Dýraverndarinn - 01.12.1977, Síða 24

Dýraverndarinn - 01.12.1977, Síða 24
rönd að neðan. Að öðru leyti er fuglinn allur hvítur að neðanverðu ofan frá hálsi að framan og aftur að stéli, en neðri stélþökurnar eru svartar, og aftasti hluti kviðarins, framan við stélið. Stélfjaðirnar eru móleitar, tvær þær, sem eru í mið- ið, úr hófi langar. Neðan frá, beggja megin utan á hálsinum, gengur hvít rák eða taumur upp hálsinn og nær hér um bil upp að höfði. Er þetta gott einkenni, sem greinir grafandarstegginn frá öllum öðrum andarblikum, sem hér eru. Nef og fætur eru grábláir. Ondin er öll dökkmóleit hið efra; aftan á höfðinu er fiðrið með breið- um, rauðmóleitum jöðrum; á bak- inu með ljósryðlitum jöðrum og kroti, nema aftast er það hvítleit- ara. Spegillinn með rauðmóleitum blæ eða grænn á köflum, að fram- an með mjóum, ryðhvítum jöðrum, en hvítum að aftan. Að neðan öll móhvít með dökkum dröfnum. Ungarnir eru á haustin svipaðir móður sinni, en á bakinu eru þeir með móleitum jöðrum á fiðrinu. Grafendurnar einkenna sig frá öðrum frændum sínum á því hve þær eru hálslangar og hálsinn frekar mjór, og eru þær allar grann- vaxnar. Þær eru helst í víðlendum mýrum og flæðum og á vötnum og tjörnum. Hreiðrum þeirra svip- ar til stokkandarhreiðra í því, að í þeim er fremur lítill dúnn. Hann er sótlitur. Þær fara að verpa seinni hluta maí hér sunnanlands í meðal- ári, en síðar, ef harðara er. Þær eiga 7—10 egg, hvítgul eða græn- leit, frekar lengri til endanna en önnur andaregg. Útungunartíminn er erlendis um 22-23 dagar, og má gera ráð fyrir, að hann sé eitthvað lengri hér. Ungarnir eru orðnir fleygir 7 vikna. Grafendur virðast jafnvígar á dýra- og jurtafæðu, enda þótt þær éti meira gras á sumrum. Hér éta þær mikið af mýi og mýflugulifrum, smásnígl- um, smákröbbum o. fl. Þær eru frekar styggar, fljúga hart með tíð- um vængjaburði, og geta stungið sér á sundi, ef í hart fer og ekki er undankomu auðið á annan hátt. Séu þær í hóp með öðrum öndum, eru þær jafnan íyrstar til þess að hefja sig til flugs, ef styggð kemst að þeim. Heimkynni grafandanna erlend- is eru á norðanverðum meginliind- unum, sem liggja að Norðuríshaf- inu. Þó er hún ekki hánorræn og fer sjaldan langt norður yfir heim- skautsbaug. Hér í álfu verpir hún ekki sunnar en um miðja álfuna. Vestanhafs, í Norður-Ameríku, eru heimkynni náskyldrar tegundar (D. acuta tzitzihoa, Vieill.). Einkenni: Langur, mjór háls og kroppurinn allur grannvaxinn. Langt og mjótt stél, einkum á blikanum. Höfuð og háls móleitt, með langri, hvítri rák utan á háls- inum á blikanum, sem er að mestu leyti hvítur að neöanverðu. Stygg- ar, teygja upp háls og höfuð og skyggnast um og aðvara aðra fugla um Ieið og þær hefja sig til flugs. Það er enn eitt athugavert við grafendurnar, að þær, einkum blik- arnir, eru lengur í hinum svo- nefnda „felu'búningi en aðrar grasendur. — „Felu'-búningurinn verður til að afloknum varptíma, og eru margar endur lítið lengur í þeim búningi en á meðan þær eru í sárum. Grafandablikar eru í eins konar felubúningi langt fram á haust, og fara þeir oftast héðan í þeim búningi. (Stærð: v. 242-280 mm, stélið á blikanum allt að 200-210 mm, nefið 45-53 mm. Þyngd 700-1200 gr.). SKEIÐONDIN (Spatula clyþeata (L)). Skeiðöndin virðist hafa numið land hér á síðastliðnum 10—12 ár- um. Fyrr hefir almenningur eigi veitt henni eftirtekt, svo að orð hafi farið af, en líklegast hefir hún slæðst hingað við og við áður, en ávallt verið sjaldgæf og stað- bundin, og svo er hún enn. Nú verpir hún helst við Mývatn og í Laxárdal, S-Þing. einstöku sinnum og hefir hún sést á Svartárvatni hjá Svartárkoti í Bárðardal, svo að lík- ur eru til, að hún sé dreifð víðar um þessar slóðir. Erlendir fræði- menn hafa þóst sjá hana hér á stöku stað norðanlands fyrir löngu síðan, en höfðu þó eigi hendur á henni. Þótt skeiðöndinni hafi fjölg- að allmjög á síðari árum, er eigi vitað, hvort hún mundi haldast hér við, ef tíðarfar spilltist frá því, sem nú er, og svo er um fleiri inn- flytjendur hinna síðari ára. Skeiðöndin dvelst helst við vötn og tjarnir, á síkjum og við sef- bakka. Hún er ósvikin grasönd í lifnaðarháttum, en reytir minna af botngróðri á grynningum en aðrar frænkur hennar. Sést hún því sjald- an standa á höfði í vatninu, eins og grasendur gera jafnan. Hún er lítið gefin fyrir að kafa, en tekur meiri fæðu en aðrar þess háttar endur á yfirborði vatnsins, því að hún veiðir svifið, smádýr og jurtir, flest allt meira og minna smásætt, sem í vatninu er, og eins síar hún smáæti úr botnleðju í pollum, tjörnum og mýrum. Nefið, sem hún ber nafn af, er sérstaklega vel til þess lagað að safna slíkri fæðu, stórt, óvenju breitt (eins og skeið- arblað) og „tannskíðin" lengri en venja er til. Hún étur einnig eitt- hvað af skordýrum, t. d. flugur, mý o. fl. 24 DÝRAVERNDARINN

x

Dýraverndarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.