Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1942, Blaðsíða 117
115
lok hvers kennslumisseris, og er stúdentum heimilt að ganga undir próf
í þessum greinum, þá er þeim sýnist, og endurtaka þau á misseris-
fresti. Próf þessi teljast til fullnaðarprófsins, þótt þau séu ekki tekin
samtímis því. Áður en stúdent tekur þátt í verklegum æfingum i bók-
færslu og endurskoðun, skal liann liafa lokið prófi í almennri bók-
færslu og iilotið að minnsta kosti einkunnina miður vel.
Áður en kandídatinn segir sig til fullnaðarprófs, skal hann afhenda
prófritgerð sína vélritaða og leggja fram skilríki um það, að liann
hafi samvizkusamlega tekið þátt í æfingum í relcstrarhagfræði og þjóð-
hagfræði, m. a. lialdið eitt erindi um efni úr hvorri greininni fyrir
sig og afhent keunaranum það vélritað, og í verklegri bókfærslu og
endurskoðun. Ennfremur skal kandídatinn leggja fram skilríki fyrir
þvi, að hann hafi tekið þátt i námskeiði i vélritun og öðlazt nokkra
leikni í því að vélrita.
Nái kandídatinn ekki einkunninni miður vel í 1., 2., 3., 4., 14. og 15.
prófgrein, stenzt hann ekki fuilnaðarprófið. Við útreikning aðaleink-
unnar reiknast einkunnir í 1., 2., 3., 4. og 19. prófgrein tvöfaldar.
50. gr. — Próf í heimspekilegum forspjallsvísindum.
Stúdentum er heimilt að ganga undir próf þetta eftir tveggja missera
nám við háskólann, en skylt að hafa lokið þvi að minnsta kosti tveim
misserum áður en þeir ganga undir fullnaðarpróf. Stúdentum í verk-
fræðideildinni er ])ó ekki skylt að taka próf þetta.
Prófið er aðeins munnlegt. Enginn stenzt prófið, ef hann nær ekki
einknnninni miður vel. Ivennarinn dæmir einn um úrlausnina.
Prófið fer frain í síðasta mánuði kennslumisseris.
Prófið má endurtaka á misserisfresti. Kennarinn lætur af hendi
prófvottorð endurgjaldslaust.
51. gr. — Próf í íslenzkum fræðum.
Prófgreinar' eru þessar:
1. Málfræði og saga islenzkrar tungu.
2. íslenzk bókmenntasaga og ritskýring.
3. Saga og menningarsaga íslendinga.
Lokapróf eru tvenns konar:
a. Kennarapróf.
b. Meistarapróf.
.4. Kennaraprúf.
Kennarapróf skiptist í tvennt.
Fyrri hluti:
Prófið fer fram i öllum þrem prófgreinum, samkvæmt nánari regl-
um, er kennararnir i íslenzkum fræðum setja, og er bæði skriflegt og
15'