Stúdentablaðið - 01.02.2001, Page 27
Hvemig á maður að komast í geimstuð?
1) Gott ráð til að komast í geimstuð er að
horfa á Stjörnustríðsmyndirnar, einkum
þrjár eldri myndirnar. Þar er hönnun
gcimúditsins mótuð af hvítum og gráum
geimförum sem gefa ffá sér hvin þegar þau
þjóta á milli stjarnanna (þrátt fyrir að ekkert
hljóð heyrist í geimnum í alvörunni). Geim-
urinn cr samt ekki aðalsögusviðið hcldur
mismunandi plánetur sem jafnan eru dregn-
ar sterkum litum. Þar er íspláneta, mýra-
pláneta, frumskógarpláneta og síðast en ekki
síst eyðimerkurplánetan þar sem siðspilling
ræður ríkjum í þeim vinjum sem þar eru
settar upp af manna völdum. Alls kyns
geimfrik með gadda á hausnum, súrefnis-
grímuandlit, fílsrana eða skordýraaugu gefa
slíkum geimvinjum „speisað lúkk“.
2) Þá er einnig liægt að lesa The Hitch Hi-
kers Guide to the Galaxy og þær bækur sem
henni fylgdu eftir Douglas Adams en þær
taka á öllum geimklisjunum. Þar birtast
plánetusmiður sem fékk fyrstu verðlaun fyr-
ir að hanna Noreg, geimvera sem kom sem
njósnari til jarðar en misskildi nafnakerfið
og tók sér bílanafn, kýr sem gangast upp í
því takmarki að vera slátrað og bragðast vel
og síðast en ekki síst hryllilcg geimskrýmsl
sem kvelja fanga með því að lesa fyrir þá eig-
in kveðskap sem gengur fram af öllum,
nema jarðarbúanum sem er ýmsu vanur!
3) Fyrstu tvær myndirnar í Alien-syrpunni
eru ffábær gcimhryllingur. Fyrsta myndin
var brautryðjandaverk í þeirri tcgund mynda
þar sem fólk lokast inni á afmörkuðum stað
með skrýmsli. Aðalhetjan er kona sem er
einmitt mjög algengt í geimafþreyingu og
sýnir að þó að jörðin sé kannski ekki undir
stjórn kvenna þá er alheimurinn það. Næsta
mynd var þó enn femínískari, þar var sk-
rýmslið líka orðið kona.
4) Star Trek þættirnir þóttu merkilegt fram-
tak á sinni tíð, þrátt fyrir endurteknustu
málvillu í enskri tungu (þar sem nafnháttur-
inn „to go“ er klofinn af atviksorðinu
,,boldly“). Þættirnir einkenndust af stækri
kvótahyggju þar sem í áhöfninni þurfti að
vera kona, blökkumaður, Austurlandabúi,
geimvera með kynleg eyru og hjartað í bux-
unum (í bókstaflegri merkingu) en öllu var
samt stjórnað af hinum engilsaxneska hvíta
karlmanni. Star Trek myndirnar eru hins
vegar fremur hlægilegar þar sem leikarnir
eru ýmist orðnir of gamlir (t.d. læknirinn)
eða of feitir (t.d. Kirk kafteinn). Nýrri kyn-
slóð Star Trek þátta gefúr þeim gömlu ekk-
ert eftir og nú fá konur eða svertingjar að
stjórna. í Voyager-þáttunum ræður
kafteinninn Katrín Janeway ríkjum og er
hún mikill geimtöffari.
5) The Rocky Horror Picture Show er
geimfantasía af bestu gerð en herra kynusli
póstmódernískra tíma, þ.e. Frank n'Furter,
er auðvitað geimvera. Ergó: Póstmódernísk-
ur kynusli kemur úr geimnum.
6) Öllu óvæntara er að Litia hryllingsbúðin
reynist líka vera geimfantasía. í lokin tekur
sagan óvænta stefnu og pottaplanta reynist
vera illskeytt mannæta utan úr geimnum.
7) Besta geimsápa allra tíma er þó líklega
Geimsvínin eða Pigs in Space, sem var fast-
ur liður í Prúðuleikurunum. Hún sýndi að
geimurinn er ekki síðra svið en hvað annað
fyrir mannleg átök og tilfinningar þar sem
Hlunkur kafteinn tók jafnan rangar ákvarð-
anir þrátt fyrir góð ráð ungfrú Svínku og
geðveika vísindamannsins Júlíusar Furðu-
flesks. Líklega ein af bestu sápum innan
Prúðuleikaranna þrátt fyrir harða samkeppni
frá spítalaþættinum um lækni sem hafði far-
ið í hundana (og var sjálfúr hundur).
