Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 15.11.1916, Qupperneq 14

Dýraverndarinn - 15.11.1916, Qupperneq 14
94 DÝRAVERNDARINN um, hvar hann skyldi taka sér sæti. Settist hann loks í bekk- inn viö hliö hringjarans. Eigi notaöi hann lengi þaS sæti, þótt velkomið væri. Flaug hann svo lengra inn eftir kórnum og yfir um þvert altariS. Raskaði hann lítið eitt rósemi ljósanna með vængjaþyt sínum, en eigi sloknuðu þau. Því næst flaug hann utar eftir kirkjunni og út um dyrnar. Skamma stund hlýddi litli fuglinn á helgar tíðir, beið þess eigi, að út væri hringt! En vonandi hefur dvöl hans i kirkj- unni orðið nógu löng til að bjarga lifi hans í þetta sinn. En ræninginn dirfðist ekki að koma inn í helgdóminn; kom aðeins inn í dyrnar og sneri svo við. Hefur ef til vill horfst i augu við prestinn og engan samúðarsvip séð; runnið síðan af hólmi. Kirkjan varð í þetta sinn það, sem hún átti að vera, — griða- staður smælingjans, en ekki „ræningjabæli‘.‘ p.2 FUNDUR í Dýraverndunarfélagi íslands var haldinn 8. þ. m. Meðal ann- ars, sem þar gerðist, var þetta: Samþykt var að félagið héldi útbreiðslufund í vetur ekki seinna en í febrúar og byði á fund- inn nemendum af kennaraskólanum, kvennaskólanum, hús- stjórnarskólanum og skólunum á Laugavegi 2 og Bergstaða- stræti 3. — Ennfremur var samþykt í einu hljóði svohljóðandi tillaga: „Fundurinn ályktar að mótmæla því, að ráðherra hefur leyft útflutning á hestum eftir 1. nóvbr. þ. á. og þar með brotið gildandi lög, og felur fundurinn stjórn Dýraverndunarfélagsins að birta þau mótmæli á þeim tíma, er hún telur heppilegast." LEIÐRÉTTING. Að gefnu tilefni skal þess getið að grein sú, sem birtist í siðasta blaði „Dýraverndarans", um mann sem hefði flutt út léleg hross, að með henni var ekki átt við hr. Gunnar Sigurðs- son frá Selalæk. Grein þessi var skrifuð í fyrra vor og þá send ritstjóra „Dýraverndarans" til birtingar, en hefur legið hjá honum þar til um daginn, og var beint stíluð til manns, sem þá var í Dýraverndunarfélagi íslands og fékst við það að kaupa og selja hross, þótt hann hafi nú hætt við þá atvinnu. Þessa vil eg láta getið sökum þess, að menn hafa haldið að

x

Dýraverndarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.