Dýraverndarinn - 15.11.1916, Blaðsíða 15
DÝRAVERNDARINN
95
eg meö þessari grein væri aö ráöast í laumi á G. S. út af deilum
þeim, sem á millum okkar hafa fariö í „Visi“ í sumar.
J ó h. Ögm. O d d s s o n.
Til kaupendanna.
Um leiö og afgreiöslan sendir frá sér síöasta blaöiö af þess-
um öðrum árgangi „Dýraverndarans", þá vil eg ekki láta ónot-
aö þaö tækifæri og þakka öllum hinum einstöku kaupendum
og duglegu útsölumönnum fyrir fljót og greiö skil á andvirði
blaösins og útbreiðslu þess, sem er orðin geysimikil á ekki
lengri tíma. Sömuleiðis fyrir hin mörgu hlýlegu bréf, bæöi frá
körlurn og konum, ungum sem gömlum. Mörg þau bréf sýna
best aö málefni þaö, sem blaðið fjallar urn, á oröið ítök i hjört-
urn fjölda manna, sem betur fer.
ÞEIR FÁU útsölumenn og kaupendur, sem ekki hafa borgað
blaðiö enn þá, eru vinsamlega beönir um að greiöa þaö
fyrir n. k. nýár, því undir skilvísri greiöslu kaupendanna
er tilvera blaösins aö rniklu leyti komin. — Og þeim, sem
skulda fyrir i. árg. blaðsins, verður ekki sendur næsti (3.)
árg. þess, fyr en þeir hafa borgað skuld sína.
ÞEIR SEM hafa pantaö 2. árg. blaðsins og ekki fengið, sök-
um þess aö hann er á þrotum, en hafa sent borgun fyrir
hann, eru beðnir að hafa biölund meö peninga sína, þar
til fullnaöarákvöröun verður tekin um þaö, hvort prentað
veröur upp aftur eða ekki, — ef svo færi aö þaö yrði ekki
gert, þá verður sú greiðsla skoöuö sem borgun fyrir 3.
árgang blaðsins — eða vér vænturn að svo megi vera, en
tvö síðustu blööin af þessum árg. fá kaupendurnir i kaup-
bæti (sjá síðasta blað).
UM NÆSTA NÝÁR verðu upplag blaösins stækkað aö mun
(líklega upp í 3000), svo hinum mörgu góöu og duglegu
styrktarmönnum blaösins er óhætt að taka á móti áskrif-
endum að næsta árgangi.
ENN Á NÝ viljum vér biðja rnenn um, ef þeir ættu eitthvaö
óselt hjá sér af blaðinu, sérstaklega af 2. árgangi þess,
og þeir héldu að þeir ekki gætu selt það, að endursenda
það hið bráöasta til afgreiöslunnar aftur.