Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1942, Blaðsíða 107
105
2. Liffærafræði. Kennslan er bókleg og verkleg. .Við bóklegu kennsl-
una skal eftir föngum nola uppdrætti og sýnishorn. af likams-
pörtum, Verklega kennslan er fólgin i Iikskurðáræfingum, og
skulu stúdentar leggja fram skilríki fyrir því, að þeir hafi sam-
vizkusamlega tekið þátt i æfingunum, áður en þeir ganga undir
fyrsta hluta embættisprófs.
3. Lífeðlisfræði. Kennslan er bókleg. Við bóklegu kennsluna skal
eftir föngum nota áhöld og tilraunir, en verklega kennslan er
fólgin í æfingum á lifrænni efnarannsókn í rannsóknarstófu.
4. Meinafræði. Kennslan er bókleg og verkleg. Skal nota við hana
eftir föngum sýnishorn af sjúkum liffærum. Auk almennrar sjúk-
dómafræði skal kenna aðalatriðin i sjúkdómafræði líffséranna.
Verklega skal æfa nemendur i rannsókn dánarorsaka.
í sóttkveikjufræði skal kenna aðalatriðin. Kennslan er bæði
bókleg og verkleg.
5. Heilbrigðisfræði. Kennslan er bókleg. Eftir föngum skal sýna
áhöld og þegar því verður við komið nauðsynlegar heilsufræði-
rannsóknir æfðar í rannsóknarstofu. Stúdentar skulu kyrina sér
aðferðina við kúabólusetningu hjá lögskipuðum bólusetjara í
Reykjavik.
(i. Handlæknisfræði. Kennslan er bókleg, skrifleg og verkleg. Skrif-
lega kennslan er fólgin í æfingum með eldri stúdentum í því að
skrifa ritgerðir um ákveðin verkefni í þessari grein og i því að
semja skriflegar lýsingar á sjúklingum. Verklega kennslan er
fólgin í leiðbeining í rannsókn sjúklinga og meðferð, og skurð-
æfingum á líkum.
Nota skal eftir föngum við kennsluna það verkefni, sem fæst
við ókeypis læknishjálp háskólans og i sjúkrahúsum.
7. Lyflæknisfræði. Kennslan er bókleg, skrifleg og verkleg og fer
fram á svipaðan hátl og í handlæknisfræði. Nota skal einnig eftir
föngum alla j)á verklega fræðslu, sem unnt er að fá í opinberum
sjúkrahúsum í grennd við bæinn.
X. Fæðingarfræði. Kennslan er bókleg og verkleg. Verklega kennsl-
an fer fram með æfingum á líkani.
9. Lyfjafræði. Kennslan er bóldeg og verkleg. Við bóklegu kennsl-
una skal nota safn af lyfjum og lyfjaefnum. Verklega kennslan
fer fram i lyfjabúðum i Reykjavik og er fólgin i æfingum i að
búa til lyf.
10. Réttarlæknisfræði. Kennslan er bókleg og skrifleg. Við bóklegu
kennsluna skal eftir föngum nota sýnishorn. Skriflega kennslan
er fólgin i æfingum í að senija skýrslur um réttarlæknisfræðileg
14