Dýraverndarinn - 01.11.1973, Page 24

Dýraverndarinn - 01.11.1973, Page 24
ÞORSTEINN ERLINGSSON: Sigurður mállausi Siggi litli var orðinn æði stálp- aður, áður en honum datt í hug, að hann væri einn af bæjarfólk- inu, eða teldist til mannanna. Stóra fólkið var alltaf hvað hjá öðru, en skipti sér aldrei af hon- um, nema þá til að þvo honum eða kemba, stjaka við honum, þegar hann varð fyrir því, og slá á hendurnar á honum, þegar hann tók eitthvað, sem það vildi ekki. Smáfólkið vildi hann ekki held- ur hjá sér; hann var alltaf til taf- ar og vandræða í leiknum og fékk á ýmsu að kenna hjá því, bæði viljandi og óviljandi og varð síðast svo hræddur við syst- kini sín og ístöðulaus, að hann þorði lítið að skipta sér af þeim að fyrra bragði, og fékk nær aldrei að vera með þeim. Hann var lengstum einn í skot- inu fyrir aftan rúmið að rísla við kjálka sína, völur og leggi, og búa til úr þeim burstir og laupa, eða hann sat þar flötum beinum og reri sér, og það margoft stund- unum saman. En einn dag varð dálítil breyt- ing á veröldinni hjá Sigga litla. Næstelzti bróðir hans bar hann nauðugan heim af svellinu hjá stöðullæknum, því að börnin brunuðu sér þar í fluginu og þoldu önn fyrri hann þar á klaka- torfunni; hann heyrði ekkert og gat ekki varað sig, þegar hann sneri baki við. Hann reyndi fyrst að streitast á móti, en lagði svo árar í bát, eins og vant var, og lét fara með sig inn. Hann titraði af reiði og ædaði að skreiðast inn í krókinn sinn og gráta þar, en þar innar frá var þó móðir hans og stúlkurnar, svo hann fleygði sér þversum yfir eitt rúmið utar frá með andlitið ofan á köttinn. I rauninni var það tilviljun, að hann lenti þarna á kisu. Það hafði ckkert dálæti verið milli þeirra þangað til; hann hafði ein- mitt hermt það eftir hinum, að ónáða hana þegar hún svaf og toga í skottið á henni, þegar því var við komið, svo að hún flýði hann eins og hin börnin. Nú lá aumingja kisa kyrr; svona var hún væn; hún var sú eina, sem hann mátti vera hjá, og núna var það gott; héðan af ætlaði hann alltaf að fara til hennar og gráta hjá henni. Og svo runnu tárin þarna langa stund yfir vesöld hans og vanmætti og fóru öll ofan á kisu. Bf til vill voru hann og kisa sér í hóp. Honum hafði aðeins aldrei dottið það í hug fyrr en núna. Fólkið allt var sér í hóp og rak hann í skotið; alls staðar var hann fyrir því. En það fór líka alveg eins með kisu; hún átti í rauninni hvergi fritt, nema þarna í rúmi vinnumannsins, og stund- um varð hún að hröklast þaðan undir rúm eða út, og þó gerði kisa aldrei neinum manni neitt fremur en hann. Einstöku sinnum var henni strokið, eins og þegar konurnar, sem komu, klöppuðu stöku sinnum á kollinn á honum eða struku á honum vangann. Hann fór að strjúka kisu; hún var öll orðin vot af tárunum og leit við og lygndi augunum, og hann sá, að hún vissi um allar hans raunir og að hann var að gráta af því, að hann var rekinn úr leiknum og gat hvergi verið nema hjá henni. Hann þurrkaði nú af sér tárin á ermi sinni og var lengi að tala við kisu. Hún sagði með augunum: „Þú ert vænn, þú mátt alltaf koma, þeg- ar þú ert rekinn í burtu.“ Þegar Siggi kom inn í krókinn, var eins og hann ætlaði varla að kannast við sig þar. Baðstofan var líka breyétt. Nú átti hann vin utar í rúmi, sem hann gat ailtaf talað við, hvað sem hann vildi. Hann langaði nú að fá kisu til sín í skotið, og hreiðraði þar fall- ega um hana í úlpunni sinni, en kisa fór von bráðar í burtu og sagði honum, þegar hann leit framan í hana, að ihún vildi held- ur vera utar í rúminu, og reyndi hann þá ekki oftar að ná hcnni til sín í skotið. Augu málleysingja hafa góðan tíma til að kynnast bænum, og því sem í honum er. Þó að Siggi væri að dútla við eitthvað, var eins og hann þyrfti ekki að horfa á neitt nema með öðru auganu og gæti haft hitt til alls annars. 24 DÝRAVERNDARINN

x

Dýraverndarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.