Stúdentablaðið

Ukioqatigiit

Stúdentablaðið - 01.02.2001, Qupperneq 6

Stúdentablaðið - 01.02.2001, Qupperneq 6
q Stúdentablaðið 2. tbl. febrúar 2001 Útgefandi: Stúdentaráð Háskóla íslands Ritstjórí: Katrín Jakobsdóttir Rrtnefnd: Bjöm Gíslason, Erla Tryggvadóttir, Guðrún Ögmundsdóttir, Hjörtur Einarsson, Ingibjörg Lind Karlsdóttir og Þorbjörg Gunnlaugsdóttir. Aðrír höfundar efnis: Ema Ertingsdóttir, Halldóra Björt Ewen, Haukur Ingvarsson, Hulda Guðmunda Óskarsdóttir, Jóhanna Krístín Jónsdóttir, Kendra Stokkamp og Stefanía G. Kristinsdóttir. Framkvæmdastjórí: Haukur Þór Hannesson Augtýsingar Markaðsmenn Ljósmyndin Ritstjórí og ritnefnd Umbrot: Reykvísk útgáfa ehf. Prentvinnsla: Morgunblaðið Netfang rítstjóra: katrinja@hi.is Hinn eini sanni veruleiki? Um þessar mundir eru mjög í tísku sjónvarpsþætt- ir þar sem aöalhetjurnar eru venjulegt fólk í óvenju- legum aöstæöum. Hér á ég viö þá þætti þar sem um þaö bil tíu einstaklingum, sem erui í hlutverki sjálfs sín, er komiö fyrir á eyöieyju eöa látnir búa saman í kommúnu. Síöan eru allar gjörðir þeirra teknar uþp á band og sendar út. Nýjasti þátturinn kallast Stóri bróöir og þar er hægt aö horfa á sam- býli nokkurra einstaklinga í beinni útsendingu á netinu allan sólarhringinn. Áhorfendur geta síöan valiö hver eigi aö hastta í þættinum og þannig er hann gagnvirkur. Stórar fjárhæöir eru í húfi fyrir þátttakendur enda kannski ekki nema von aö fólki sé borgað fyrir aö fórna þannig einkalífi sínu. Þaö er nákvæmlega þaö sem máliö snýst um; aö missa réttinn til aö vera einn, veróa sameign áhorfenda og geta ekkert gert í friöi, ekki einu sinni stundað kynlíf, enda vonast framleióendur þáttanna til aó fá nú fyrstu alvöru samfarirnar í beinni án þess aö þær séu fyrirfram skiþulagöar. Fólk hefur fullt leyfi til aö vera í þáttum sem þess- um og aö sama skaþi til að horfa á. En hvaö segja vinsasldir þáttanna okkur um vestrasnt samfélag? í þeim renna saman sýnihneigö (exhibisjónismi) og gægjufíkn (vojörismi). Þeir sem vilja lifa lífi sínu til sýnis fá þarna tækifæri til þess og eru aö græöa ósköpin öll á því og hinir geta fylgst meö fólkinu aö lifa alveg sérdeilis óspennandi lífi, lesa dagblöðin, boröa morgunmat, drekka kaffi, raka sig, fara í baö, leggja kapal, horfa á sjónvarpiö og allt hitt sem er ekkert spennandi þegar maöur gerir þaö sjálfur. Allt vegna spennunnar um hvaö geti gerst hjá venjulegu fólki viö óvenjulegar kringumstæöurl Þörfin fyrir afþreyingu á Vesturlöndum er gífurleg. í þessum þáttum viröist svalað áöur óþekktri þörf venjulegs fólks til aö horfa á venjulegt fólk og hafa um leiö vald til þess aö senda þann heim sem manni líkar ekki vió. En af hverju sprettur þessi þörf? Listræn blekking leikinna kvikmynda og sjónvarps- efnis er löngu horfin. Viö vitum öll að það sem ger- ist á hvíta tjaldinu eöa sjónvarpsskjánum er blekk- íng, unnin af fagmönnum, hönnuó fyrir vissan markhóp. Listamenn hafa á undanförnum árum unnið meö þennan blekkingarleik, t.d. í kvikmynd- inni Truman Show, sem flallaöi um mann sem liföi lífi sínu í sjónvarpsþætti án þess aö vita af því. Leikhúsin reyndu einnig aö finna svar viö afhjúpun blekkingarinnar meö því aö koma á laggirnar svokölluöu spunaleikhúsi þar