Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1940, Page 64
62
Vísindin efla alla dáð,
orkuna styrkja, viljann hvessa,
vonina glæða, hugann hressa,
farsældum vefja lýð og láð.
Þessi orð eiga að vera leiðarstjarna háskóla vors á ókonm-
um árum. í fullri vitund um gildi vísinda og liið göfuga starf
þessarar stofnunar mun liáskóli vor keppa að því að taka til
rannsóknar þau viðfangsefni, er geti eflt dáð þjóðar vorrar,
styrkt orkuna og hvesst viljann, svo að land og þjóð verði
farsældum vafið. Háskóli vor styðst ekki við aldagamlar
venjur, eins og margir aðrir háskólar víðs vegar um heim.
Ég tel þetta að vissu leyti vel farið. Mætti þá auðveldara
verða að sníða framtíðarskipulag og kennsluhætti eftir þeim
háskólum, er lengst eru komnir í rannsóknum og kennslu
þeirra fræða, er geta orðið þjóð vorri að mestu gagni. Há-
skóli vor verður að miða alla sína starfsemi við líf og störf
islenzku þjóðarinnar, og undir kjörorðinu „Islandi allt“ mun
hann sækja fram á því tímabili, er hefst í dag.
Um leið og þessari byggingu er lokið, vil ég flytja þakkir
inínar til húsameistara, er af frábærri elju, hugkvæmni og
snilli liefir unnið sitt mikla og vandasama starf, og til bygg-
ingarnefndar, er liefir sýnt mér óvenjulegt traust í samstarf-
inu og átt sinn mikla þátt í, hve vel hefir tekizt að leysa öll
þau vandamál, er vér höfum ræitt á 100 fundum á liðnum
árum.
I nafni liáslcólans þakka ég öllum þeim mönnum, er á einn
eða annan hátt hafa unnið að þessari byggingu. Þeir skipta
hundruðum, og er mér því ofvaxið að nefna þá. Þó vil ég
sérstaklega þakka trúnaðarmanni háskólans við bj7gginguna,
Þorláki byggingarmeistara Ófeigssyni, fyrir ágætt samstarf.
Ég kalla þá alla verkamenn háskólans og bið þá að vera
þess fullvissa, að háskólinn ber hlýjan þakklætishug til
þeirra fjTrir öll þeirra störf.
Ég fljrt þakklæti háskólans til ríkisstjórnar og alþingis,
bæjarstjórnar Reykjavíkur og allra þeirra, er á einn eða ann-