Dýraverndarinn - 01.11.1973, Side 16
I London kunna menn að meta
þessi góðu dýr að verðleikum,
vegna tiginnar framkomu og
þeirri vináttu, sem kettir launa
húsbændum sínum með.
Fiskar, sem byggja hreiður.
Mörgum finnst það dáiítið
skrítið, að tiJ skuli vera fiskar,
sem byggja sér hreiður og gæta
eggja sinna líkt og fuglarnir. En
svona er þetta nú samt. Lítur út
fyrir, að fiskarnir séu ekki jafn
sauðheimskir og af er látið. Það
munu vera þrjár fisktegundir hér,
scm byggja sér hreiður. Þær eru:
hrognkclsi, hornsíli og steinsuga.
Hrognkelsin koma fyrst upp að
ströndinni seint í febrúar og síð-
an smátt og smátt næstu 5-6
mánuðina til þess að hrygna.
Foreldrarnir byrja á því að út-
búa hreiður eða hrygningarstöðv-
ar. Til þess velja þau helzt stór-
grýttan botn, vaxinn meiri eða
minni þaragróðri, og á dýpi, sem
er 20 metrar eða grynnra. Eggin
eru stór og eru límd saman í einn
kökk, sem komið er fyrir í eins
konar hólfi á milli steina. Hæng-
urinn er á varðbergi meðan
hrygnan er að gjóta, frjóvgar egg-
in að því starfi loknu og tekur
síðan við gæzlu eggjanna, en
lofar kvenfiskinum að lifa upp á
sitt hopp og hí. Á milli þess sem
hann „stiur á eggjunum", gætir
hann þess að reka á flótta hvert
það átvagl, sem sækist eftir eggj-
unum, en auk þess ber hann stöð-
ugt eggjunum súrefni með því að
tifa eyruggunum í sífellu yfir
hreiðrinu. Eftir 2-3 vikur er klak-
ið um garð gengið, og þá yfirgef-
ur karlfiskurinn ungana, því að
nú telur hann hlutverki sínu lok-
ið.
Hornsílin lifa bæði í söltu og
ósöltu vatni og eru hinir mestu
snillingar í hreiðurgerð. Hrygn-
ingin fer fram í maí og júní, en
áður en hún hefst, tekur hængur-
inn að safna saman fíngerðum
grænþörungum og öðrum vatna-
jurtum. Ber hann jurtirnar í
munni sér og raðar þeim hverri
ofan á aðra, og lagar þær þannig
til, að úr verður eins konar kúla
með holu í miðjunni. Hreiðrið er
ýmist í sandbotni eða fest upp á
stöngla stinnra vatnajurta. Jurt-
irnar líma þeir saman með húð-
slími eða með saurnum úr sér,
Þegar um óvenjulega gilda
stöngla er að ræða. Einkennileg-
ast við þetta hreiður er það, að
andspænis innganginum, sem er
á hliðinni, er byggingin svo los-
araleg, að auðvelt er að brjótast
þar í gegn. En allt er með ráðum
gert.
Steinsugur eru langir og mjóir
fiskar. Þeir teljast til hring-
munna. Munnurinn er kringiótt-
ur og sogmunnur með fjölmörg-
um smáum tönnum. Steinsugur
lifa á holdi og blóði annarra
fiska með því að sjúga sig fasta
á þá. Sumar steinsugur lifa ein-
göngu í fersku vatni, aðrar bæði
í sjó og ósöltu vatni. Sú stein-
suga, sæsteinsugan, sem finnst
hér við Jand, gengur upp í ár til
að hrygna. Hjónin lijálpast að
við hreiðurbygginguna, en hreiðr-
ið er mjög einfalt, eins konar
steinbygging, ekki ósvipuð og
hringleikahús í iaginu. Oftast eru
það fjölmargir steinar, sem fisk-
urinn notar til hreiðurgerðarinn-
ar, og verður hann að flytja þá
alla í munninum.
Friðun fugla
Svar til Friðriks:
Á Islandi skulu allar villtar
fuglategundir vera friðaðar allt
árið með þeim undantekningum
er hér greinir:
a) Allt árið: kjói, svartbakur,
sílamáfur, silfurmáfur, hrafn.
b) Frá 20. ágúst til 15. marz:
dílaskarfur, toppskarfur, grágæs,
heiðagæs, blesgæs, hclsingi.
c) Frá 1. september til 19. maí:
álka, langvía, stuttnefja, teista,
lundi.
d) Frá 1. septembcr til 31.
marz: lómur, fýll, súla, stokkönd,
urtönd, rauðhöfðaönd, grafönd,
duggönd, skúfönd, hávella, topp-
önd, skúmur, hvítmáfur, bjart-
máfur, hettumáfur, rita.
e) Frá 15. október til 22. des-
ember: rjúpa.
Friðun tekur einnig til eggja
og hreiðra þeirra fugla, sem njóta
algerrar eða tímabundinnar frið-
unar. Þó eru sérákvæði um veiði,
eggja- og ungatöku, þar sem slíkt
telst til hlunninda jarða.
Frá 15. apríl til 14. júní eru öil
skot bönnuð nær friðlýstu æðar-
varpi en 2 km, nema brýna nauð-
syn beri til. Aldrei má skjóta fugl
í fuglabjörgum.
Ákvæði um friðun eru í lögum
um fuglaveiðar og fugla friðun
frá 15. apríl 1966. Menntamála-
ráðherra hefur yfirumsjón aUra
mála, er varða fuglaveiðar og
fuglafriðun.
16
DÝRAVERNDARINN