Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1940, Blaðsíða 118
116
Aukin kennsla við Háskóla íslands.
1. Viðskiptaháskóli.
Nú er kennt í tveim deildum og er tímafjöldinn samtals 35 á
viku, en þegar þriðja deildin bætist við, verða tímarnir á viku sam-
tals 63. Ef gert er ráð fyrir 30 vikum á ári, verður tímafjöldinn sam-
tals 1890. Ef greiddar eru kr. 5.00 fyrir hvern tíma, yrði allt kennslu-
gjaldið kr. 9450.00. Hér frá má draga eitthvað af þeirri kennslu, sem
núverandi lektorar í ensku, þýzku og frönsku annast, en nú fara 13
tímar af 35 á viku í kennslu í þessum málum og þykir þvi hæfilegt
að áætla kennslugjald á ári kr. 9000.00. Geta má þess, að nú eru aðeins
greiddar kr. 4.00 pr. tíma.
2. Verkfrœ&inám til fyrra hluta prófs.
Ivenndar eru eftirfarandi greinir: stærðfræði, mekanik, deskriptiv
geometri, teikning, eðlisfræði, efnafræði og jarðfræði. Ef gert er ráð
fyrir átta króna kennslugjaidi pr. tima, yrði allur kennslukostnaður
við verkfræðikennslu árlega kr. 8380.00, samkvæmt þeim útreikningi,
sem birtur er í Árbók háskólans 1930—31, bis. 89, en hér frá má þó
draga efnafræðikennsluna, þar eð eðlilegt virðist og sjálfsagt, að nú-
verandi kennari í efnafræði annist þessa kennslu án aukaþóknunar,
en hún nemur samtals kr. 1372.00 og verður þá allur árlegur kostnaður
við rekstur þessarar undirbúningsdeildar ca: kr. 7000.00.
3. Náttúrufræðinám til fyrra hiuta prófs.
Kenndar eru eftirfarandi greinir: dýrafræði, grasafræði, jarðfræði,
slærðfræði, eðlisfræði, efnafræði. Kostnaðurinn við þessa kennslu er
áætlaður kr. 2048.00, þvi að sjálfsagt er, að núverandi starfsmenn at-
vinnudeildarinnar, þeir Árni Friðriksson og Finnur Guðmundsson, taki
þessa kennslu að sér, og auk þess kostnaður við kennsiu í stærðfræði,
cðlisfræði og efnafræði, sem að verulegu leyti gæti farið saman við
lcennslu í verkfræði, og þyrfti því árlegur kostnaður við náttúrufræði-
nám ekki að fara fram úr kr. 6000.00.
4. Hagfræðinám.
Þar eru kenndar eftirfarandi greinir: hagfræði, borgararéttur, tal-
fræði og stjórnmálasaga, og er allur árlegur kostnaður kr. 3584.00, en
hér frá má draga kennslu i hagfræði, sem nú er komin á í lagadeild,
og er hún kr. 1536.00, og auk þess verður að gera ráð fyrir, að pró-
fessorar i lagadeild annist kennsluna í borgararétti án aukaþóknunar.
Verður þá allur kostnaður við hinar nýju deildir eins og hér segir: