Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1940, Blaðsíða 112
110
og firmað Höjgaard og Schultz um að taka nokkra stúdenta i vinnu
við hitaveituna, en sú viðleitni bar engan árangur. Þá var reynt að
fá loforð hjá stjórn Síldarverksmiðja rikisins, símamálastjóra og vega-
málastjóra um að veita ákveðnum fjölda stúdenta vinnu. Sá árangur
varð af þeirri málaleitun, að loforð fékkst fyrir því, að tekinn yrði
að minnsta kosti sami fjöldi stúdenta í vinnu hjá þessum fyrirtækjum
og undanfarin ár.
íþróttamál. 1 desember 1939 var í 3. sinn keppt um bikar þann,
sem stúdentaráðið hafði árið 1937 gefið til bringusundskeppni milli
framhaldsskóla i Reykjavík. Sveit stúdenta sigraði í 3. sinn og vann
þar með bikarinn til eignar.
Þá gekkst stúdentaráðið fyrir boðsundskeppni í skriðsundi milli
framhaldsskóla í Reykjavik, um silfurbikar, sem rektor háskólans,
prófessor Alexander Jóhannesson, hafði gefið til keppninnar. Fór
keppnin fram í byrjun apríl og bar sveit iðnskólanema sigur úr býtum
i þetta sinn.
Um svipað leyti var háð í Reykjavík landskeppni í handknattleik,
sú fyrsta í sinni röð hér á landi. Beitti ráðið sér fyrir þátttöku stú-
denta í keppninni og náði sveit þeirra ágætum árangri.
í samráði við rektor háskólans skipaði stúdentaráðið á síðastliðnu
vori nefnd manna, sem gera skyldi tillögur um fyrirkomulag íþrótta-
starfsemi í háskólanum i samræmi við íþróttalög þau, sem samþykkt
voru á siðasta þingi. Lagði nefndin m. a. til, að gerðar yrðu þær
breytingar á lögum háskólans, að leikfimi og sund yrðu gerðar skyldu-
námsgreinar við skólann. Jafnframt taldi nefndin mjög æskilegt, að
reist yrði sérstakt iþróttahús fyrir stúdenta.
Þegar þetta er ritað, verður ekki séð, hvað um tiliögur þessar
verður, en útlit er fyrir, að litið verði úr framkvæmdum að sinni,
vegna ýmissa örðugleika.
Lánssjó&ur stúdenta. Sú breyting varð á stjórn sjóðsins á árinu,
að próf. Ólafur Lárusson, sem verið hafði formaður hennar allt frá
stofnun sjóðsins, lét nú af störfum. Tók þá próf. Bjarni Benediktsson
sæti i stjórninni, og var hann kjörinn formaður. Fulltrúi stúdenta-
ráðsins i stjórninni, Hannes Þórarinsson, lét og af störfum á árinu,
og lcaus ráðið stud. med. Bergþór Smára i hans stað. Björn E. Árnason
cand. jur. átti áfram sæti í stjórn sjóðsins.
Upplýsingaskrifstofan. Eins og síðastl. ár veitli Ludvig Guð-
mundsson skólastjóri skrifstofunni forstöðu. Starfsvið skrifstofunnar
var stórum aukið á þessu ári. Beitti stúdentaráðið sér fyrir því, að
ríkisstyrkur til skrifstofunnar var hækkaður úr kr. 1000.00 í kr. 3500.00
árlega, enda skyldi skrifstofan framvegis einnig sinna málefnum
annara námsmanna en stúdenta. Vinnur skrifstofan nú að samning