Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1940, Side 61
59
Skal nú farið nokkrum orðum bygginguna sjálfa. Er hún
73 metrar að lengd og að rúmmáli 21770 teningsmetrar. Er
óþarfi að lýsa einstökum herbergjum, þar eð háttvirtum gest-
um mun gefast kostur á að lokinni jiessari athöfn að skoða
bygginguna, og öðrum mun verða fyrirkomulagið ijóst af
myndariti þvi, er háskólinn hefir gefið út í dag. En vert er
að minnast á, að gerðar liafa verið allmargar tilraunir með
íslenzkt byggingarefni, einkum við skreyting hússins, og má
líta þannig á, að með byggingu þessari skapist tímamót í
sögu íslenzkrar byggingarlistar, ekki aðeins vegna þess, að
hús þetta mun vera veglegasta bygging landsins, lieldur
einnig vegna hagnýtingar þeirrar á íslenzku byggingarefni,
er ég' gat um og nú skal nokkru nánar lýst. Veggir í anddyri
byggingarinnar eru þaktir hellum, er gerðar eru úr skelj-
um, er muldar hafa verið og blandaðar steinlími, en síðar
stej’ptar í mótum og fágaðar. Hvelfing anddyris er gerð úr
silfurbergi, sem hefir verið lilaðið og lagt eins og tiglaskraut,
og glitrar livelfingin öll í ijósbroli í hæfilegri birtu. En loftið
utan um hvelfinguna er lagt hrafntinnumolum á bláleitum
grunni. Anddyri liátíðasals er lagt brúnum hellum, og eru
þær steyptar úr rauðu líparili og síðan fágaðar. Gólf í and-
dyri byg'gingarinnar er þakið hellum úr íslenzkum grásteini
og sömuleiðis stigar úr anddyri, og liefir grásteinn þessi
verið sagaður í vélum og síðan fágaður og olíuborinn. En
allt efni í þrep á bakstigum og víðar liefir verði gert úr ýms-
um íslenzkum steintegundum. Altari og bliðarbríkur í kap-
ellu eru gerðar úr silfurbergssteypu og steinlími, sem fágað
hefir verið. En efri brún altaris er lögð silfurbergskryst-
öllum, er hlaðnir liafa verið og gulllagðir á innhlið. Allt,
sem nú hefir verið nefnt, hefir verið gerl í fyrsta sinn hér á
landi. Sama gildir um súlurnar milli glugga miðbluta bygg-
ingarinnar að utanverðu og einnig gaflglugga; eru þær lagð-
ar hellum úr silfurbergi, er blandað hefir verið steinlími og
síðan fágað. Ennfremur eru grænu hellurnar utan um aðal-
djT alger nýung; eru þær gerðar úr grænu líparíti, er bland-
að liefir verið fínmulinni hrafntinnu. Loks er verl að geta