Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1942, Blaðsíða 106
104
2. í nýjatestamentisfræðum:
a. nákvæmri skýringu á þessuin rituin nýjatestamentisins á grisku:
Guðspjöllunum fjórum,
Rómverjabréfinu,
fyrra Korintubréfi, Galatabréfi og
fyrra Pétursbréfi.
b. skýringu á öðrum ritum nýjatestamentisins á islenzku. Við skýr-
ingarnar skal farið yfir guðfræði nýjatestamentisins, einkum um
mikilsvarðandi og sérkennileg hugtök og meginstefnur höfund-
anna.
c. inngangsfræði nýjatestamentisins.
3. í samstæðilegri guðfræði:
a. kristilegri trúfræði,
b. kristilegri siðfræði,
c. trúarvarnarfræði og
d. játningafræði.
Tvær liinar siðartöldu fræðigreinar (3 c. og d.) skulu þó því að-
eins kenndar, að ekki sé tekið það tillit til þeirra í trúfræðikennsl-
unni, er geri óþarfa kennslu í þeim sérstaklega.
4. í kirkjusögu:
a. almennri kirkju- og kirkjulærdómssögu og
b. kirkjusögu Islands.
5. í almennri trúarbragðafræði, að svo miklu leyli sem kennslukraftar
leyfa:
a. almennri trúarbragðasögu,
b. trúarheimspeki og
c. trúarlífssálarfræði.
0. í kennimannlegri guðfræði:
a. bóklegri tilsögn í höfuðatriðum prédiluinarfræðinnar, trú-
kennslufræðinnar, sálgæzlufræðinnar og helgisiðafræðinnar.
h. verklegri tilsögn í barnaspurningum og ræðugerð ásamt ræðu-
flutningi.
7. í sérnámi þvi, er stúdent velur sér i samráði við kennara úr
kennslugreinum þeim, sem taldar eru í 1.—4. lið.
Þá veitist og stúdentum tilsögn i kirkjurétti.
Skriflegar æfingar skulu haldnar með þeim slúdenlum, sem lengst
eru komnir í öllum þeim námsgreinum, sem skriflegt próf er haldið i.
30. gr. — í læknadeildinni er kennsla veitt i þessum greinum:
a. Til embættisprófs i læknisfræði:
1. Efnafræði. Kennslan er bókleg í ólifrænni og lifrænni efnafræði
og verklegri i ólífrænni efnarannsókn.