Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1942, Blaðsíða 53
um (Patreksfirði). Sömdu þeir um aðgerðina. Var hún nú
framkvæmd, en ekki greidd, lieldur skrifaði skipstjóri á'
reikninginn viðurkenningu um, að hann væri réltur, og lagði
siðan af stað lieimleiðis. Gekk ferðin sljrsalaust, þar til komið
var liér inn á höfn. Skipið var þá undir stjórn hafnsögu-
manns. Er verið var að leggja að bryggju, var ferðin heldur
mikil. Rakst skipið þvi á bryggjuna, sem var eign hafnar-
sjóðs Reykjavikur, H., og var skaði á henni metinn 2500 kr.
Útgerðin hafði gengið heldur illa, og þegar þessar lirak-
farir allar bættust við, taldi Útvegsbankinn sig ekki geta
beðið lengur með að ganga að skipinu samkvæmt veðl)réf-
um sínum, sem bæði voru í verulegum vanskilum. Lét hann
því litlu síðar gera fjárnám í skipinu og síðan selja það á
opinberu nauðungaruppboði. Nam uppboðsandvirðið 80000
kr. nettó. Áður en salan fór fram, hafði seljandi vélarinnar
mótmælt því, að hún væri seld, þar sem hún væri eign sín
samkvæmt hinum þinglýsta sölusamningi, enda aðeins
greiddar kr. 10000.00 af upphaflegu söluverði liennar, lcr.
20000.00. Þannig samdist þó við IJtvegsb., að sala færi fram
á vélinni, en bankinn ábvrgðist greiðslu á eftirst. andvirðis
hennar, ef endanlegur dómur viðurkenndi eignarrétt A á
henni, og slcyldi þá sú upphæð greiðast af uppboðsandvirðinu.
Hófst nú deila milli allra framangreindra lcröfuhafa um
skiptingu uppboðsandvirðisins, þannig að R., C., D., E. og H.
liéldu því fram, að þeir ætlu sjóveðrétt fyrir kröfum sinum
og því forgangsrétt til andvirðis skipsins, en A. hélt því fram,
að þar sem hann hefði verið eigandi að vélinni, bæri sér and-
virði hennar að fullu, umfram aðra.
Samningsveðhafarnir, Fiskveiðasjóður og Útvegsbankinn,
mótmæltu kröfum hinna að þvi leyti, að þeim fylgdi ekki
sjóveðréttur, en bæði samningsveðhafarnir og þeir, sem
töldu sig eiga sjóveðrétt, mótmæltu því, að eignarréttarfyrir-
vari A. liefði gildi gagnvart þeim.
Rekið meginrök þau, sem hver aðili getur stutt kröfur
sínar, og leggið rökstuddan úrskurð á ágreininginn.
Munnlega prófið fór fram 21. og 22. maí.