Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1942, Blaðsíða 118
11(5
munnlegt. Aðaláherzla skal lögð á það að reyna, hvernig nemandinn
hafi fært sér i nyt þá kennslu, sem iiann hefur átt kost á, og liæfni
lians til framhaldsnáms.
Engum nemanda er heimilt að g'anga undir fyrra liluta prófs fyrr
en fjórum misserum eftir að hann hefur innritazt í heimspekisdeild.
Vilji hann taka prófið síðar en að G misserum liðnum frá innritun,
þarf til jiess einróma samþykki kennaranna í íslenzkum fræðum. Stand-
ist nemandi ekki prófið, má hann endurtaka það eftir 2 misseri. En
reynist hann þá ekki liæfur, hefur liann fvrirgert rétti sínum til þess
að ganga undir lokapróf.
Síðari liluti:
Kandídatinn skal eigi síðar en þrem misserum áður en hann gengur
undir prófið hafa valið sér, í samráði við kennarana, hæfilega af-
markað svið í einni af prófgreinunum (kjörsvið), sem hann kynnir
sér i’it í æsar.
Prófið er hæði munnlegt og skriflegt í hverri grein. Að því loknu
skal kandídatinn semja ritgerð um eitthvert atriði úr kjörsviði sínu,
sem kennarar taka til, og er honum heimilt að verja til hennar hálf-
um mánuði.
Einkunnir eru gefnar bæði fyrir munnlega og skriflega úrlausn í
hverri prófgrein og auk þess tvöföld einkunn fyrir ritgerðina, alls 8 eink-
unnir. Ennfremur skal telja meðaleinkunn úr fyrra hluta prófi með
sem tvöfalda einkunn, svo að einkunnirnar til kennaraprófs verða alls 10.
Að öðru leyti gilda bæði um fyrra og síðara liluta þessa prófs hin
almennu ákvæði um embættispróf í háskólanum.
fí. Meistarapróf.
Kandídötum, sem leyst liafa af liendi kennarapróf í islenzkum
fræðum, er lieimilt að ganga undir þetta próf. Þeir velja sér að við-
fangsefni eina af liinum þrem prófgreinum, en innan þeirrar greinar
nánar afmarkað svið (kjörsvið), sem þeir skulu rannsaka vísindalega.
Eftir að kandídat liefur gengið undir munnlegt einkapróf (tentamen)
lijá aðalkennara sínum, lil þess að sýna, að liann liafi aflað sér nægi-
legrar almennrar þekkingar í sérgrein sinni, velur hann sér i samráði
við kennarana verkefni úr kjörsviði sínu og semur um það ritgerð.
Hann ræður sjálfur, hversu langan tíma liann tekur til ritgerðarinnar,
enda sé hún vönduð að öllum frágangi. Kennararnir í islenzkum fræð-
um dæma einir um þetta próf. Einkunnir fyrir það eru hæfur (ad-
missus) og ágætlega hæfur (admissus cum egregia laude).
Þeim stúdentum, sem hyrjað hafa nám áður en ákvæði þessi ganga
i gildi, er heimilt að ganga undir meistarapróf samkvæmt hinum eldri
reglum.