Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1942, Blaðsíða 103
101
13. gr. — Hver deilcl semur lestrar- og kennsluáætlun fyrir sig. Skal
þar nákvæmlega lýst, hverjar námsgreinar séu kenndar innan hverrar
deildar, hvernig kennslugreinum sé skipt eftir kennslumisserum, hve
námstíminn sé langur, hvernig kennarar hagi kennslu sinni (með
fyrirlestrum, yfirheyrslum eða æfingum), hvernig prófum, embættis-
prófum og undirbúningsprófum sé hagað o. s. frv.
11. gr. — Deildarforsetar annast um, að til sé i tæka líð nákvæm skrá
um fyrirlestra, \firheyrslur og æfingar í kennslumisseri því, sem í
liönd fer. Deildarskýrslur þessar skulu prentaðir í einu lagi, enda gæti
rektor þess, að skýrslurnar séu í samræmi við lestrar- og kennslu-
áætlanir deildanna.
15. gr. — Hver háskóladeild ákveður, hvort eða að hve miklu leyti
kennsla skuli fara fram, meðan á prófinu stendur. Ilver háskóladeild
sker úr því, hvort öðrum en stúdentum sé heimilt að sækja æfingar og
yfirheyrslur við háskólann.
16. gr. — Hver deild ákveður, hve margar stundir hver deildarkenn-
ari skuli kenna á viku. Auk þess er hverjum háskólakennara heimilt
að halda fyrirlestra í háskólanum um sjálfvalið efni, enda segi kenn-
ari rektor til um það fyrir fram.
17. gr. — Háskólaráðið getur veitt kennurum lausn í bili undan
kennsluskyldu, allt að hálfum mánuði. Til lausnar um lengri tima og
ferðar út úr landinu cða dvalar þar, meðan stendur á kennslu, þarf
aftur á móti samþykki stjórnarráðsins, að fengnum tillögum háskólaráðs.
III. Nemendur og kennsla.
18. gr. — Hver sá, kona eða karl, sem lokið hefur stúdentsprófi við
hinn almenna ínenntaskóla i Reykjavik, menntaskólann á Akureyri eða
annan innlendan skóla jafngildan þeim, á rétt á að verða skrásettur há-
skólaborgari, gegn þvi að greiða skrásetningargjald til háskólans, enda
sé mannorð hans óflekkað. Háskólaráðið getur veitt mönnum, sem tekið
hafa próf við erlenda skóla, sem jafngildir íslenzku stúdentaprófi, rétt
til að láta skrásetja sig við háskólann.
Háskólaráðið getur þó, samkvæmt tillögum hlutaðeigandi háskóla-
deildar, kveðið svo á i samþykkt, að aðeins ákveðinn fjöldi nýrra stú-
denta skuli skráðir i deildina á ári hverju. Óski fleiri stúdentar skrá-
setningar en samþykkt leyfir, er háskólaráði heimilt að setja, i samráði
við hverja deild, ákvæði um, eftir hverjum reglum hinni tilteknu tölu
sé veittur aðgangur að deildinni.
Xú er aðgangur að liáskóladeild takmarkaður, og getur háskólaráð þá
mælt svo fyrir, að stúdentum þeim, sem i deildinni eru, skuli skylt að