Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1942, Blaðsíða 125
123
8. gr. — Standi sérstaklega á, svo sem að enginn styrkhæfur nem-
andi sé á þeim tíma í háskólanum, eða að stjórn sjóðsins telji mjög
æskilegt að styrkja til framhaldsnáms mann, er fæddur er eða upp-
alinn i ísafirði eða Isafjarðarsýslum og lokið hefur námi i viðskipta-
eða verzlunarmáladeild háskólans, þá skal heimilt að veita slíkum
manni um styrk um 1—2 ára skeiS til framhaldsnáms erlendis.
9. gr. — Leggist Háskóli íslands niður sem sérstök stofnun eða
verði deild, sem nám í viðskipta- eða verzlunarfræðum heyrir undir,
ekki stofnuð fyrir árið 1965, eða verði slik deild lögð niður eftir að
hafa starfað nokkuð, þá skal fé sjóðsins renna aftur til gefandans,
Styrktarsjóðs verzlunarmanna á Isafirði, verði það félag enn starf-
andi. Yerði félagið þá ekki til, skal bæjarstjórn ísafjarðar ákveða,
hvernig vöxtum úr sjóðnum skuli varið til þess að styrkja námsmenn
í verzlunarskólum á íslandi eða erlendis, er búa sig undir sjálfstæð
verzlunar- eða viðskiptastörf, og skai, eftir því, sem við verður kornið,
farið eftir reglum þeim um styrkveitingar, er greindar hafa verið.
10. gr. — Reikningar sjóðsins skulu birtir í árbók liáskólans eða
stjórnartíðindum ekki sjaldnar en á fimm ára fresti.
11. gr. — Leita skal konungsstaðfestingar á skipulagsskrá þessari.
Útdráttur úr í'járlögum fyrir 1942.
Háskólinn: 14. gr. B. I.
a. Laun ............................................ kr. 121400.00
Þar af til Júliusar Sigurjónssonar og Kristins Ste-
fánssonar, 2400 til hvors.
h. Til kennslu í augnlækningum (Kjartan Ólafsson) .. — 700.00
c. Til kennslu í réttarlæknisfræði ................... — 400.00
d. Til kennslu í söng ................................ — 800.00
e. Til kennslu i bókhaldi ........................... —- 800.00
f. Til kennslu i hagfræði ............................ — 1200.00
g. Til íþróttaiðkana ................................. — 300.00
li. Til móttöku erlendra vísindamanna ................ — 2000.00
i. Til bókavörzlu ................................. — 6000.00
j. Til rannsóknarstofu i líffæra- og lífeðlisfræði ... — 6000.00
k. Til áhaldakaupa lianda læknadeild háskólans ....... — 1000.00
l. Námsstyrkur ....................................... — 20000.00
m. Húsaleigustyrkur ................................. — 9000.00
n. Til kennslu í efnafræði ........................... — 1600.00
o. Hiti, Ijós, ræsting og vélgæzla ................... — 20000.00
Flyt kr. 69800.00