Dýraverndarinn - 01.11.1973, Síða 23

Dýraverndarinn - 01.11.1973, Síða 23
voru kýrnar í mesta blíðviðri að narsla hána á túninu, og svo voru þær að vinna úr káli, sem eftir lá i rófnagörðunum, og yfir þeim virtist vera ró og kyrrð. Þetta var síðara hluta dags, °g ég sat inni á tali við foreldra 171 ína. Okkur varð nokkuð hverft et við heyrðum, að nautgripur beljaði ógurlega úti á hlaðinu. í fyrstu kom okkur í hug, að það rnundi vera eldra nautið, er gylli svo. En þó varð ckki um það villzt, að beljið þetta var alls kostar ólíkt venjulegum hrinum í nauti. Mér varð litið út um gluggann. Ut honum sá um hlaðið. Og þar blasti við mér harla óvænt sýn. Huppa stóð á sama bletti og urn sumarið, þar sem kálfurinn hafði verið lagður, hjá hestastein- inum, og beljaði ódæma mikið. Foreldrar mínir fóru þegar út til hennar og ég með þeim. Henni var að öllu leyti svo farið, sem um sumarið. Hún belj- aði með kvalarfullri angist - tarin streymdu um andlit hennar, ekki síður en þá. Við feðgar komum á hana bandi og tosuðum henni í fjósið. Og út var hún ekki látin framar það haust. Fyrst í stað var ég að reyna að velta því fyrir mér, hvað mundi hafa orðið til þe ss, að vekja Huppu harmana aftur svo greypi- iega. En ég fann enga lausn á því. Mér, sem þá var innan við tvítugt og óráðinn, fannst helzt reynandi að leita úrlausnar á þessu hjá föður mínum, er orðinn var ráðinn og roskinn. En það fór nokkuð á líkan veg hjá hon- um 0g mér. Hann hugði sig ekki geta fundið þá lausn á þessu, er hann mætti telja einhlíta. En býraverndarinn hann gat sér tii, að Huppa mundi hafa orðið reikað um blettinn hjá hestasteininum. Þá hefði at- burðirnir þar um sumarið komið henni í hug, og harmurinn og treginn brotizt fram á nýjan leik, sár og æstur. Allir vita, hve undra smáir at- burðir geta ósjaldan svipt hulu gleymskunnar af leyndustu minn- ingum manna, hvort sem þær fela í sér unað eða sorg, og það svo, að fylkingar horfinna þátta lífsins raðast á vitundarsviðið og hasla sér þar völl, með gleði eða hryggð, allt eftir því, hversu liðni tíminn hefur í hendur búið ó- komnum ævidögum. Og ég get varla varizt því, að láta mér til hugar 'koma, að öllu geti verið á sömu leið snúið í vitund dýranna. Öndverðlega í banalegu föð- ur míns var það eitt sinn, að ég sat hjá 'honum, og vorum við að ræða saman. Þar komu niður orð hans, að hann minntist á harm- stríð Huppu, sjö eða átta árum áður. - Því er svo farið, mælti fað- ir minn og starði fram fyrir sig, að margt af verkum þeim, sem okkur prestunum er ætlað að inna af höndum, er býsna erfitt. Þegar við eigum að hughreysta syrgjandi ekkjur, einstæðar og ráðþrota, eða mæður, sem horfa með vonleysi og hryggð eftir látnum börnum sínum, þá er okk- ur erfitt að finna þá leið að hjörtum þeirra, sem er fær og stefna megi til nokkurrar hugg- unar. Hann hvíldi sig hér til að tala litla stund, en mælti svo: En eitt af erfiðustu verkunum, sem á mig hafa komið, var að finna leið að því, að hugga harmi lostna, mállausa móður - hana Huppu. ÞiS sjáiS hvaS l>arf að' gera félagar. Hér er augljóslega um ojfjölgun aS rœSa! 23

x

Dýraverndarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.