Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.02.2001, Page 2

Stúdentablaðið - 01.02.2001, Page 2
Ballett í staðinn fyrir box Stúdentamynd mánaðarins er að þessu sinni breska myndin Billy Elliot. Hún gerist í Bretlandi 1984. Námumenn eru í verkfalli og mikil spenna í samfélaginu. Billy Elliot er lítill strákur. Mamma hans er dáin og pabbi hans og bróðir eru í verkfalli. Hann langar ekki mikið til að mæta í box- tímana í skólanum en finnur sig í balletttím- um þar sem ballcttkennarinn hvetur hann til dáða. En þessi dansiðkun vekur ekki mikla lukku hjá íjölskyldunni. Með hlutverk Billys fer Jamic Bell og hcfur hann hlotið mikið lof fyrir túlkun sína. Julie Walters leikur danskennarann en hana þekkja flestir úr Ed- ucating Rita og einnig mun hún leika í væntanlegri mynd um Harry Potter. Jamie Draven leikur bróður Biilys og Gary Levvis fer með hlutverk pabba þeirra. Myndin hef- ur verið tilnefnd til fjölda vcrðlaun, þ.á m. BAFTA-verðlaunanna, César-verðlaunanna, Golden Globe verðlaunanna og evrópsku kvikmyndaverðlaunanna. Þá vann hún t.d. verðlaun sem besta óháða breska kvikmynd- in. Stúdentar fá ntiðann á 400 krónur gegn framvísun stúdentaskírteinis og eru hvattir til að drífa sig á breska gæðamynd. Netið, netið, netið... ann 9. febrúar veitti Stúdentaráð í fýrsta sinn svokölluð Netverðlaun kennara. Stúdentar gátu haft áhrif á valið með því að senda inn tilnefningu með stuttum rökstuðningi. Skilyrðin voru þau að kennarinn væri mcð efni sitt aðgengilegt á netinu og að það stuðlaði að betri og skil- virkari kennslu. Til að gera langa sögu stutta var það Ágúst Kvaran, prófessor í eðlisefna- fræði í raunvísindadeild, sem hlaut verð- launin og tók hann á móti þcim við hátíð- lega athöfn í kennslustund. Verðlaunin voru glæsileg fartölva frá Nýherja. Og meira af netmálum. I’ennan sama dag var opnaður nýr stúdentavefur, studcnt.is. Þetta verður miðlægur vefur fyrir stúdenta- samfélagið þar sem hægt verður að nálgast efni úr Stúdentablaðinu, fréttir af Stúdenta- ráði og deildarfélögum, nýjustu fregnir af Röskvu og Vöku og svo mætti lengi telja. Stúdentar geta sent inn efni og vefurinn á vafalaust eftir að vaxa hratt og örugglcga. FS veitir verkefnastyrk Guðjón Ólafur Jónsson afhendir Ásdísi styrkinn. Verkefnastyrkur Félagsstofnunar stúdenta var veittur þriðjudaginn 13. febrúar í Stúd- entaheimilinu við Hringbraut. Árdís Elías- dóttir hlaut styrkinn að þessu sinni fyrir BS- verkefni sitt „Nuclear Spin Convcrsion in CH3F Induced by an Alternating Electric Field“ sem mctið er til BS-prófs í stærðfræði á eðlisfræðilínu. Verkefnið var unnið undir leiðsögn dr. Ara Ólafssonar eftir námsdvöl við Háskólann í Lille í Frakklandi. Verkefnastyrkur Félagsstofnunar stúdenta cr veittur þrisvar á ári. Tveir við útskrift að vori, einn í október og cinn í febrúar. Nem- endur sem skráðir eru til útskriftar hjá Há- skóla Islands og þeir sem eru að vinna verk- efni sem veita 6 einingar eða meira í grein- um þar scm ekki eru ciginlcg lokaverkefni geta sótt um styrkinn. Markmiðið með Verkefnastyrk FS er að hvetja stúdenta til að gera metnaðarfúll og markviss lokaverkefni. Jafnframt að kynna frambærileg verkefni. Styrkurinn