Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 15.11.1916, Síða 3

Dýraverndarinn - 15.11.1916, Síða 3
DÝRAVERNDARINN 8.3 Hann lék á Tuma, langa vegi meö látum ginti ’ann hreiöri frá. En strákur fundvís uppgafst eigi °g eggjum loksins tókst aö ná. Og kjóa-móðir mædd sér fleygöi í mosa-tó og rak upp vein. Þá hló hann, — fyrri’ en augað eygöi hann áfram laut og tók upp stein. í veslings fuglinn honum henti og hæfði, — annan vænginn braut. — En fingur guös úr blásal benti á blóði drifna smára-laut. * Og tímar liöu. — Búi besta hann bjó meö konu’ og dætrum tveim. Þótt illur þætti, ástúö mesta í öllu þó hann sýndi þeim. — Til kirkju öröugt er aö sækja um illfær gil í Bröttuhlíö: meö feiknar vexti fjalla-lækja þar falla skriður ár og síö. — Frá kirkju’ á heimleiö kvöld eitt fer hann meö konu sinni og dætrum tveirn. í klárinn slær hann, kátur er hann, og kippkorn ríöur undan þeim. Þá tekur alt i einu’ aö drynja með ægigný aö baki hans, og ofan virðist hlíöin hrynja sem hugur skjótast fljúgi manns. Hann lítur viö, — þá veltist skriðan á voöa-flugi örskamt frá, og ástvinina alla viö hann í einu skilur — saman þrjá.

x

Dýraverndarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.