Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1940, Síða 114
112
jieirri beiðni. Þegar þetta er ritað hafa 56 stúdentar leitað aðstoðar
ráðsins í þessu efni, en starfsemi þessari er enn eigi að fullu lokið.
Þá beitti ráðið sér fyrir því, í sanxráði við Garðstjórn, að fengnar
voru 3 stofur í kjallara háskólans til rekstrar matstofu og veitinga-
sölu fyrir stúdenta. Má vænta þess, að stúdentum verði mikið hagræði
að veitingastofu þessari.
Skömmu eftir vígslu háskólans var ákveðið að gefa almenningi
kost á að skoða bygginguna. Fyrir tilmæll rektors tók stúdentaráðið
að sér að sjá um sýningu þessa. Urn 130 menn þurfti til þess að
gæta byggingarinnar og leiðbeina sýningargestum, og voru stúdentar
fengnir til þess. Á þeim 3 dögum, sem almenningi vTar gefinn kostur
á að skoða bygginguna, komu um 15000 gestir.
Þegar hin nýja bygging háskólans var tekin i notkun, bauð háskóla-
ráðið stúdentaráði sérstakt herbergi til afnota fyrir starfseini sina,
og þá ráðið boðið með jxökkum. Hefir stúdentaráðið nú loks fengið
þann samastað, sem það hefir lengi vanhagað um, og má gera ráð
fyrir, að það bæti mjög aðstöðu þess til aukins starfs.
Fjárhagur ráðsins versnaði heldur á árinu, vegna þess að hátíða-
höldin fórust fyrir 1. desember að þessu sinni, en hagnaðurinn af
þeim er eina tekjulind ráðsins. Tjón þetta var ráðinu að nokkru
leyti bætt upp með 800 króna styrk, er háskólaráðið veitti því vegna
þessa. Kann stúdentaráðið háskólaráðinu miklar þakkir fyrir styrk-
veitinguna.
Auk þess sem þegar er getið hafði stúdentaráðið til meðferðar
ýmislegt fleira, sem of langt yrði að rekja hér nánar.
Reykjavík, 9. október 1940.
Hannes Þórarinsson.
Reglugerð fyrir stúdentagarðinn.
1. gr. — Stútentagarðurinn er reistur til þess að veita stúdentum
þeim, er þar búa, góð ytri skilyrði til þess að stunda nám við Háskóla
íslands. Garðurinn á að koma þeim i heimilisstað, þar sem þeir geta
rækt nám sitt í næði með litlum tilkostnaði. Allar þær reglur, sem
settar eru garðbúum, miða að þessu marki. í garðinum, eða áfast við
liann, er einum umsjónarmanni ætluð íbúð, og nefnist liann þar pró-
fastur. Hann hefir á hendi daglega yfirumsjón með garðbúum.
2. gr. — Garðbúar geta þeir stúdentar einir orðið, er stunda nám
við Háskóla íslands, eru ekki lialdnir af neinurn smitnæmum sjúk-
dómum og lofa að halda reglugerð þessa og aðrar reglur, er garð-
stjórn setur (Garðlög).