Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1940, Page 11
9
í'yrir alla þá kennslu, sem hér er gert ráð fyrir, en auk þess
rannsóknarstofur, er létta mjög nám þeim stúdentum, er
leggja vilja stund á efnafræði og náttúrufræði. Slíku undir-
búningsnámi verður þó ekki komið á liér, nema i samvinnu
við erlenda háskóla, en full ástæða er til að ætla, að það vrði
auðsótt mál.
Enginn veit, live styrjöld sú, sem nú er hafin, geisar lengi.
Hún getur staðið í mörg ár, og er sorglegt til þess að hugsa,
að mikill hluti hinna íslenzku stúdenta, er nú stunda nám
erlendis, verða að hverfa frá námi og leggja inn á aðrar
hrautir. Flestir þessara ungu manna liafa sjálfir valið sér
sina námsgrein, sitt lmgðarefni, og eru liklegir til þess að
gera þjóðfélaginu ómetanlegt gagn, ef þeim auðnast að ljúka
námi. Þessir ungu menn hrópa nú í nevð sinni á hjálp þings
og' stjórnar, en engu síður þeir efnilegu námsmenn, er ljúka
munu stúdentsprófi á næsta vori og næstu árum. Ég er í
engum vafa um, að liver einasti Islendingur óskar þess af
heilum hug', að þessum ungu mönnum verði gert kleift að
lialda námi sínu áfram, og lítum vér Iiáskólakennarar svo á,
að mikill stuðningur gæti orðið að svipaðri undirbúnings-
kennslu við háskóla vorn, eins og gert er ráð fyrir í tillögum
þeim, er Vísindafélag íslendinga bar fram á sínum tíma og
ég' hefi minnzt á.
Ég hefi nú farið nokkurum orðum um þarfir háskóla vors
og þarfir íslenzkra stúdenta. En ég get ekki skilizt svo við
þetta mál, að ég minnist ekki á þau fræði, sem mér eru
hjartfólgnust, islenzk fræði. Þegar háskólinn var stofnaður,
var gert ráð fvrir, að íslenzkar fræðaiðkanir skyldu skipa
öndvegissess við háskóla vorn. Það er ekki mitt hlutverk,
að dæma um gildi þeirra verka, er unnin hafa verið í þess-
ari deild. En hitt hygg ég, að ljóst megi vera, að sköpuð liafa
verið skilyrði til þess, að gera háskóla vorn að miðstöð ís-
lenzkra fræða i veröldinni. Ótal verkefni eru óunnin um
sögu þjóðarinnar, bókmenntir og tungu, en höfuðheimildir
allra rannsókna, íslenzk handrit, liggja á við og dreif i ná-
grannalöndum vorum, einkum í Danmörku. Um 30 ára skeið