Hvemig á maður að detta úr geimstuði?
1) Horfa á geimmyndir sem taka sig of al-
varlega, t.d. Contact, Close Encounters of
the Third Kind og 2001 - a Space Odyssey.
Allir eru sammála um að sú síðastnefnda eigi
að vera ein besta mynd allra tíma, en hún er
svo langdrcgin að fáir halda vöku yfir henni.
Close Encounters hóf bylgju af vemmileg-
um geimverumyndum þar sem verurnar eru
góðar og miklu betri en menn. Það þurfti
geimhryllinginn Mars Attacks til að alvöru
geimstuðboltar gætu tekið gleði sína á ný,
en þar er ekki beinlínis boðuð friðsamleg
sambúð kynþátta.
2) í myndinni Invasion of the Body
Snatchers fmnast risavaxnir fræbelgir þar
sem geimverur eru að rækta menn sem ciga
að yfirtaka þá sem fyrir eru. Maður nokkur
finnur ffæbelg með sjálfúm sér og þá finnst
skýring á því hvers vegna fólk hegðar sér
undarlega (áður fyrr voru það djöflar í lík-
amanum sem ollu geðkvillum, en nú eru
það geimverur). Þetta er eins konar klónun-
armartröð þar sem hið meinta einstak-
lingseðli fólks glatast. Allt er þetta frekar
hallærislegt en þó eru hinir upphaflegu
handritshöfúndar saklausir af kjánalegum
endi myndarinnar þar sem yfirvöld sem
hingað til hafa neitað að trúa sögu læknisins
sem leggur saman tvo og tvo (einkennilegt
að yfirvöldin skuli ekki gera það!) finna
óvæntar sannanir og kalla út heimavarnar-
liðið.
3) Myndir um yfirvofandi ógn úr geimnum,
t.d. Armageddon, þar sem lið fábjána er sent
út í geim vegna þess að „þeir eru svo góðir
að bora!“ í þeirri mynd segir faðir við dótt-
ur: „Ég sé eftir því að hafa alið þig upp á ol-
íuborpalli“ og er sú ályktun ekki óvænt.
Ekki geimunnendum upp á bjóðandi.
4) Að tala við fólk sem finnst allt þetta
geimdót „bara rugl“.
Katrín Jakobsdóttir
English News Update
Elections for the Student Council and the
University Meeting will be hcld on Febru-
ary 27 and 28. Information about the El-
ection Meeting and places to vote is to be
found on page 2. This edition contains the
candidate lists for the student parties,
Röskva and Vaka, as wcll as their main issu-
es and interviews with the party leaders.
Professor Ágúst Kvaran of the Science
Faculty was awarded the Student Council’s
Web Award on Friday, Fcbruary 9. This is
the first time tiie Web Award is presented
and its purpose is to inspire teachers to use
the Web for their courses in a useful mann-
er. Students were given a chance to vote
and Ágúst came in first. A ncw student
website was opened thc same day,
www.student.is. There you can find mater-
ial from the Student Paper, news from the
University community, news about the
Student Council, student societies in the
different faculties and the political groups
Röskva and Vaka.
A congress about the Reykjavík Airport
was held on February 13 by the Student
Council and the Student Society. This was
in reaction to the lively discussion that has
bccn centercd on the question whether to
move the airport somewhere else. Students
feel that this question concerns everyone at
the University because of its vicinity to thc
airport.
Among the items in this edition is a
Round-Table discussion of the experience
of being a university student when you’re
thirty-plus. Another is thc wonders of the
universe in an interview w'ith 3 students
who’ve been studying the astral cluster MS
1621+2640 and have discovered many
interesting things about its influence on
light from distant galaxies. The Student
Paper recommends that people enjoy the
wondcrs of spacc by watching space movies
in thc February twilight.
The Studcnt Movie-of-the-Month is Billy
Elliot, set in Britain in 1984. Miners are on
strike and at the same time a boy called
Billy wants to study ballet instead of the
usual boxing. His brother and fathcr, who
are both on strikc, are not happy about
this. Julie Walters and Jamie Bell have the
leading roles. The film has been extremely
popular and received the British Film
Award in addition to being nominated tbr
tiie Golden Globe Award. Tickets cost 400
ISK for Univcrsity students, but you must
remember to show your studcnt ID.
stúdentablaðið - febrúar ‘01 27