sem allt gat gerst en eigi aö síöur voru fagmenn í hverju hlutverki og leikstjóri á bak viö tjöldin. Hér er alvöru fólk í al- vöru aöstæóum - og allt getur gerst. Ekkert hand- rit til aö fylgja, enginn leikstjóri til aö segja fólki aö leika svona eöa hinsegin. En eru þessir þættir jafn raunverulegir og við höldum? Auövitað er hug- myndavinnan á bak viö þá gríöarleg; vafalaust stendur risastórt „teymi" fagmanna á bak viö þættina, mælir vinsældir þeirra, hugsar um mark- hópinn, kemur þátttakendum á framfæri í fjölmiöl- um og svo mætti lengi telja. Þessir þættir eru því ekkert síöri blekking en aörir þó aö aöalsmerki þeirra sé raunveruleikinn án allra blekkinga. Og hvers konar raunveruleiki er þaö? Er hann ekki jafnmikil blekking og blekkingin sjálf? Katrín Jakobsdóttir Um íslensku og íslenskar bókmenntir Stúdcntablaðið óskar Gyrði Elí- assyni hjartanlega til hamingju með íslensku bókmenntaverð- launin. Fyrirkomulag verðlaunanna var reyndar vafasamt að þessu sinni; einni manneskju var falið að tilnefna bækur til verðlauna í flokki fagurbókmennta (og sama gilti um flokk fræðibóka þó að það væri reyndar annar aðili) á þeirri for- sendu að einn stjórni betur en fleiri! I’að er afskaplega undarlegt að einræðisform henti sérstaklega vel á þessu sviði frekar en öðrum og er þessi röksemdafærsla mjög varhugaverð, sérstaklega í eyrurn þeirra sem er annt um lýðræðið. Einnig kom fram sú gagnrýni að tilnefningarnar væru kannski hefðbundnari en ella sök- um þessa fyrirkomulags og má taka und- ir að þær komu ekki mikið á óvart. Það var svo þriggja manna nefnd að lok- um sem valdi verðlaunabókina sjálfa. Gyrðir er vel að verðlaununum kominn, smásögur hans í Gula húsinu voru fjarskalega vel skrifaðar draumkenndar sögur og þótti mér honum takast best upp í að lýsa bernskunni og þeim tilfinn- ingum sem tengjast henni. Að lokum mæli ég með að lesendur Stúdentablaðs- ins kynni sér skáldsöguna Svefnhjólið eft- ir Gyrði sem er skrifúð á jafn kjarnyrtri og fallegri íslensku og flest önnur verka hans. Lesandinn er tekinn nteð í ferð sem leiðir hann að rykugum landamærum lífs og dauða, draums og veruleika. Sagan er einnig afskaplega íslensk; sjór og kaffi eru áberandi í umhverfinu sem er ýmist íslenskt sjávarþorp eða Bergstaðastrætið. Um leið einkennist sagan af vissurn fá- ránleika og sjálfshæðni sem gera hana skemmtilega aflestrar. Katrín Jakobsdóttir Börnin á Mánagarði Stúdentablaðið ákvað á dögunum að líta í heimsókn á Mánagarð sem er annar af tveimur leikskólum sem Félagsstofnun stúdenta rekur. 64 börn á aldrinum eins til sex ára eru á Mánagarði. Þrjár deildir eru á leikskólan- um, Tröllahellir, Hulduhóll og Álfa- steinn. Tilgangur heimsóknarinnar var að ffæðast um þennan nýstárlega leik- skóla þar sem engu er hent og gamlir hlutir öðlast nýtt líf. Umhverfisvæn stefna Á leikskólanum er öllum matarafgöngum haldið til haga og þeir settir í eins konar endurvinnslukistu úti í garði. Dagblöð- um og íblöndunarefnum er bætt við matarafgangana og eftir tvo til þrjá mán- uði verður til fyrirtaks mold sem verður til dæmis sett í matjurtagarðana sem börnin sjá um. Vart þarf að taka það fram að börnin taka einnig fúllan þátt í flokk- un og í cndurvinnslustarfmu