Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1940, Side 8
lífsskilyrði til þess að vinna óskiptir að vísindalegum liugð-
arefnum sínum. Oss finnst, háskólakennurum, að mjög liafi
skort á skilning á þörfum háskóla vors meðal þings og
stjórnar um langt árabil. Það er vitaskuld, að sumt hefði
mátt betur gera á undanförnum árum af liáskólanum sjálf-
um og að margt stendur til hóta innan stofnunarinnar
sjálfrar. En hitt er víst, að liáskólinn vill sjálfur rétta fram
hönd til vinsamlegrar samvinnu við þing og stjórn, til þess
að efla þessa æðslu menntastofnun þjóðarinnar. Skal ég nú
fara nokkurum orðum um þau viðfangsefni, er ég tel nauð-
synlegt, að ráðið verði til farsællegra lykta á næstu árum.
Háskóli vor starfar nú í 4 deildum, eins og kunnugt er,
guðfræðisdeild, læknadeild, lagadeid og heimspekisdeild.
Siðan háskólinn var stofnaður, eða á 28 árum, liafa útskrif-
azt úr lagadeild 153 og úr læknadeild 166, og nú eru við
nám í lagadeild og læknadeild samtals 165, en erlendis eru
við framhaldsnám í læknisfræði nál. 35, en héraðslæknis-
emhætti á landinu eru 49, og hlýtur mönnum að vaxa i aug-
um allur þessi fjöldi, en lcvíðvænlegt má vera fvrir hina
ungu menn sjálfa, er nú stunda nám í þessum greinum,
hver lífsskilvrði híða þeirra að lokmi námi. Einkum gildir
þetta um læknanema, því að nám þeirra er langt og kostn-
aðarsamt og þeir eru sjaldnast að loknu námi hæfir til
annars en að stunda lækningar, en nú eru öll læknaembætti
i landinu veitt, og bæirnir, einkum Reykjavík, geta tæplega
tekið við fleirum. Þetta er meinsemd, er þjáir mörg önnur
lönd, og liafa menn sumstaðar tekið það til bragðs, að koma
á numerus clausus eða takmarka tölu þeirra stúdenta, er
þessar fræðigreinar vilja nejna, ýmist með því að koma á
sérstöku inntökuprófi inn i þessar deildir, eða með því að
lastákveða tölu þeirra stúdenta, er á liverju ári skulu fá inn-
töku, og er þá stúdentspróf látið ráða. Núverandi háskólaráð
hefir tekið þá ákvörðun, að beita sér fyrir því, að slikri tak-
mörkun á upptöku stúdenta í þessar deildir verði komið á
við háskóla vorn að ári liðnu, og mun biðja kennslumála-
stjórnina að hera fram breytingar á háskólalögunum, er til