Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1940, Page 10
8
náms erlendis. Eins og kunnugt er, hafa oft verið mikil van-
höld á þeim stúdentafjölda, er leitað hafa til erlendra há-
skóla, margir þeirra hafa brotið skip sín í ólgusjó erlendra
stórborga og aðrir komið lcalnir á hjarta og óvinnufærir
lieim til ættjarðarinnar. Hefir því sumpart valdið þrótt-
leysi og hæfileikaskortur, en sumpart vöntun á uppeldi og
þjálfun, en eins og kunnugt er, eru fyrstu stúdentsárin erf-
iðust ungum og óhörðnuðum mönnum, er láta hrífast af
misskildum hugtökum liius akademiska frelsis. Þjóð vor
liefir eigi ráð á að missa af mörgum ágætum mannsefnum
sínum, er sogast niður í hringiðu stórborganna, af því að
þa skorti það veganesti, er gerði þá liæfa til að herjast til
sigurs á hinum oft og tíðum erfiða námsferli. Ég lít þannig á,
að leggja beri kapp á hæði andlega og líkamlega þjálfun
hinna ungu stúdenta fyrstu 2 árin að loknu stúdentsprófi
og að þetta sé lífsskilyrði til þess að beina þeim á rétta braut
og að auðveldara sé að veita þeim þessa þjálfun liér heima
en i öðrum löndum, þar sem enginn hefir veruleg afskipti
af þeim og þeir ímynda sér í sínum sjálfbirgingsskap, að
þeir séu „yfirdrottnar i andans ríki“, en eru í raun og veru
oft og tíðum illa menntaðir og siðlitlir námsmenn.
Undirbúningsnám það, er gert var ráð fyrir i tillögum
þeim, er ég liefi getið um, nær til ýmissa fræðigreina: jarð-
fræði, dýrafræði, grasafræði, eðlisfræði, efnafræði. Enn-
frejnur verkfræði (og telst þar til stærðfræði, mekanik,
deskriptiv geometri o. fl.), stærðfræði, stjörnufræði, hag-
fræði og tungumálanám. Fylgja ítarlegar álitsgerðir þess-
um tillögum, og eru þær hirtar i Arhók háskólans 1931—32
og í Alþingistíðindum. Tillagan var samþykkt i neðri deild,
en mér er ekki kunnugt, að mál þetta liafi fengið neina af-
greiðslu af rikisstjórn þeirri, er þá sat að völdum, og mun
mörgum ef til vill sýnast, að liáskólinn hafi vænzt of mikils
stuðnings af þingi og stjórn á þeim árum, er lítil von virtist
til, að hót yrði ráðin á húsnæðisvandræðnm háskólans. En
nú horfir þessu máli öðruvísi við. Nú líður að því, að liá-
skólabyggingin verði fullgerð, og verður þar nægilegt rúm