nemur kr. 100.000. Nýsköpunarsjóður námsmanna auglýsir eftir umsóknum um styrki fýrir sumarið 2001 Lumar þú á góðrí hugmynd? I’á cr um að gera að hrinda hcnni í fram- kvæmd og sækja um styrk til að vinna að skapandi rannsóknarverkefni í sumar. Ný- sköpunarsjóður námsmanna er nú að hefja tíunda starfsár sitt en hann var stofnaður 1992 til þess að útvega áhugasömum nemendum sumarvinnu við metnaðarfull og krefjandi rannsóknarverkefni. Sjóður- inn hefúr fyrir löngu getið sér gott orð fyrir vinnu þeirra mörg hundruð náms- manna sem starfað hafa á vegum hans og niðurstöður verkefnanna sent þeir hafa lcyst afhendi. Ávinningur af starfinu I’ar sem Nýsköpunarsjóður námsmanna telst nú fúllgildur rannsóknasjóður með gott orðspor felur verkefnavinna í tengsl- um við sjóðinn tvímælalaust í sér mikinn ávinning fyrir þá sem verkefnunum tengj- ast, hvort sem um er að ræða nemendur, kennara, stofnanir eða fyrirtæki. Sjóðurinn gerir miklar kröfiir til umsókna og verk- cfnavinnu og tclja mörg fyrirtæki og stofnanir það viðurkenningarstimpil á eig- ið starf að fá styrk úr sjóðnum. I’á er það ncmendum tvímælalaust til framdráttar að hafa unnið að rannsóknastarfi, t.d. þegar sótt cr um framhaldsnám í erlendum há- skólum og þcgar komið cr út í atvinnulíf- ið. Mörg dæmi eru um að nýsköpunar- verkcfni hafi vclt af stað viðameiri þróun- arverkcfnum innan fyrirtækja scm fjárfest hafa í hagkvæmnisathugunum ungs fólks með aðstoð Nýsköpunarsjóðs náms- manna. Oft eru það áhugasömustu nem- endur hvers skóla scm sækjast cftir að vinna við rannsóknir á cigin fræðasviði á sumrin. Vinna á vegum Nýsköpunarsjóðs hefur því verið kjörinn vettvangur fyrir- tækja til að mynda tcngsl við ncmendur scm hafa oft leitt til atvinnutilboða að námi loknu. Að Iokum ntætti nefna að mörg verkefni eru unnin í samvinnu nem- enda, fyrirtækja og háskólastofriana. Ahugsasömum er bent á að sækja um styrk á heimasíðu sjóðsins og þar cr cinnig að finna allar helstu upplýsingar. Slóðin er: www.hi.is/nem/nyskopun. Umsóknarfrestur rcnnur út 10. mars. Kosningar til Stúdentaráðs og háskólafundar árið 2001 Samkvæmt 18. gr. laga um Stúdentaráð Háskóla íslands auglýsir kjör- stjórn hér meó staðsetningu kjördeilda. Sú nýbreytni veróur höfð við kosningarnar 27. og 28. febrúar nk. aó notast veróur við miðlæga kjörskrá. Því geta stúdentar valið sér kjör- deild eftir hentugleika en eru ekki bundnir við ákveðnar kjördeildir. Þó er einungis þeim stúdentum sem staddir eru í Valsheimili, Safnaðar- heimili Fríkirkjunnar og Landspítalanum Fossvogi þegar kosið er heim- ilt að greiða atkvæói þar, þó að þeim sé heimilt að greiöa atkvæði í öðrum kjördeildum. Kjördeildum veröur komið upp á eftirfarandi stöðum: 1. Aðalbygging 2. Árnagaröur 3. Oddi 4. VR-II 5. Lögberg 6. Háskólabíó 7. Hagi 8. Grensás 9. Skógarhlíð 10. Eirberg 11. Læknagarður 12. Valsheimili 13. Safnaðarheimili Fríkirkjunnar 14. Þjóðarbókhlaðan 15. Landspítalinn Fossvogi Utankjörfundaratkvasðagreiðsla verður á skrifstofu Stúdentaráðs föstudaginn 23. febrúar og mánudaginn 26. febrúar frá kl. 12.00 til kl. 15.00 báóa dagana. Kjörstjórn 2 stúdentablaðiö - febrúar ‘01

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.