Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1940, Side 70
68
saman — og bera svip af því — hugsjónir og framkvæmdir
i samstilltri heild, sú musterisstefna, sem setur starfinu há-
leit takmörk og' réttlætir draumana með þolinmóðu og mark-
vissu starfi. Hvert hús, sem skapast í upphafi sem óljós hill-
ing í hugsun höfundarins, verður síðan að teikningu, ekki
nema á pappírnum, en rís svo smám saman eftir áætlun, er
tákn þessarar stefnu á ýmsum stigum.
Fyrir mörgum árum sýndi maður nokkur hér í Reykjavík
mér teikningu, er hann sjálfur hafði valið sér að úrlausnar-
efni við burtfararpróf úr listaháskóla. Teikningin var af liúsi
lianda Háskóla íslands. Þessi maður var Guðjón Samúelsson
húsameistari. Húsið sjálft var fjarlægur draumur, þegar
teikningin var gerð, og virtist enn vera það, þegar ég skoðaði
liana. Nú stendur liúsið liér, reyndar ekki reist eftir þessari
æskuteikningu, heldur annari enn djarfari og miklu þrosk-
aðri. En það er órofið samhand milli þessarar gömlu hug-
sjónar og hins mikla og raunhæfa starfs, sem liér hefir verið
af höndum leyst með elju og prýði. Þetta kalla ég' gæfu.
Og mér er það sérstök ánægja að fá tækifæri til þess að
óska prófessor Guðjóni Samúelssyni til hamingju með það
afrek, sem hann hefir unnið, og hafa um leið leyfi til þess
að tilkynna á þessum hátíðisdegi, að heimspekisdeild há-
skólans hefir einróma kjörið hann heiðursdoktor í heim-
spekilegum fræðum, doctorem philosophiae honoris causa,
með þeim formála, sem hér segir:
„Háskóli íslands hefir frá því hann var stofnaður til þessa
dags, eða í rétt 29 ár, ált húsaskjól á neðri liæð Alþingishúss-
ins. Það húsnæði var honum fengið til hráðaliirgða, og vita
þeir það hezt, sem högum hans eru kunnugastir, hversu ónógt
það liefir verið á allan hátt, svo að staðið liefir starfsemi
hans og viðgangi mjög fyrir þrifum. Það mundi hafa verið
höfuðviðhurður í sögu háskólans að fá full umráð rýmri og'
hentugri húsakynna, þótt miklu óríflegri hefðu verið en sú
bygging, sem nú hefir verið reist og bæði er sérstaklega
vönduð og gerð við vöxt, enda svo til ætlazt, að hún geri
kleift að færast ný verkefni í fang og fullnægi þörfum slofn-