sjálfu. Pappír er líka endurunninn á Mánagarði. Blautir vettlingar heyra sögunni til Góð aðstaða er á leikskólanum. Mér fannst gaman að sjá þurrkofn fyrir blaut og rök föt, til dæmis eftir rigningarsam- an dag. Börnin þurfa því ekki að fara aft- ur í blautu vettlinganna heldur fara þau í fötin heit og þurr, beint úr ofninum, þegar ferðinni er heitið á vit ævintýranna, þ.e. út að lcika. Pctta eru framfarir frá bernsku minni! Af hverju get ég ekki veríð blóm? Heimspeki, listsköpun og endurvinnsla eru ofarlega á baugi á leikskólanum. Spurningum á borð við: „Get ég verið blóm og get ég verið banani?“ er varpað fram í heimspekitímum sem eru tvisvar í viku fyrir eldri nemendur. Listamaður kemur einnig og setur börnunum fyrir verkefni vikunnar. Gamlar mjólkurfernur og eggjabakkar öðlast nýjan tilgang og úr þeim eru búin til falleg listaverk. Starfsmenn Mánagarðs eru allir mjög sérhæfðir á sínu sviði. Heimspekingur, þroskaþjálfi, leikskólakennarar, kennari og uppeldisfræðingur eru meðal þeirra sem starfa þar. Mánagarður hefúr þarfir stúdenta að leiðarljósi. Lengdur viðverutími barna í kringum próf, til dæmis um helgar, er hluti af þeirri þjónustu sem leikskólinn býður upp á. Sjáðu hvað ég get! Á Mánagarði er stefna við lýði sem heit- ir „Sjáðu hvað ég get“. Tilgangur hennar er að hvetja börnin til þess að vera sjálfstæðari, til dæmis að reima sjálf og fleira. Að sögn leikskóla- stjórans, Kolbrúnar Harðardóttur, er stökkið frá leikskóla í grunnskóla það mikið að nauðsynlegt er að búa börnin undir það. „Börnin eru í bómull á leikskólunum. Við göngum á eftir þeim, rennum upp úlpunni og hjálpum þeim á ýmsan hátt. En þegar þau fara í sex ára bekk eiga þau að hjálpa sér sjálf og það getur reynst mörgum erfitt. Þau eru einfaldlega óvön því. Þess vegna ákváðum við að reyna að örva börnin til þess að verða sjálfstæðari og hjálpa sér sjálf. Það verður enginn til þess að reima skóna fyrir mann í sex ára bekk. Þá tekur alvaran við,“ segir Kol- brún og brosir. Með lögum skal land byggja Börnin bjuggu til land sem hlaut nafnið Demantaland og var lýðræðislega kosið um það nafn. „Margar góðar hugmynd- ir komu um nafn á landinu en Demanta- land bar sigur úr býtum. Börnin eru mjög ánægð með það nafn. Ástæðan fyr- ir því að börnin æda að nema land í Demantalandi og gerast Demantingar er sú, að tuttugu börn eru að fara í sex ára bekk næsta haust. „Þegar maður hættir á Mánagarði og byrjar í sex ára bekk, fer maður til Demantalands,“ segir Kol- brún. Hugmyndin er ákaflega falleg og gerir tilhugsunina að fara í skóla spennandi og skemmtilega. „Upprunalega hugmyndin á bak við Demantaland var sú að láta börnin átta sig á mikilvægi stofnana í þjóðfélagi og það kom okkur skemmtílega á óvart hvað börnin voru ákveðin í því að hafa lög og reglur í Demantalandi. Börnin brutu heilann í þeim tilgangi að finna góð lög fyrir landið og sömdu samræmd- ar leikreglur fyrir það.“ Þegar krakkarnir hætta í leikskólanum er alveg ljóst að við þeim tekur forvitni- legur og skcmmtilegur heimur sex ára bekkjarins í Demantalandi. Stúdentablaðið óskar þeim góðrar ferðar og góðs gengis! Erla Tryggvadóttir 6 stúdentablaðið - febrúar ‘01

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.