Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1940, Blaðsíða 59
57
sögulegra vísinda, að rekja þræði ætternis og kj'nstofns, at-
hafna og hugsana eins langt aftur í timann og unnt er. Vís-
indin telja, að mannabyggð hafi verið á Norðurlönduin á
elztu steinaldartímum, eða um 8000 ár fyrir tímatal vort, og
tvær meginskoðanir um uppruna flestra menningarþjóða á
Norðurlöndum eða austan úr Asíu berjast um völd. Önnur
er sú skoðun, er nefna mætti „ex oriente lux“, en hin er sú,
er fullyrðir, að vagga þjóðanna hafi staðið á eynni Scandza,
sem er Skandínavía, samkvæmt skoðnn hins gotneska sagna-
ritara Jordanes. Ég minnist á þessi deilumál vísindanna, af
því að sá tími kemur, að rannsóknir í fornfræði, málfræði,
trúarhragðasögu og öðrum fræðigreinum munu varpa nýju
ljósi á hina sameiginlegu forsögu Norðurlandaþjóðanna, og
af því að vér höfum fundið á undanförnum mánuðum blóð
vort renna til skyldunnar og ef til vill aldrei fyr fundið eins
til liins norræna skyldleika. Vér berum djúpa samúð í brjósti
með vorum norrænu frændum, er nú eiga í vök að verjast.
Kjmstofninn er kjölfesta hverrar þjóðar, tungan er sú taug,
er rammast bindur hana saman; hókmenntir og listir eru
fegurstu ávextir þjóðlífsins; vísindin eru vitar þeir, sem lýsa
eiga í mvrkri þokukenndra hugsana og í dimmviðrum og
stormum lífsbaráttunnar.
Á þessum örlagaþrungnu tímum hljótum vér að minnast
uppruna vors og eðlis, sögu þjóðar vorrar og þúsund ára arfs
og þess lilutverks, er þjóð vorri er ætlað. Vér fögnum því, að
þjóð vor hefur sótt fram á undanförnum mannsaldri af meira
kappi en nokkrn sinni áður, og framfarir síðustu áratuga bera
vitni um þrekmikla þjóð, er keppir að æðstu hugsjónum feg-
urðar og' siðgæðis.
Vér minnumst liins mikla foringja vors, Jóns Sigurðsson-
ar, er bar fram á fvrsta endurreista alþingi, sem haldið var
árið 1845, uppástungu sína um þjóðskóla á íslandi. Háskóli
vor var stofnaður á aldarafmæli lians fyrir 29 árum í þakk-
lætis- og virðingarskyni fvrir öll hans miklu störf fyrir þjóð
vora. Vér minnumst allra jieirra manna, er á einn eða annan
liátl liafa stuðlað að því, að þessi háskólabygging er risin