Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.12.1977, Blaðsíða 9

Dýraverndarinn - 01.12.1977, Blaðsíða 9
Minningasj ó ður Guðrúnar Guðfinnu Þorláksdóttur Schram Gísli Björnsson. hefur unnið við, bæði hér í Reykja- vík og víðar, má t. d. nefna Hótel Reykjavík, Safnahúsið, Vífilstaða- hæli o. fl. o. fl. Dýraverndarinn vill minnast þessara mætu hjóna, því þau voru miklir dýravinir og víst er um það, að margan bitann og sopann á frú Guðrún heitin niðri í svöngum smádýrum í Austurbænum í Reykjavík, sem ofar voru moldu á fyrra helmingi þessarar aldar, en eins og áður er sagt andaðist hún árið 1950. Blessuð sé minning þeirra. G. H í vörslu S. D. í. er minningar- sjóður sem ber þetta nafn. Sjóð þennan stofnaði eiginmaður Guð- rúnar Gísli Björnss. er hún lést fyrir rúmum 25 árum. Þau hjónin höfðu gert með sér erfðaskrá og ákvað Gísli að hlutur Guðrúnar skyldi renna í slíkan minningarsjóð er hann dæi. Hjón þessi voru barn- laus og voru þau ákaflega miklir dýravinir. Gísli Björnsson lést snemma á þessu ári, þá orðinn mjög aldrað- ur eða rúmlega hundrað ára. í þennan minningarsjóð runnu þá allmiklar eignir. M. a. var hús- eign seld og var Reykjavíkurborg kaupandi. Nokkuð af andvirði hennar var greitt með skuldabréf- um. En þegar allt er upptalið og skuldabréfin greidd nemur arfur þessi rúmum tveim milljónum. í skipulagsskrá þessa minning- arsjóðs er kveðið á um að nota megi 85% af ársvöxtunum til hjúkrunarheimilis fyrir dýr Og mun þessi sjóður áreiðanlega koma dýraspítalanum vel þegar loks kem- ur að því að hann verður opnað- ur. Stjórn S.D.Í flytur öðrum erf- ingjum Gísla Björnssonar og Guð- rúnar Schram hugheilar þakkir fyr- ir velvild og vinsemd er á skipt- unum stóð. Sérstakar þakkir flytjum við Birgi Einarssyni, Breiðdalsvík, en hann var skiptaforstjóri. J. S. DÝ RAVERND ARINN 9

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.