Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.12.1977, Page 23

Dýraverndarinn - 01.12.1977, Page 23
ur eru algengar um land allt. Þær eru jafnt við ár, vötn, tjarnir eða smálæki, en helst vilja þær vera á gróðurmiklu votlendi, einkum ef þar eru smápollar og tjarnir. Þær eru farfuglar og koma hingað um eða eftir sumarmál og fara oft ekki fyrr en um veturnætur, ef vel viðrar. Fullorðinn urtandarbliki er dökkmórauður á höfði og á ofan- verðum háisinum. Framan frá aug- um og aftur á hnakka og niður á hálsinn að aftan er breið, græn rák eða litarbelti, með sterkri, purpuralitri málmslikju á fiðrinu. Aftan í hnakkanum er auk þess allstór, blásvartur blettur. Framan frá nefrótum beggja megin er mjó, gulhvít rák upp vangana, upp að græna litarsvæðinu umhverfis aug- un. Þar klofnar þessi gulhvíta rák og verður að jöðrum utanum græna litinn, bæði að ofan og neðan. Neðri hluti hálsins og meirihluti baksins er gráleitt, með svartleit- um og hvítum þverrákum og kroti. Vængirnir eru mógráir, en spegill- inn er svartur og grænn, með sterk- um málmgljáa á fjöðrunum. Til endanna er svarti liturinn jaðraður með hvítri rák, en græni liturinn ineð svartri og hvítri rák. Að ofan og neðan eru jaðrar spegilsins gul- hvítir. Stélið er grátt, og yfirleitt er grái Iiturinn mest áberandi. Að neðanverðu er grunnliturinn hvít- ur, en á bringunni eru allþéttar, kringlóttar, svartleitar dröfnur, en svartar eða gráar þverrákir eru á síðunum og um lærin. Nefið er svartleitt. Fæturnir mógráir. Kvenfuglinn, iindin, er móleit að ofanverðu eða svartmóleit; flestar fjaðrirnar eru þar með ryð- litum, bogadregnum krotlínum og jöðrum. Dökk rák er yfir um augun. Að neðanverðu er hún öll hvítleit; neðst á nálsinum eru all- þéttar, dökkar dröfnur og niður um bringuna. Ungviði á fyrsta ári er líkt á litinn og kvenfuglinn, en eru allir móflekkóttir að neðanverðu. Á ungum kvenfuglum ber lítið á græna litnum í speglinum. Urtöndin fer að verpa seinni partinn í maí, ef tíð er góð. Hreiðr- ið er venjulega milli þúfna og hul- ið grasi. Það er talsvert mikið af dúni í því, og er dúnninn dökkleit- ari en dúnn þeirra tegunda, sem þegar hafa verið nefndar. Eggin eru 6-12 að tölu, gulhvít á litinn og fremur lítil. Um útungunartímann og þroskaferil unganna er lítið vitað með vissu, og er álitið, að því muni vera eitthvað svipað farið og hjá stokköndum. Urtöndin er meira á ferð á kvö'din og um nætur en á daginn, og mun það stafa af því, að þá telur hún sig óhultari og lætur rökkrið hlífa sér. Þó er hún eigi verulega stygg. Þær hópa sig oft margar saman, einkum á haustin, og eru þá mun styggari. Fljúga þær þá upp allar í senn, sem ein væri, og sópar þá af þeim, því að þær fljúga bæði hart og títt. Þær eru meðal duglegustu flugfugla, og talið, að þær fari oft talsvert á ann- að hundrað km á klukkustund. Heimkynni urtandarinnar er- lendis eru víðast hvar um norð- læg lönd; er hún svo að segja um alla Asíu og Norðurálfu, nema allra nyrst. í Norður-Ameríku er náskyld undirtegund. Urtöndin et farfugl hér á íslandi, enda þótt hún þrauki stundum af veturinn hér sunnanlands, þegar tíð er góð, en hitt er aðalreglan. Merktar urt- endur héðan hafa komið fram einna oftast á Bretlandseyjum. Einkenni: Minnsta öndin, sem hér er um að ræða, dökkmóleit á höfði, en græn í vöngum. Neðri stélþökurnar eru gulleitar, og er það oft áberandi. Ondin er svart- móleit og sýnist dökk á flugi að ofanverðu, en allhvít að neðan- verðu. Þegar margar fljúga upp í hóp, hegða þær sér oft eins og fjörufuglar, þ. e. allur hópurinn hreyfist eins og ein heild, og ber þá einna mest á því, hversu þær eru ljósar á kviði, samanborið við aðra líkamshluta. (Stærð: v. 174—181 mm, n. 32- 40 mm. Þyngd 340-400 gr.). GRAFÖNDIN (Dafila acuta acuta (L)). Graföndin er frekar algeng víð- ast hvar á landinu. Einkum er hún í öllum hinum stærri láglendishér- uðum, bæði norðanlands og sunn- an. Þó er eiginlega hvergi margt af henni, en það er og óvíða, sem hún finnst ekki, ef að henni er leitað. Hún er farfugl hér og kem- ur snemma vors, er venjulega kom- in um sumarmál, sjaldan síðar. Hún er í flokki hinna langförlari farfugla, því að vetrarheimkynni hennar eru í Miðjarðarhafslönd- unum og í Norður-Afríku (Súdan). Merktar grafendur héðan frá ís- landi hafa komið fram á Bret- Iandseyjum og írlandi, Þýskalandi, Hollandi, Ítalíu og Albaníu. Fullorðinn grafandarsteggur er dökkmórauður á höfði, hálsi og í kverk. Hnakkinn svartleitur. Bak og herðar, síður og læri gráflikrótt (hvít- og svartkrotað). Vængurinn móleitur, en þökurnar yfir hand- flugfjöðrunum allgráleitar. Spegill- inn grænn, með málmgljáa og svartri (mjórri) og hvítri (breiðri) DÝRAVERNDARINN 23

x

Dýraverndarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.