipa og fiskverkunar- húsa en greiðir á næstu árum upp lán til ríkisins sem tekin voru vegna úreldinga- styrkja, auk þess að greiða af lánum vegna hins nýja skips. Það mun taka Þró- unarsjóð 6-8 ár að endurgreiða Ríkissjóði lán sem tekin voru vegna skipsins og munu þær greiðslur verða fjármagnaðar með innheimtu gjalds af útgerðinni. Þró- unarsjóður hefur þegar greitt rúmar 1,2 milljarð króna vegna skipsins og skipið er skuldlaust við heimkomu. í 1. grein reglugerðar um Þróunarsjóð sjávarútvegsins sem sett var 14. janúar 1997 segir svohljóðandi: „Þá skal Þróun- arsjóður sjávarútvegsins taka lán til að fjármagna kaup eða smíði á rannsókna- skipi fyrir Hafrannsóknastofnunina." Ennfremur segir í 8. grein um þróunar- sjóðsgjald á fiskiskip: „Eigendur fiski- skipa, sem skráð eru á skipaskrá Siglinga- stofnunar íslands 1. janúar 1997 og leyfi hafa til veiða í atvinnuskyni, skulu greiða gjald til Þróunarsjóðs sjávarútvegs. Gjaldið er í dag 922 kr. fyrir hvert brúttótonn og að hámarki 350 þúsund krónur á hvert skip.“ Þessi gjöld skila til sjóðsins um 90 milljónum króna á ári. Aðaltekjulind Þróunarsjóðsins kemur hins vegar af sér- stöku gjaldi sem Fiskistofa innheimtir og Tímaritið í sjávarútveginum Áskrifarsími 5510500 lagt er á úthlutuð þorskígildistonn. í reglugerð um greiðslu gjalds til Þróunar- sjóðs sjávarútvegsins frá 27. júlí 1999 segir m.a.: „Utgerðir fiskiskipa er fá út- hlutað aflamark 1. september 1999 skulu greiða gjald er nemur 1.225 krónur á hverja úthlutaða þorskígildislest miðað við þorskígildisstuðla skv. 3. gr. Gjaldið fellur í gjalddaga með þremur jöfnum greiðslum; þann 1. september 1999, 1. janúar 2000 og 1. maí 2000.“ Þetta gjald er nú að skila 550 - 600 milljónum króna til sjóðsins. Islenskir útgerðarmenn greiða því um 700 milljónir á ári til Þró- unarsjóðs sjávarútvegsins og standa þan- nig undir kaupum á hinu nýja skipi. (Byggt á Útveginum, 3-tbl. 9-árg. 5/2000) Árni Friðriksson RE-200 Færum Hafrannsóknastofnun og starfsmönnum hennar bestu hamingjuóskir með nýja rannsóknaskipið SIMRAD EM 300 Multibeam dýptarmælir er teiknar hafsbotninn SIMRAD FS 903/925 Höfuðlínusónar SIMRAD EK 500 Rannsóknarmælir m/botnstykkjum 18-38-120 kHz I EHF. Eyjarslóð 7, 101 Reykjavík. Simi: 552 2111 Fax: 552 2115 Netfang: faj@islandia.is SIMRAD A KONGSBERG Company www.simrad.com WORLDWIDE HANUFACTURER OF MARINE ELECTRONICS

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.