Dýraverndarinn - 01.12.1977, Side 17
Tryggvi Gunnarsson
Hann var brautryðjandi íslenskrar
dýraverndar og nú eru ekki nema
fá ár þar til balda má upp á aldar-
afmceli „Dýraviiiarins", en það
blað byrjaði Tryggvi að gefa út
árið 1885. - Ekki var upplag þessa
blaðs stórt - nokkur hundruð ein-
tök - en sem betur fór héldu flestir
kaupendttr þess því saman og létu
binda í bók. „Dýravinurinn" kom
út allt fram á árið 1914, en ncesta
ár, eftir að útgáfn hans lauk, tók
blaíið „Dýraverndarinn" við og
hefur komið út óslitið síðan. -
Margar greinar hafa verið skrifað-
ar urn Tryggva Gunnarsson og
einnig hafa Ijóðskáldin sent hon-
um kveðjur sínar í bundnu máli. -
Hér kemur eitt þessara Ijóða:
TRYGGVI GUNNARSSON
bankastjóri - d. 1917
„Varaðu þig, Valnastakkur,
fallinn er hann Fjögratnaki!"
I.
Þrútnar himinn, þrumar sjár,
þetta fjórða neyðar-ár,
titrar íslands trú og von -
Tryggvi fallinti Gunnarsson.
Óð um þennan afreksmann
yrki hver sem betur kann;
stirðna tekur strengur minn
stefjum kveðja fornvin sinn.
Hann var íslands óskabarn,
alinn þess að græða hjarn,
hefði því til gagns og góðs
gefið hvern sinn dropa blóðs.
Trúr og hreinn og traustur var,
Tryggva nafn með réttu bar;
fjögramaka þoldi þraut,
þúsund köppum ruddi braut.
Fornmannsþrótt og hagleikshönd,
hugvitssnilli, líf og önd,
viljans táp og vinnugjörð
vígði sinni fósturjörð.
Aldrei spor af orku dró,
ofurhugi’ á landi og sjó,
reisti brýr og grýtta grund
gerði fagran blómsturlund.
DÝRAVERNDARINN
17