Dýraverndarinn - 01.11.1973, Blaðsíða 8
Fréttir frá
Evrópuráðinu
Evrópuráðið sendir öðru favoru
út Fréttabréf, sem segja frá þeim
fjölmörgu þáttum, sem ráðið
vinnur við. 1 Fréttabréfi nr. io/
1972 segir frá ýmsu undir fyrir-
sögninni „Náttúra", sem væntan-
lega vekur áhuga dýravina:
1 Noregi lækkaði ríkisstjórnin
tölu þeirra ísbjarna, sem mátti
skjóta á veiðitímabilinu 1972/73
við Svalbarða (Spitzbergen) úr
170 í 85 og faefur að auki ákveðið
að faéðan í frá verði fimm ára al-
gjört bann á öllum ísbjarnaveið-
um.
*
ítalski landbúnaðarráðherrann
hefur enn á ný sett fram tillögu
um bann við netaveiði á fuglum.
Bannið verður þó fyrst að lögum,
ef það verður samþykkt af ríkis-
stjórninni og þinginu.
-K
Danski landbúnaaðrráðherr-
ann hefur borið fram tillögu um
friðun á mörgæsum í fimm ár og
takmörkun á veiði á skógarsníp-
um.
*
Á alþjóðlegu móti í St. Helier
á eyjunni Jersey, sem haldið var
vegna uppeldis í dýragörðum á
dýrategundum, sem faætt er við
útrýmingu, komust menn að
þeirri niðurstöðu að dýragarðar,
stórir og smáir, skaða dýraheim-
inn í stað þess að hjálpa. Af þeim
290 dýrategundum, sem hætt er
við útrýmingu, eru aðeins fjórar
sem heppnaðist að rækta upp í
dýragörðum á þann hátt að hægt
var að sleppa þeim aftur út í
þeirra eðlilega umhvcrfi.
-K
1 trúnaðarskýrslu, sem unnin
er af vísindamönnum frá átta
löndum og með þátttöku frá „The
International Council for Ex-
ploration of the Sea“ og frá „The
International Commission for
North Atlantic Fisheries", er
staðhæft að þorskveiðar í Atlanz-
hafinu verði að minnka um helm-
ing, ef nokkur von sé til að varð-
veita þorskstofninn í þessu hafi.
-K
Hópur sérfræðinga, sem hittist
í ágúst 1972 á Guelph háskólan-
um í Kanada undir forsæti „The
8
DYRAVERNDARINN